Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Síða 286
Ritið Reglur um lýsingu vega og gatna hefur nú litið dagsins ljós. Eins og vonast hafði
verið voru viðbrögð hreint ótrúleg og seldust 200 eintök af því á mjög skömmum tíma,
sem verður að teljast mjög gott miðað við áætlaðan markað fyrir reglur um þetta við-
fangsefni.
Reglurnar taka á flestöllu sem snertir þetta efni en vissulega er alltaf eitthvað sem mætti
endurbæta í ljósi reynslu og eiga reglur sem þessar að vera í stöðugri endurskoðun. I
reglunum eru gefnar einfaldaðar leiðbeiningar um val á lýsingarflokkum fyrir götur og
vegi. Reglurnar segja ekki til um hvort eigi að lýsa eða lýsa ekki. Ljóstæknifélag Islands
hefur annast útgáfu og dreifingu reglnartna og er hægt að panta þær á www.ljos.org.
Staðallinn
Meðan reglurnar voru í vinnslu eða í nóvember 2003 var Evrópski staðallinn EN 13201
2-4:2004 samþykktur hjá aðildarþjóðum CEN. Þetta þýddi því að þar með var orðinn til
íslenskur staðall, ÍST EN 13201 2—4:2004, sem gildir fyrir íslenskar aðstæður. Auk að-
lögunar að íslenskum aðstæðum hefur verið höfð hliðsjón af riti sem eru drög að tækni-
skýrslu CEN. Reglurnar ganga á sumum sviðum lengra, hvergi skemmra, en tækni-
skýrsludrögin og staðlarnir. Reglurnar taka einnig á ýmsum praktískum hlutum sem
snerta útfærslu og hönnun gatna- og veglýsingar.
Eins og áður sagði hefur prEN 13201 2-4 verið samþykkt sem staðall og samanstendur af
3 ritum.
TR 13201-1:2004 (DRAFT TO TECHNICAL REPORT, Road lighting - Part 1: Selection of
lighting classes). (Val á lýsingaflokkum)
Þetta eru drög að tækniskýrslu til leiðbeininga um val á lýsingarflokkum fyrir götur og
vegi. Ekki hefur náðst samkomulag meðal aðildarþjóða CIE um að gefa ritið út sem
tækniskýrslu.
ÍST EN 13201-2:2004 (Road Lighting - Part 2: Performance requirements). (Kröfur til
gæðastuðla)
ÍST EN 13201-3:2004 (Road Lighting - Part 3: Calculation of performance). (Útreikningur
á gæðastuðlum)
ÍST EN 13201-4:2004 (Road lighting - Part 4: Methods of measuring the light perfor-
mance of installations). (Aðferðir til að mæla gæðastuðla)
CEN-aðilar eru landstaðlaráð Austurríkis, Belgíu, Tékklands, Danmerkur, Finnlands,
Frakklands, Þýskalands, Grikklands, Ungverjalands, fslands, írlands, Ítalíu, Lúxemborgar,
Möltu, Hollands, Noregs, Portúgals, Slóvakíu, Spánar, Svíþjóðar, Sviss og Bretlands.
I tækniskýrsludrögunum er að finna leiðbeiningar um ákvörðun á lýsingarflokkum og
efni því tengdu. Hún á við um föst vegalýsingarkerfi sem ætluð eru til að gefa góð sjón-
skilyrði á umferðarsvæðum fyrir almenning utanhúss þegar dimmt er, stuðla að
umferðaröryggi, umferðarflæði og öryggi almennings.
Drögin tilgreina lýsingarflokka sem fjallað er um í ÍST EN13201-2 og leiðbeinir um
hvernig beita má lýsingarflokkum. í þessu skyni er sett fram kerfi til skilgreiningar á
utanhússumferðarsvæði með notkun forsendna sem hafa þýðingu fyrir lýsingu. Til að-
stoðar við notkun lýsingarflokkanna er gefið auðnotað samband á milli mismunandi
flokka, sett fram með sambærilegum lýsingarflokkum.
f henni er einnig leiðbeint um afmörkun athugunarsvæðis sem lýsingarflokkarnir í
CIE/EN 13201-2 og útreikningar og aðferðafræðin í ÍST EN 13201-3 skuli notuð fyrir.
2 8 4. Arbók VFf/TFl 2005