Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 32
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR32
V
iktor Orban hefur verið líkt
við Vladimír Pútín, sem
hefur notið mikilla vinsælda
í Rússlandi, en um leið gætt
þess að hafa „taumhald á lýð
ræðinu“ til að geta haldið í
völdin sem lengst.
Orban hefur verið stórtækur í breyt
ingum á bæði stjórnarskrá og öðrum
mikilvægum lögum landsins, að því er
virðist með það markmið helst að tryggja
sjálfum sér völdin til frambúðar.
Mannréttindasamtök gagnrýna breyt
ingarnar harðlega, segja alþjóðasamninga
brotna og lýðræðið laskað. Leiðtogar
Evrópu sambandsins og annarra aðildar
ríkja þess fylgjast með í forundran en hafa
hikað við aðgerðir.
Evrópusambandið
Nú í vikunni, eftir að ný stjórnarskrá tók
gildi um áramót, hafa þó þrír þingflokkar
á Evrópuþinginu krafist aðgerða: Þing
hópar frjálslyndra demókrata, sósíalista
og græningja hvetja yfirstjórn Evrópu
sambandsins til þess að samþykkja refsi
aðgerðir gegn Ungverjalandi.
Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætis
ráðherra Belgíu, segir fulla ástæðu til að
beita nú refsiaðgerðum sambærilegum
þeim sem beitt var gegn þjóðernis
sinnanum Jörg Haider í Austurríki árið
2000 þegar Frelsisflokkur hans tók þátt í
samsteypustjórn landsins og hætta þótti á
mannréttindabrotum af þeim sökum.
Mótmæli
Á mánudaginn komu tugir þúsunda Ung
verja saman í miðborg Búdapest þegar
forsætisráðherrann og fleiri ráðamenn
landsins fögnuðu gildistöku nýju
stjórnarskrárinnar í Ríkislistasafninu.
Mótmælendur sögðu stjórnvöld full af
hræsni, stjórnarskráin grafi undan lýðræði
og mannréttindum og stjórnmálamenn taki
sér æ meiri völd, meðal annars yfir fjöl
miðlum, trúfélögum, dómstólum landsins
og seðlabankanum.
Þeir kölluðu forsætisráðherrann
Viktator, þar sem steypt er saman nafni
hans, Viktor, og orðinu diktator eða
einræðis herra. Þeir sögðu hann hafa keyrt
landið niður í „ruslflokk“, með tilvísan í
sífellt lægra lánshæfismat ríkisins.
Umdeilt
Meðal umdeildra ákvæða í nýju stjórnar
skránni eru meðal annars beinar tilvísanir
til þjóðernisstolts, kristinnar trúar og
hinnar „heilögu krúnu“ ríkisins. Þá er
hjónaband skilgreint sem samband karls
og konu og kveðið á um að vernda beri líf í
móðurkviði allt frá getnaði.
Auk stjór na rsk rá r i n na r h a fa
fjölmiðlalög, sem sett voru á síðasta
ári, verið harðlega gagnrýnd fyrir það
að þrengja of mikið að fjölmiðlafrelsi.
Meðal annars var sett á stofn sérstök
eftirlitsstofnun með fjölmiðlum, sem
hefur vald til að leggja háar fjársektir á
fjölmiðla ef umfjöllun þeirra telst – að mati
nýja fjölmiðla eftirlitsins – annaðhvort vera
óhlutdræg eða ósiðleg.
Síðastliðið sumar samþykkti ungverska
þingið einnig með yfirgnæfandi meirihluta
ný kirkjulög sem veita einungis 14 af
þeim 358 trúfélögum sem til eru í landinu
formlega viðurkenningu sem opinber
trúfélög. Þetta hefur verið gagnrýnt fyrir
að þrengja um of að starfsemi annarra
trúfélaga en þeirra, sem fengið hafa
opinbera viðurkenningu, og þar með
brot á trúfrelsisákvæðum alþjóðlegra
mannréttindasamninga.
Dómstóll
Stjórnarskrárdómstóll landsins komst
reyndar í desember að þeirri niðurstöðu
að nokkur ákvæði í fjölmiðla lögunum og
kirkju lögunum standist ekki stjórnar
skrá. Hins vegar er óljóst hvaða gildi
úrskurður dómstólsins hefur í reynd
nú þegar breytt stjórnarskrá hefur
tekið gildi aðeins fáeinum vikum síðar.
Stjórnlagadómstólnum hafa nú verið settar
skorður og fari málið þrátt fyrir það aftur
fyrir dómstólinn gæti niðurstaðan orðið
þveröfug, enda eru í nýju stjórnarskránni
ákvæði sem beinlínis kalla á breytt lög um
fjölmiðla, trúfélög og aðrar helstu stofnanir
ungversks samfélags.
Fall kommúnismans
Fidesz er íhaldsflokkur, stærsti flokkur
landsins og var upphaflega stofnaður árið
1988 af ungum og frjálslyndum stjórnar
andstæðingum. Liðsmenn voru framan
af einkum námsmenn sem höfðu sætt
ofsóknum af hálfu kommúnistastjórnar
landsins vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Þessi öflugi hópur námsmanna stóð
framarlega í lýðræðisbaráttu almenn
ings í Ungverjalandi sem efldist hratt með
þeim árangri að kommúnistastjórnin féll
haustið 1989 á svipuðum tíma og stjórnvöld
annarra Austantjaldsríkja.
Núverandi leiðtogi flokksins, Viktor
Orban, stóð framarlega í þeirri baráttu, þá
25 ára gamall nýútskrifaður lögfræðingur.
Þann 16. júní árið 1989 flutti hann fræga
ræðu á Hetjutorginu í Búdapest þar
sem hann krafðist frjálsra kosninga og
brotthvarf sovéska hersins.
Íhaldsstefna
Í fyrstu náði Fidesz samt ekki miklu flugi í
kosningum og hlaut innan við tíu prósenta
fylgi í fyrstu tvennum kosningum eftir fall
kommúnismans. Það var ekki fyrr en Viktor
Orban hafði tekið við forystu flokksins sem
fylgið tók að vaxa verulega. Undir forystu
Orbans breytti flokkurinn um áherslu,
lagði af frjálslyndið og tók upp íhaldssama
hægristefnu. Við nafn flokksins, Fidesz,
sem er skammstöfun og stendur fyrir
Bandalag ungra lýðræðissinna. var bætt
orðunum; Borgarabandalag Ungverjalands.
Þetta skilaði flokknum 28 prósentum
atkvæða árið 1998 og sama ár varð Orban
forsætisráðherra í samsteypustjórn
með öðrum forystuöflum úr lýðræðis
byltingunni árið 1989.
Árin 2002 til 2010 var Orban í stjórnar
andstöðu, þrátt fyrir ríflega 40 prósent
fylgi í kosningunum 2002 og 2006. Árið
2010 vann Fidesz síðan stórsigur og fékk
samtals 53 prósent atkvæða í kosninga
bandalagi með Kristilegum demókrötum,
litlum flokki sem lengi hefur átt í nánu
sam starfi við Fidesz.
Efnahagskreppa
Það var ekki síst bágborið efnahagsástand
sem varð til þess að kjósendur flykktust
að Fidesz, íhaldsflokki Orbans, sem hafði
verið í stjórnarandstöðu í tvö kjörtímabil.
Vinstristjórn landsins hafði keyrt efna
hagslífið í kaf með lántökum og spillingu.
Einstaklingar og fyrirtæki höfðu einnig
tekið allt of mikið af lánum í erlendri mynt.
Alþjóðakreppan kom á versta tíma fyrir
Ungverja, svo vart er annað í stöðunni en
að fá aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Viðræður stjórnvalda við sjóðinn um aðstoð
hafa reyndar gengið brösuglega en eiga að
fara aftur í gang á næstunni.
Lýðræðinu reistar skorður
Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur verið stórtækur í breytingum á stjórnarskrá og öðrum mikilvægum lögum.
Allt til að tryggja sjálfum sér og flokki sínum lítt takmörkuð völd til frambúðar, segja gagnrýnendur. Guðsteinn Bjarnason skoðar
afrek Orbans, sem fyrir tuttugu árum var í fararbroddi lýðræðisbyltingar gegn þáverandi kommúnistastjórn landsins.
MótMæli Meðan Orban flutti ræðu sína í listasafn-
inu höfðu tugir þúsunda Ungverja safnast saman
fyrir utan listasafnið til að mótmæla nýju stjórnar-
skránni, sem tók gildi um áramótin.
nOrdicphOtOs/AFp
Nýrri stjórNarskrá FagNað Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, flytur ræðu í ríkislistasafninu í Búdapest, þar sem gildistöku nýju stjórnarskrárinnar
var fagnað með viðhöfn mánudaginn 2. janúar. nOrdicphOtOs/AFp
Úr aðfaraorðum
n Við erum stolt af því að heilagur
stefán konungur reisti ungverska
ríkið á traustum grunni og gerði
land okkar að hluta af kristilegri
Evrópu fyrir þúsund árum.
n Við erum stolt af framúrskar-
andi vitsmunalegum afrekum
ungversku þjóðarinnar.
n Við viðurkennum hlutverk
kristninnar í varðveislu þjóðernis.
n Við heiðrum árangur sögulegrar
stjórnskipunar okkar og við
heiðrum hina heilögu krúnu sem
er holdgun stjórnskipunarlegrar
samfellu ungverska ríkisins og
einingar þjóðarinnar.
Úr fyrsta kaflanum, sem nefnist
grundvöllur:
n Með það í huga að til er ein
ungversk þjóð, skal Ungverjaland
bera ábyrgð á örlögum þeirra
Ungverja sem búa utan landa-
mæra þess og skal létta undir
með afkomu og þróun samfélaga
þeirra.
n Ungverjaland skal vernda hjóna-
bandið sem samband karls og
konu, stofnað af frjálsri ákvörðun,
og fjölskylduna sem grundvöll
framtíðartilveru þjóðarinnar.
n Líf fósturvísa og fósturs skal njóta
verndar frá getnaði.
UmDeiLD ákvæði í nýjU stjóRnARskRánni