Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 91
Kópavogsbær
Framkvæmdir Kópavogsbæjar á árinu 2005 nema um 3,2 milljörðum króna samkvæmt
áætlun. Gatnakerfið tekur langmest til sín af framkvæmdafé bæjarins, eða 1,2 milljarða
króna, en um 50% þeirrar fjárhæðar renna til gatnagerðar í Vatnsendahverfinu þar sem
miklar byggingafrámkvæmdir eiga sér stað. Framkvæmdir við skólahúsnæði nema
tæplega 760 milljónum króna og eru þær stærstu við Vatnsendaskóla en í hann fara 220
milljónir króna og 194 milljónir króna til byggingar leikskóla við Vatnsenda. Til íþrótta-
mannvirkja fara 420 milljónir fara en 65% þeirrar fjárhæðar fara til nýrrar íþrótta-
miðstöðvar í Salahverfi sem verður fullbúin á þessu ári. Til annarra eigna verður varið
um 60 milljónum króna, 270 milljónum króna í fráveitur, 260 milljónum til vatnsveitu og
um 250 milljónir króna fara í viðhaldskostnað. Fyrirhuguð er umtalsverð landfylling á
hafnarsvæðinu á Kársnesi og smám saman mun draga úr umsvifum atvinnufyrirtækja á
svæðinu eftir því sem íbúum fjölgar þar. Útboð vegna byggingar Suðurbæjarhverfis við
Vatnsenda hefjast á árinu 2006.
Hafnarfjarðarbær
Framkvæmt verður fyrir 2,7 milljarða króna á árinu 2005 og það er nánast allt boðið út.
Vesturgata verður endurgerð en flatarmál malbiks er um 6.600 m2 og lengd götu 600
metrar. Nýtt hringtorg verður gert á horni Arnarhrauns og Reykjavíkurvegar en vegna
mikillar fjölgunar hringtorga í bænum eru ýmsir aðilar í Flafnarfirði farnir að kalla hann
„Lord of the Rings!"
Kirkjugarðurinn verður stækkaður og Thorsplan í miðbænum endurgert. Verið er að
vinna deiliskipulag vegna olíugeymasvæðisins við Hvaleyrarbraut. Til stendur að færa
Kleifarvatnsveg og skipuleggja gatnagerð á þjónustu og verslunarsvæðum við Selhraun.
Útboðsverk fráveitu nema 1,3 milljörðum króna en ýmsar framkvæmdir verða allt frá
dælustöð við Herjólfsgötu og þrýstilögn að dælustöð við Norðurgarð allt að útrás frá
hreinsistöð í Straumsvík sem ein og sér kostar um 285 milljónir króna. Framkvæmdir hjá
Vatnsveitu Hafnarfjarðar nema um 85 milljónum króna. Þar af verða nýframkvæmdir
fyrir ríflega 18 milljónir króna og endurbætur fyrir 64 milljónir króna. Fjárfestingar á
árinu 2005 nema 1.210 milljónum króna, þar af 350 milljónir króna við Hvaleyrarskóla og
295 milljónir króna við skóla á Völlum. Stækkun álvers er í umræðunni en framkvæmdir
gætu hafist 2007 til 2008. Inn í þá umræðu fléttast færsla á Reykjanesbraut við
Straumsvík.
Landsnet
Landsnet er nýstofnað dótturfyrirtæki Landsvirkjunar. Fjárhæð útboðsverka árið 2005 er
um fjórir milljarðar króna en alls sé fyrirhugað að vinna við flutningsvirki o.fl. fyrir
Fjarðaál fyrir 9 milljarða króna á næstu árum, fyrir 6 milljarða króna vegna Norðuráls og
fyrir tvo milljarða króna vegna annarra framkvæmda. Flutningsvirki vegna Fjarðaáls er
m.a. tengivirki í Fljótsdal, breyting á Kröflulínu 2, vinna við Fljótsdalslínur 3 og 4 og við
aðveitustöð á Hryggstekk en sú framkvæmd er fyrirhuguð á næsta ári. Flutningsvirki
vegna stækkunar eru helst Sultartangalína 3, breyting á Brennimelslínu 1 og tengivirki á
Sandafelli og við Kolviðarhól. Aðrar helstu framkvæmdir eru tengivirki Lagarfoss.
Byggingamannvirki og búnaður verða boðin út á þessu ári en verklok eru á árinu 2006.
Orkuveita Reykjavíkur
Framkvæmdaáætlun Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2005 nemur 11,4 milljörðum króna
en nam 7,5 milljörðum króna árið áður. Framkvæmdir vegna dreifingar heits og kalds
vatns og rafmagns nema tæplega 1.300 milljónum króna sem skiptast milli nýlagna,
byggingaframkvæmda og endurnýjunar veitukerfa. Kostnaður við dreifingu gagnaveitu,
8 9
Tækniannál