Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 6
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR6
fréttaskýring
Hvað þýðir það að hafa réttarstöðu
sakbornings í rannsóknum sérstaks
saksóknara?
Fleiri en hundrað einstaklingar
hafa réttarstöðu sakbornings í
rannsóknum sérstaks saksóknara
á málum tengdum bankahruninu.
Sumir þeirra eru grunaðir í fleiri
málum en einu.
Eins og greint hefur verið frá í
fjöl miðlum var Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, sem var yfir maður
hjá Kaup þingi fyrir hrun og
hefur nú réttar stöðu sak bornings,
nýverið ráðinn framkvæmda
stjóri Atvinnu þróunar félags Eyja
fjarðar.
Stjórnarformaður Atvinnu
þróunar félagsins hefur sagt að
Þorvaldur Lúðvík sé saklaus
uns sekt er sönnuð eins og aðrir
og því sé ekkert athuga vert við
ráðninguna.
Alþingismenn hafa nokkrum
sinnum beint þeirri fyrirspurn
til sérstaks sak sóknara hversu
margir hafa réttar stöðu sak
bornings í rann sóknum hans.
Síðasta svar barst í mars í fyrra
og var talan þá 216.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, segir þá tölu ekki
segja alla söguna, því þá séu þeir
margtaldir sem komi við sögu
í fleiri málum en einu. Sé hver
einstaklingur einungis talinn einu
sinni lækki talan um rúmlega
helming. Engu að síður hafi
sakborningum fjölgað verulega
síðan þá, einkum í síðustu rassíu
tengdri Glitni í lok árs.
Embættinu hefur gjarnan verið
borið á brýn að stimpla menn sak
borninga af litlu tilefni. Þetta segir
Ólafur Þór ekki standast skoðun.
„Það er látið með þetta úti í
sam félaginu eins og við séum að
skreyta menn
með þessu að
ó þörfu, en við
teljum að við
séum bara að
fylgja lög unum,“
segir hann. „Við
erum al gjör lega
með vituð um að
það sé þung bært
að vera í þeirri
stöðu að vera
sak borningur
en við sjáum ekki annað en að lögin
setji okkur ákveðnar leik reglur í
þeim efnum.“
Hann bendir á að lög kveði á um
að þeir skuli fá réttar stöðu sak
bornings sem viss grunur sé um
að hafi átt aðild að refsi verðri hátt
semi. Ekki þurfi að vera uppi rök
studdur grunur um að þeir hafi
sjálfir gerst sekir um af brot. Þetta
sé skýrt í lögum.
„Í okkar málum erum við
oft með fjármálagerninga sem
ganga gjarnan á milli mjög
margra manna innan fjármála
stofnunar áður en þeir eru á end
anum afgreiddir, þannig að það
eru mjög margir sem eiga aðild
að verknaðinum með einhverjum
hætti,“ segir hann.
Alls ekki allir grunaðir eru á
endanum ákærðir fyrir afbrot.
Ólafur bendir á svokallað Exeter
mál, þar sem tólf höfðu réttarstöðu
sakbornings við lok rannsóknar en
einungis þrír voru ákærðir.
Enn fremur segir Ólafur að
réttar staða sakbornings færi
mönnum aukin réttindi við
skýrslutökur. „Þeir þurfa þá ekki
að fella sök á sjálfa sig með fram
burði, þeim er ekki gerð refsing þó
að þeir beri rangt og eiga rétt á að
hafa viðstadda verjendur,“ segir
hann. stigur@frettabladid.is
Grunaðir eru alls
ekki allir ákærðir
Réttarstaða sakbornings þýðir ekki að viðkomandi hafi framið glæp. Í Exeter-
málinu voru þrír ákærðir af tólf með þá réttarstöðu. Staðan veitir mönnum
aukin réttindi og sérstakur saksóknari segir hana ekki notaða óhóflega.
Þorvaldur
lúðvík sigur-
jónsson
sérstakur saksóknari Ólafur Þór Hauksson vísar því á bug að embætti hans
skreyti menn með sakborningsstimpli að óþörfu. Fréttablaðið/steFán
FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda
Alzheimersjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma
heldur fræðslufund fimmtudaginn 12. janúar nk.
Fundurinn sem hefst kl. 20.00 verður haldinn í
Mörk – hjúkrunarheimili,
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
Dagskrá:
• Fréttir af starfi FAAS: Fanney Proppé Eiríksdóttir,
formaður.
• Kynning á hjúkrunarheimilinu: Ragnhildur G.
Hjartardóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
• Magnús Jóhannsson, sálfræðingur heldur erindi
sem hann nefnir: Væg vitræn skerðing: hvar liggja
mörkin milli eðlilegs minnistaps og byrjandi
heilabilunar?
• Umræður og fyrirspurnir
Mörk – hjúkrunarheimili býður fundargestum kaffi-
veitingar. Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru
hvattir til að mæta. Allir eru velkomnir.
Bestu kveðjur
Stjórn FAAS
heiLbRiGðismáL Niðurstöður íslenskrar
rannsóknar um bættar horfur sjúklinga með
nýrnafrumukrabbamein hafa vakið heimsathygli.
Læknar við Læknadeild Háskóla Íslands og
skurðdeild Landspítala birtu grein í gær í einu
virtasta vísindariti innan þvagfæraskurðlækninga,
Journal of Urology. Þá var hún forsíðufrétt í blaðinu
Renal & Urology News.
Þar er bent á að rúmlega helmingur nýrnafrumu
krabbameina á Íslandi greinist nú fyrir tilviljun,
en 1971 var hlutfallið um 11 prósent. Þessi þróun
hefur leitt til þess að horfur sjúklinga með nýrna
frumukrabbamein hafa vænkast umtalsvert hér
á landi. Í tilkynningu um málið segir að ástæðan
fyrir þessari hröðu aukningu tilviljanagreininga er
útbreidd notkun tölvusneiðmynda og ómskoðanir.
„Hér á landi er aðgengi sjúklinga að þess konar
rannsóknum óvenjugott, bæði á sjúkrahúsum og
einkareknum læknastofum,“ segir í tilkynningunni.
Nýrnafrumukrabbamein er langalgengasta
illkynja æxlið sem greinist í nýrum en hér á
landi greinast hátt í 30 einstaklingar árlega með
sjúkdóminn. Nýrnafrumukrabbamein er óvíða
algengara í heiminum en hér á landi og er ástæðan
fyrir því óþekkt. - sv
Ný íslensk heilbrigðisrannsókn á nýrnafrumukrabbameini vekur heimsathygli:
Batahorfur mun betri en áður
aðgerð nýrnafrumukrabbamein er óvíða í heiminum eins
algengt og hér á landi.
öRyGGismáL Tundurdufli var eytt
á Héraðs sandi á Austur landi á
miðvikudags kvöld af sprengju sveit
Landhelgis gæslunnar. Gæslan hefur
gert um fimm þúsund tundur dufl
ó virk af þeim rúmlega 100 þúsund
sem Bretar lögðu úti fyrir Aust
fjörðum í seinni heims styrjöldinni.
Tundurdufl fannst við Selfljótsós
á sunnanverðum Héraðssandi á
miðvikudag og fékk sprengjusveit
Gæslunnar sendar myndir sem
staðfestu að um var að ræða dufl
frá seinni heimsstyrjöldinni. Talið
var nauðsynlegt að fara á staðinn
til að eyða því.
Í duflinu reyndist vera virkt
sprengiefni og var það sprengt á
staðnum með dínamíti og plast
sprengiefni. Ekki sáust fleiri dufl
í sandinum að þessu sinni.
Að sögn sprengjusérfræðinga
geta tundurdufl varðveist vel
í sandi ef þau eru alveg grafin
niður en koma upp á yfirborðið við
breytingar í sandinum – eins geta
þau horfið skyndilega. Mikilvægt er
fyrir sprengjusérfræðinga að vera
fljótir á vettvang eftir að tilkynning
um dufl hefur borist til þeirra. Best
er að hafa samband við 112, segir í
frétt frá LHG. - shá
Landhelgisgæslan hefur gert 5.000 tundurdufl óvirk síðustu áratugina:
Tundurdufli eytt á Héraðssandi
dufl á Héraðssandi sprengjusér-
fræðingur kannar hér innihald duflsins.
Héraðsflóinn breiðir úr sér að baki hans.
Fréttablaðið/sigurður ásgrímsson
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!
DÓmsmáL Rúmlega þrítugur karl
maður hefur verið ákærður fyrir
þjófnaði og fjársvik.
Manninum er gefið að sök
að hafa stolið upptöku vélum,
spjald tölvu og hangikjöts læri
úr þremur verslunum. Samtals
var þýfið að verð mæti um 275
þúsund krónur. Þá stal maðurinn
greiðslu korti. Með því verslaði
hann í níu verslunum fyrir tæpar
70 þúsund krónur. Gerðar eru
kröfur á manninn fyrir hönd
þriggja af þeim verslunum sem
hann stal vörum úr. - jss
Rúmlega þrítugur ákærður:
Stal búnaði og
hangikjötslæri
Ætlar þú að fylgjast með
íslenska karlalandsliðinu á EM
í handbolta?
já 64,4%
nei 35,6%
spurning dagsins í dag
Grunar þig að heimili þitt sé
sýkt af sveppum?
kjörkassinn