Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 158
Almannaskarðsgöng, gangamunni að sunnan á
vígsludegi 24.júní 2005.
Almannaskarðsgöng, vígsla 24.júní 2005. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra klippir á borða til
merkis um að göngin séu tekin (notkun.Jón
Rögnvaldsson vegamálastjóri aðstoðar.
Skæravörðurvið vígsluna var Karen Lind Ingólfsdóttir.
Heiðursmenn Vegagerðarinnarvoru þeir Jón Helgason
og Þorleifur Olsen.
Það sem skipti sköpum varðandi fram-
kvæmdir við Almannaskarð var samþykkt
ríkisstjórnarinnar snemma árs 2003 um að
láta auka vegaframkvæmdir næstu 18 mán-
uðina þar á eftir, meðal annars til að stuðla að
eflingu atvinnutækifæra fram til þess tíma að
áhrifa af stóriðjuframkvæmdum færi að gæta
til fulls. Fjármagn til þessara framkvæmda
kom frá sölu ríkiseigna. Þar var meðal annars
ákveðið að veita 500 milljónum króna til
gangagerðar undir Almannaskarð. Með þess-
ari ákvörðun var ljóst að jarðgöng yrðu valin
í stað nýs vegar um skriðuna. Með því að
velja jarðgöng er horft til langrar framtíðar.
Umhverfisáhrifin eru miklu minni, hætta á
grjóthruni og snjóflóðum er úr sögunni og
umferðaröryggið er mun meira.
í vegáætlun 2003-2006 voru þær fjárhæðir
sem fyrir voru á vegáætlun sameinaðar og
settar á árið 2004, 122 m.kr. uppfært til
verðlags. Þá var í vegáætlun 2005-2008 veitt
97 m.kr. til framkvæmda við göng undir
Almannaskarð, og samtals koma því 219
m.kr. til þessara framkvæmda af hefðbundn-
um liðum í vegáætlun þessara ára. Loks var í
fjáraukalögum ársins 2004 veitt 375 m.kr. til
verkefnisins. Með 500 milljón króna við-
bótarfé ríkisstjórnarinnar voru heildarfjár-
veitingar til jarðganganna þannig tæplega
1.100 m.kr., en af því koma aðeins rúmar 200
milljónir af hefðbundnu vegafé. Jarðgöngin
hafa því ekki nein áhrif á önnur fram-
kvæmdaáform á svæðinu, þar eð ódýrustu
lausnir við endurbætur á opnum vegi um
Almannaskarð hefðu kostað mun meira en
200 milljónir. Þótt endanlegt kostnaðar-
uppgjör liggi ekki fyrir virðist ljóst að verkið
allt rúmist innan fjárveitinga og heildar-
kostnaður er nokkru lægri en upphaflega var
áætlað.
Stutt lýsing á mannvirkjum er þannig að
jarðgöngin sjálf eru 1.146 m á lengd og
steyptir forskálar eru 162 m. Göngin í heild
teljast því 1.308 m. í útboði voru vegir utan
ganga 4,1 km en á síðari stigum var ákveðið
að endurbyggja einnig veginn áfram til vest-
urs, um Dynjanda, þannig að heildarlengd
nýrra vega utan ganga er um 5,5 km.
Verkið var boðið út í desember 2003 og tilboð
opnuð í janúar 2004. Af fimm verktökum
buðu Héraðsverk og Leonhard Nilsen og
Sönner lægst, um 780 m.kr., eða 91% af kostn-
aðaráætlun. Vinna hófst í lok mars 2004 eða
156, Arbók VFl/TFl 2005