Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 300
breytinga á skrifstofuumhverfinu er áhersla á upplýsingatækni í öllum löndunum. Þar af
er aðgangur starfsmanna að innra neti utan fyrirtækisins algengasta breytingin. Jafnframt
var algengt að menn vildu breytingar til að knýja fram aukna framleiðni, skilvirkni og
betri nýtingu húsnæðis. Mest var trú manna á fræðslu og þjálfun starfsmanna til að auka
skilvirkni og því næst á endurskipulagningu verkferla. Nánari upplýsingar um niður-
stöður þessarar könnunar má sjá á vefsíðu verkefnisins [7].
Verkefnið nú á lokasprettinum er að vinna úr þeim gögnum sem safnast hafa við skoðun
á fyrirtækjum sem notfæra sér breytt skipulag á skrifstofuumhverfinu. Niðurstöðurnar
verða gefnar út og kynntar á ráðstefnu. Verkefnislok eru áætluð við lok ársins 2005 en
verkefnið hófst vorið 2003. Lokaráðstefna verður haldin á Islandi þar sem gerð verður
grein fyrir niðurstöðunum.
BIRRA - Breiðband í dreifðum byggðum
Síminn tekur þátt í einu af þeim mörgu verkefnum sem unnin eru undir hatti Norður-
slóðaáætlunar Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme, NPP). Verkefnið er
nefnt BIRRA (Broadband in rural and remote areas) og nær til fjögurra landa á
norðurslóðum, Finnlands, Svíþjóðar, Hjaltlandseyja og Islands [8].
Markmiðið BIRRA er að afla gagna um hvernig nýta megi betur fjarskipta- og
upplýsingatækni í dreifbýli og með hvaða hætti draga megi úr jaðaráhrifum, stuðla að
sérhæfingu í dreifbýli og styrkja samkeppnisstöðu byggða á norðurslóð. Liður í þessu er
að kortleggja stöðuna, greina þarfir fyrir frekari uppbyggingu fjarskiptakerfa og skoða
hvernig samnýta megi tækni. Stefnt er að því að búa til verkfæri sem hjálpar til við að
meta stöðu sveitarfélaga á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni þar sem horft er til
nokkurra þjónustuþátta. Þeir eru m.a. fjarnám (eLearning), fjarhjúkrun (eCare), fjarvinna
(eWork), rafræn stjórnsýsla (e-government), rafræn viðskipti (e-business) og menn-
ingarstarfsemi. Islenska áherslan í verkefninu er á stöðugreiningu, markmiðasetningu,
framtíðarsýn, áætlanagerð og lausnir.
Nú er unnið að því að taka saman gögn um breiðbandsvæðingu (þ.e. uppbyggingu
háhraða fjarskiptakerfa) á ísafirði, Sauðárkróki og helstu byggðakjörnum í nágrenninu.
Tekin verða viðtöl við sveitarstjórnarmenn og fulltrúa þróunarfélaga og fyrirtækja.
Verðlagning og notkunarmynstur breiðbandsþjónustu verður kartnað og teknar saman
upplýsingar um hvaða áætlanir eru uppi um frekari tækniuppbyggingu. Þá verður
dregin upp mynd af því hvernig háhraða fjarskipti nýtast í daglegu lífi og störfum íbúa.
Leitað verður svara við því hvernig bæta megi stjórnsýslu og þjónustu fyrirtækja og
kannað verður hvort þau séu markvisst að nýta breiðbandstæknina.
Sams konar þarfagreining verður gerð hjá sveitarfélögum í Lapplandi og Kainuu-héraði
í Finnlandi, í Vasternorrlandi í Svíþjóð og á Hjaltlandseyjum. Þá verður reynslusögum af
svæðunum safnað saman til að draga megi af þeim almennan lærdóm.
Verkefnislok eru áætluð í júnílok 2006 en verkefnið hófst í janúar 2005. Lokaráðstefna
þess verður haldin á íslandi þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum.
ELENA - Fjarmenntun starfsmanna
Verkefninu Elena lauk á miðju ári 2005. Þetta verkefni var hluti 5. rammaáætlunar ESB á
sviði upplýsingatækni. Að verkefninu stóðu á annan tug fyrirtækja og rannsóknarstofn-
ana víðs vegar í Evrópu [9]. Markmiðið var að hanna og koma á laggirnar svokölluðu
snjöllu námsveri, (e. Smart Space for Learning). Hugmyndin er að umhverfi þetta sé opið
2 9 8 | Arbók VFl/TFl 2005