Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 63
1.8.2 Stéttarfélag verkfræðinga
STÉTTARFÉIAG
VERKFRÆÐINGA
Verkfræðmgahúsinu, Engjateigi 9,
105 Reykjavík. s. 568 9986
Stjórn og félagar
Stjórn Stéttarfélags verkfræðinga síðastliðið starfsár (2004-2005) skipuðu: Hulda
Guðmundsdóttir formaður, Sveinbjörg Sveinsdóttir varaformaður, Arnar Gestsson frá-
farandi formaður, Sigurður E. Guttormsson ritari, Baldur Grétarsson gjaldkeri, Eysteinn
Einarsson, Jóhanna H. Árnadóttir, Ásberg K. Ingólfsson og Kristján M. Ólafsson.
Félagar eru um 930. Um 174 félagar vinna á verkfræðistofum, um 256 hjá ríki, 76 hjá
Reykjavíkurborg og sveitarfélögum og um 400 á almennum markaði og 55 félagar eru í
námi og erlendis og því ekki fullgreiðandi.
Framkvæmdastjóri félagsins er Árni B. Björnsson, verkfræðingur. Margrét
Hólmsteinsdóttir sér um bókhald félagsins og sinnir ýmsum skrifstofustörfum.
Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur skrifstofu félagsins, situr stjórnarfundi og
fundi á vegum nefnda félagsins.
Samninganefndir
í samninganefnd við Reykjavíkurborg sátu Bjarni Guðmundsson formaður, Auður Ólafs-
dóttir, Rúnar S. Svavarsson, Sigurbjörn Búi Sigurðsson og Árni ísberg varamaður.
í samninganefnd við ríki sátu Helga R. Eyjólfsdóttir formaður, Steingrímur Jónsson,
Sveinn V. Árnason, Gísli Georgsson og Elín G. Guðmundsdóttir.
í samninganefnd við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) sátu Eysteinn Einarsson for-
maður, Ragnar Hauksson og Jónas Már Gunnarsson.
Útgáfumál
Á heimasíðu SV er mikið magn upplýsinga og er hún öflugur fréttamiðill félagsins. Stefnt
er að frekari nýtingu síðunnar með því að gera hana gagnvirka.
Eins og undanfarin ár var Verktækni gefið út í samvinnu við VFI og TFÍ. Sigrún S.
Hafstein er ritstjóri blaðsins. Laun ritstjóra og aðstaða er fjármögnuð með beinum fram-
lögum frá félögunum þremur. Prentvinnslufyrirtækið Grafík sér um prentvinnslu og
dreifingu blaðsins og er sá hluti útgáfunnar fjármagnaður með auglýsingum sem Grafík
sér um að selja.
í ritnefnd eru Sveinbjörg Sveinsdóttir formaður, fyrir SV, Ólafur Pétur Pálsson fyrir VFI
og Árni Þór Árnason fyrir TFÍ.
Bæklingur um Sjúkrasjóðinn var gefinn út á síðasta starfsári og sendur til félaga í
sjóðnum.
Sumarbæklingi Orlofssjóðsins sem er á heimasíðu SV hefur var breytt mikið. I bæklingn-
um eru myndir, kort, upplýsingar og gagnvirkir tenglar á þá staði sem verið er að leigja.
6 1
Félagsmál Vfí/TFÍ