Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 178
Stækkun Lagarfossvirkjunar
ÍAV hófu framkvæmdir um miðjan apríl 2005 við stækkun Lagarfossvirkjunar fyrir
RARIK. Verkefnið felur í sér stækkun stöðvarhúss til norðurs, nýtt inntak norðan við það
sem fyrir er og þrýstivatnsstokk á milli nýja inntaksins og stöðvarhúsviðbyggingar.
Ennfremur rýmkun aðrennslisskurðar með tilheyrandi vatnsvarnarvirkjum og stíflugerð.
Áætluð verklok eru í maí 2007.
Skrifstofu- og þjónustubygging Þyrpingar í Borgartúni
I september hófust framkvæmdir vegna uppbyggingar skrifstofu- og þjónustubyggingar
í Borgartúni. Þyrping hf. er verkkaupi að framkvæmdunum og áætlað er að þeim ljúki í
apríl 2007. Húsið skiptist í tvo misháa hluta, sem eru fimm og átta hæðir, að auki er hálf
hæð þakhæð ofan við lyftuturn fyrir tæknirými. Fyrir miðju húsi er aðalstigahús með
þremur lyftum. Önnur stigahús eru við vesturenda og á austurgafli. Hluti hússins er
einangraður að utan með mismunandi gerðum af klæðningum, en einnig er hluti hússins
sjónsteypa, einangruð að innan. Húsið verður um 12.000 fermetra stórt með 345
bílastæðum, þar af verða 200 bílastæði niðurgrafin.
íbúðir við Þrastarhöfða
Haustið 2004 hófu ÍAV framkvæmdir að byggingu fjölbýlishúsa við Þrastarhöfða í
Mosfellsbæ. Þar rís blönduð byggð 68 íbúða í fjölbýlishúsum, 12 íbúðum í rað- og par-
húsum og 31 einbýlishúsi. Verklok eru áætluð í ágúst 2006.
Ásakór í Kópavogi
Á árinu var hafist handa við byggingu fjölbýlishúss við Ásakór í Kópavogi. Húsið er
þriggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum á hæð. í kjallara undir byggingunni eru
sérgeymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými. Sameign og lóð er full-
frágengin með snjóbræðslulögnum í bílageymslurampa og hluta hellulagðra göngustíga.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum Ijúki sumarið 2006.
Stækkun Grand Hótels Reykjavíkur
í febrúar 2005 hóf ÍAV framkvæmdir
við stækkun Grand Hótels. Stækk-
unin felst í byggingu 300 fermetra
hæðar ofan á suðurálmu hótelsins.
Framkvæmdum á þessu verki lauk
um mitt þetta sumar. f október hófust
framkvæmdir við byggingu á tveimur
13 hæða turnum við hótelið. Bygg-
ingin samanstendur af kjallara, 12
fullum hæðum, inndreginni hæð og
hæð sem skilur húsin í tvær einingar.
Gert er ráð fyrir nýjum aðalinngangi,
gestamóttöku sem tengist yfirbyggð-
um innigarði, þjónusturýmum í kjall-
ara og á fyrstu hæð, hótelherbergjum
á 1. til 13. hæð og tæknirýmum á efstu
hæð. í byggingunni verða 212 her-
bergi. Verklok eru áætluð í mars 2007.
1 7 61 Arbók VFl/TFl 2005