Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 16
Tækniháskóli íslands og Háskólinn í Reykjavík sameinast
A árinu 2004 fagnaði Tækniháskóla íslands 40 ára afmælinu. Tækniskóli íslands var
stofnaður árið 1964 og var ætlað að bæta úr brýnni þörf atvinnulífsins fyrir tækni-
menntað fólk. Upphaflegt markmið skólans var að gefa iðnaðarmönnum kost á
framhaldsnámi sem væri lagað að íslenskum aðstæðum og um leið að brúa bilið milli iðn-
menntunar og háskólanáms. Árið 2002 tóku gildi ný lög um Tækniskóla íslands og nafni
hans breytt í Tækniháskóla Islands. Með lögunum var staðfest staða skólans innan
háskólakerfisins og skipulag hans lagað að háskólalögunum.
Á haustmánuðum 2004 var undirritað samkomulag um sameiningu Tækniháskóla
íslands og Háskólans í Reykjavík. Þann 4. mars 2005 var síðan tilkynnt að Tækniháskóli
Islands og Háskólinn í Reykjavík muni sameinast undir nýju merki og nafni Háskólans í
Reykjavík. I byrjun marsmánaðar 2005 samþykkti Álþingi að heimila samruna
Tækniháskóla Islands og Háskólans í Reykjavík með því að fella úr gildi lög um
Tækniháskóla íslands. Húsnæði skólans verður fyrst í stað á tveimur stöðum, þ.e. við
Ofanleiti og Höfðabakka. Sameinuðum háskóla var valinn nýr framtíðarstaður í
Vatnsmýrarsvæðinu í Reykjavík vorið 2005, en Urriðaholt í Garðabæ hafði einnig komið
til greina.
Staða tæknifræðinnar í sameinuðum háskóla
í tengslum við sameiningu THÍ og HR varð mikil umræða um menntunarmál
tæknifræðinga. Einar H. Jónsson, formaður TFÍ, og varaformaður félagsins, Bergþór
Þormóðsson, heimsóttu í lok nóvembermánaðar 2004 tækniháskóla í Danmörku og IDA,
danska verkfræðinga- og tæknifræðingafélagið, til að kynna sér hvernig málum er háttað
þar í landi.
Bjarki Brynjarsson, deildarforseti tækni- og verkfræðideildar hins nýja háskóla átti í
byrjun desember 2004 fund með stjórnum og menntamálanefndum VFÍ og TFÍ. Þar
kynnti hann stöðu mála að því er varðar fyrirkomulag náms í tæknifræði og verkfræði
við skólann. Kom fram að tækni- og verkfræðideildinni verður skipt upp í sex fagsvið
sem þó munu skarast: Iðnaðar- og rafmagnssvið, Byggingar- og vélasvið, Tölvunarfræði,
Símenntun og frumgreinar, Rekstrar- og stjórnunarsvið og Heilbrigðistæknisvið.
Frumgreinadeildin, sem verið hefur brú iðnaðarmanna í háskólanám og margir óttuðust
að yrði jafnvel lögð niður við sameiningu skólanna, verður með svipuðu sniði og áður.
Reyndar mátti skilja orð Bjarka á þann veg að deildin verði efld. Hún muni áfram þjóna
sínu hlutverki fyrir iðnaðarmenn en jafnframt þjóna nemendum sem eru með „rangt"
stúdentspróf, þ.e. ekki nægilega góða undirstöðu í raungreinum og stærðfræði. Einnig
verður í boði fjarnám og sumarnámskeið við deildina.
Námsframboð við tækni- og verkfræðideildina:
Byggingartæknifræði, véltæknifræði, rafmagnstæknifræði og iðnfræði (llá árs diploma-
nám).
Fjármálaverkfræði, rekstrarverkfræði, heilbrigðisverkfræði, iðnaðarverkfræði, tölvunar-
fræði, hugbúnaðarverkfræði og kerfisfræði (2 ára diploma-nám).
Frumgreinar, fjarnám, HMV (háskólanám með vinnu) og símenntun.
Athygli vekur að iðnaðartæknifræði og tölvu- og upplýsingatæknifræði verða ekki
kenndar sérstaklega eins og nú er í THI í dag en fagsviðunum komið fyrir í nýjum náms-
brautum.