Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Page 11
ÁVARP FORMANNS TFÍ
Starfsemin á árinu 2004 var með hefðbundnu sniði. Megináhersla í starfi
félagsins er að leggja grunn að faglegri umræðu og miðlun upplýsinga,
jafnt innan félagsins sem og úti í þjóðfélaginu, á öllum þeim sviðum
sem tæknifræðingar starfa. Þannig hefur fjöldi viðburða sett svip sinn á
starfsárið eins og áður.
Árleg vettvangsskoðun á virkjunarsvæðið við Káralinjúka heppnaðist
mjög vel en eins og áður var flogið til Egilsstaða þar sem hópur félaga
okkar af Norðurlandi bættist í hópinn. Auk þessa kom hópur jeppa-
manna frá Reykjavík að virkjunarsvæðinu þartnig að í allt voru það
rúmlega eitt hundrað verk- og tæknifræðingar sem heimsóttu Lands-
virkjun í þetta skiptið.
í september fóru um 120 félagsmenn TFÍ og VFÍ ásamt mökum í Rýnisferð til Ítalíu til að
kynnast tækninýjungum og þeim framkvæmdum sem eru gangi þar um þessar mundir.
Rýnisferðir hafa frá upphafi verið skipulagðar af tæknifræðingum en fyrsta ferðin var
farin til Danmerkur árið 1999.
Tengsl félagsins við félagsmenn úti á landi hafa verið með miklum ágætum. Innan
félagsins eru starfandi landshlutadeildir, þ.e. Norðurlandsdeild, Austurlandsdeild og
Vestmannaeyjadeild sem fá ákveðinn hluta félagsgjalda sinna félagsmanna til ráð-
stöfunar í fundarhöld, ráðstefnur o.þ.h.
Samstarfið við VFÍ undanfarið ár hefur gengið mjög vel. Áfram er unnið að því að kanna
mögulega sameiningu TFÍ, VFÍ og SV en í ágúst var settur á fót vinnuhópur undir stjórn
formanna, sem ætlað er að fara nánar yfir ýmis atriði ásamt því að koma með tillögu að
skipulagi að nýju sameinuðu félagi. Á árinu var gerð viðhorfskönnun meðal félagsmanna
TFI og VFÍ til sameiningar félaganna og er skemmst frá því að segja að 99% tækni-
fræðinga voru hlynntir sameiningu og u.þ.b. tveir þriðju hlutar verkfræðinga.
Mikil fjölgun umsókna í Tækniháskóla íslands haustið 2004 segir okkur að ungir náms-
menn beri mikið traust til skólans og þeirra faggreina sem þar eru kenndar. Félagið hefur
ágæt tengsl við skólann því auk óformlegra funda með stjórnendum hans er félagið með
fjóra fulltrúa í jafnmörgum fagráðum skólans. Hlutverk fagráða er að gera tillögur að
námi og námsskipulagi, meta þörf fyrir nám og námskeið og að gera tillögur til úrbóta
um hvaðeina er varðar starfsemi viðkomandi námsbrautar.
Á haustmánuðum hófust viðræður á milli Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík um
mögulega sameiningu þessara tveggja skóla, sem endaði með því að undirrituð var vilja-
yfirlýsing um að stefna beri að sameiningu á miðju ári 2005. Áf því tilefni komu mennt-
unarmál tæknifræðinga töluvert til skoðunar innan stjórnarinnar. Við höfum kynnt þau
sjónarmið sem við teljum að skipti máli þegar borið er saman nám annars vegar í
tæknifræði og hins vegar í verkfræði. Okkur hefur þótt skorta á skilning manna á mis-
munandi áherslum námsins.
I upphafi var tæknifræði hugsuð sem framhaldsmenntun iðnaðarmanna, sem og þeirra
sem töldust hafa sambærilega verkþekkingu eftir að hafa starfað á vinnumarkaði um
ákveðið tímabil. Til að bæta við menntun iðnaðarmanna í raungreinum hafa skólarnir frá
upphafi rekið fornámsdeildir þar sem bætt hefur verið við kunnáttu nemenda í raun-
greinum áður en eiginlegt nám í tæknifræði hefur hafist. Hérlendis hefur þetta próf
kallast raungreinadeildarpróf og verið ígildi stúdentsprófs á raungreinasviði. Verkfræði
var hins vegar hugsuð fyrir nemendur með stúdentspróf.
Kennsluaðferðir hafa einnig verið ólíkar að því leyti til að verkfræðinámið hefur verið
fræðilegra en í tæknifræðinámið. FEANI-samtökin evrópsku kalla þetta annars vegar
Higher Practical Engineering (tæknifræði) og hins vegar Higher Theoretical Engineering
F o r m á I a r
9