Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Page 106
88
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
betur rím og orðfæri sums staðar,
án þess að missa nokkurs í við.
---0----
Páll S. Pálsson:
EFTIRLEIT
Reykjavík — 1954
Þetta er þriðja ljóðakverið sem
Páll hefir gefið út. Áður höfðu
komið Norðurreykir og Skilaréii.
Þetta er einna minst — innan við
100 blaðsíður. Eins og alt sem Páll
yrkir eru kvæðin ljóðræn, lipur og
auðlesin, og standa fyllilega á sporði
fyrri ára kveðskap hans; eru hér
líka nokkur æskuljóð, ort fyrir
innan tvítugs aldur, sem bera vitan-
lega þess tímabils merki. Aftast í
kverinu er bálkurinn, sem hann orti
í kirkjustympingunum. Margt er
þar meinfyndið og hnyttið, en þó
lítt skiljanlegt þeim sem ekki fylgd-
ust með í deilunni. Enn er of skamt
frá liðið, og því ekki viðlit að láta
skýringar fylgja.
---0----
Þorsteinn M. Jónsson:
SKRÁÐ OG FLUTT
Akureyri — MCMLV.
Þessi stóra og myndarlega bók, 400
blaðsíður í stóru broti, er gefin út
af Kennarafélagi gagnfræðaskólans
á Akureyri í minningu um sjötugs
afmæli höfundarins og lokaþáttinn
í kennarastarfi hans.
En til þess að geta notið þessarar
bókar eins og vera ber, verður
maður að átta sig á hinu fjölþætta
og litauðga ævistarfi höfundarins.
Þorsteinn Jónsson er bóndasonur
úr Fljótsdalshéraði. Útskrifaðist af
hinum gamla Möðruvallaskóla, sem
þá var nýlega fluttur til Akureyrar
eftir brunann. Síðan hefir hann
öðlast víðtæka mentun, utan lands
og innan. Aðal ævistarf hans hefir
verið kensla — fyrst barna og ungl-
inga, og síðustu 20—25 árin eða svo
stjórn hins nýrri gagnfræðaskóla
Akureyrar, sem stofnaður var með
lögum eftir að eldri skólinn var
gerður að Mentaskóla (College).
En kensla og skólastjórn var Þor-
steini ekki nóg, enda þótt hann
rækti þau störf af mikilli árvekni-
Hann sat á Alþingi um allmörg ar
og beitti sér mjög fyrir ýmsum
helstu málum þá á dagskrá. Á Akur-
eyri hefir hann lengi setið í bæjar-
stjórn og verið lengst um forseti
hennar. Þá var hann um langt skeið
einn afkastamesti bókaaútgefandi a
landinu og gaf út bækur og rit
ýmissa helstu skálda og rithöfunda
þjóðarinnar. Sömuleiðis ársrit og
tímarit, svo sem Grímu og Nýjar
kvöldvökur, í félagi með öðrum-
Hann ann mjög öllum þjóðlegum
fræðum eldri sem yngri og er afar
vel að sér í þeim, ekki síst þjóðsög-
um og munnmælasögum. Hann a
eitt hið stærsta og fegursta einka-
bókasafn, sem ég hefi séð.
Þetta er þá í fáum dráttum bak
tjald bókarinnar, Skráð og flutt, sem
er, eins og nafnið bendir til, greinar,
ræður og erindi, sextíu og sex ta s
ins. Henni er skift í sjö aðal flokka-
Fyrsta ritgjörðin heitir Faðir minnJ
og er hin fegursta og sannasta lýsin
á íslensku sveitaheimili fyrir og urn
síðustu aldamót — látlaus, hlý 0
full af kærleika. . ■
Næst koma fjórtán afmælisminn^
til merkra samtíðarmanna, me a^
þeirra eru forseti íslands, herr^
Ásgeir Ásgeirsson, Björgvin ton