Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Side 193
skorpunni. Álframleiðsla krefst hins vegar mjög mikillar raforku sem hefur verið tak-
markandi framleiðsluþáttur.
Aluminum Company of America
Straumhvörf urðu í raforku- og álframleiðslu
þegar fyrsta stóra vatnsaflsvirkjunin tók til
starfa við Niagara-fossa árið 1895. Notuð var
þá í fyrsta sinn riðstraumstækni sem Nikola
Tesla hafði fundið upp. Riðstraumur átti
síðar eftir að verða alls ráðandi í raforku-
flutningi. The Pittsburgh Reduction Company
var fyrsti kaupandi raforkunnar frá virkjun-
inni við Niagara-fossa, fyrir álver sem reist
var á virkjunarsvæðinu. Við þessa raforku-
byltingu margfaldaðist framleiðslugeta fyrir-
tækisins og kostnaðurinn við álframleiðslu
lækkaði niður í brot af því sem hann hafði
verið. Árið 1907 var nafni fyrirtækisins breytt
í Aluminum Company of America og síðar
formlega í Alcoa. Árið 1909 var álframleiðsla
fyrirtækisins komin upp í 17.000 tonn.
Álverð var komið niður í 0,36 dollara kílóið
árið 1914.
Arfleifð frumkvöðlanna
Charles Martin Hall stýrði rannsóknum Alcoa þar til hann lést, 51 árs gamall, árið 1914.
Hann var þá talinn vera efnaðasti uppfinningamaður í sögu Bandaríkjanna. Megninu af
eignum hans, sem metnar voru á 45 milljónir dollara, var skipt á milli menntastofnana.
Þar af fór þriðjungur til Oberlin-háskólans og sjötti hluti í sjóð til að mennta blökkumenn.
Stjórnarformaðurinn, Alfred E. Hunt, lést árið 1899 af völdum malaríu sem hann hafði
fengið í leiðangri þjóðvarðliða til Puerto Rico. Arthur Vining Davis tók þá við stjórnar-
taumunum og stýrði miklum vexti Alcoa allt til ársins 1957, þegar hann lét af stjórnarfor-
mertnsku eftir nærri 70 ára starf hjá fyrirtækinu. Roy Hunt, sonur Alfreds, tók við af
Davis og hann starfaði líka hjá Alcoa í tæp 70 ár. Andi þessara þrautseigu frumkvöðla lifir
enn og dafnar innan Alcoa.
Alcoa stækkar
Alcoa spannaði fljótlega alla virðiskeðjuna í áliðnaði og frumkvöðlastarfið beindist ekki
síður að álnotkun en álframleiðslu. Fyrirtækið starfrækti meðal annars báxítnámur,
súrálsverksmiðjur, orkuver, járnbrautir, skipafélag, álver, málmsmiðjur og rannsókna-
stofur. Alcoa reisti jafnvel heilu bæjarfélögin í kringum starfsemi sína, þar á meðal bæinn
Alcoa í Tennessee. Löngu eftir að einkaleyfið rann út árið 1909 var staða Alcoa í banda-
rískum áliðnaði svo sterk að samkeppnisyfirvöld höfðuðu mál gegn félaginu. Aldrei
sannaðist að Alcoa hefði misnotað markaðsstöðu sína og niðurstaðan varð sú að kaup-
endur hefðu fremur notið góðs af vexti fyrirtækisins. Engu að síður þurfti Alcoa að draga
úr umsvifum sínum og var meðal annars gert að selja dótturfyrirtæki sitt í Kanada, sem
hét þá árið 1928 Aluminum Company of Canada en varð síðar að Alcan, sem í dag er
næststærsta álfyrirtæki heims.
Kynning og tæknigreinar fy rirtækja og stofnana i 1 9 1