Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 80
Fjármál ríkis og sveitarfélaga
Fjármál hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga eru hér sett fram samkvæmt uppgjöri
þjóðhagsreikninga.
Hið opinbera
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Hagstofu Islands fyrir árið 2004 nam tekjuafgangur hins
opinbera 3,8 milljörðum króna eða sem svarar til 0,4% af vergri landsframleiðslu. Þetta er
3,6 milljörðum króna lakari afkoma en gert var ráð fyrir og skýrist einkum af mun lakari
afkomu sveitarfélaganna í bráðabirgðauppgjörinu. I þjóðhagsspá var áætlað að afkoma
sveitarfélaganna stæði í járnum en nú er áætlað að tekjuhalli sveitarfélaganna á árinu
2004 hafi numið tæpum 5 milljörðum króna. A móti vegur að afkoma ríkissjóðs var 7,8
milljarðar króna eða tveimur milljörðum króna betri en gert hafði verið ráð fyrir.
Fjármál ríkisins
Hagstofa Islands gerir ráð fyrir að tekjuafkoma ríkissjóðs hafi verið 7,8 milljarðar króna
árið 2004 eða sem svarar 0,9% af landsframleiðslu. Þetta er heldur meiri tekjuafgangur en
gert var ráð fyrir í fyrri spá eða sem nemur tveimur milljörðum króna. Munurinn skýrist
einkum af tveimur þáttum. Annars vegar eru tekjur ríkisins áætlaðar 4,7 milljörðum
króna hærri en í fyrri áætlun, að mestu vegna hærri veltuskatta. Hins vegar eru gjöld
ríkissjóðs talin hafa verið 2,7 milljörðum króna hærri en áætlað var, sem liggur að mestu
í tekjutilfærslum. Samneysla ríkis og almannatrygginga er talin hafa vaxið um 1,9% að
raungildi milli áranna 2003 og 2004 og tekjutilfærslur eru taldar hafa lækkað lítillega að
raungildi miðað við almennar launabreytingar.
Fjármál sveitarfélaga
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu íslands í mars er gert ráð fyrir 4,8 milljarða króna
tekjuhalla á rekstri sveitarfélaga á árinu 2004 eða um 0,6% af landsframleiðslu. Þetta er
mun meiri tekjuhalli en gert var ráð fyrir í fyrri spá eða sem
nemur rúmlega fjórum milljörðum króna. Hér vegur þungt
mikill samneysluvöxtur sveitarfélaga en samneysla þeirra
jókst um ríflega 8 milljarða króna milli ára, úr 72,3
milljörðum króna árið 2003 í 80,5 milljarða króna árið 2004
en það er 7% raunaukning. Sú raunaukning er að mestu til
komin vegna aukinna útgjalda til félagsþjónustu eins og
fræðslu- og velferðarmála. Þá jókst hrein fjárfesting sveitar-
félaga árið 2004 verulega frá fyrra ári eða um 6 milljarða
króna. A móti þessum mikla útgjaldaauka komu auknar
skatttekjur, að fjárhæð 7 milljarðar króna.
. Hið opinbera
Rlki-----Sveitarfélög
Afkoma hins opinbera.
Hlutfall af landsframleiðslu,%.
Heimild: Hagstofa íslands og spá
fjármálaráðuneytis.
7 8 | Á r b ó k VFÍ/TFÍ 2005