Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 38
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR38
F
yrir réttu ári tilkynnti banda-
ríska sjónvarpsstöðin History
Channel að hún hefði hætt við að
sýna sjónvarpsþáttaröðina The
Kennedys – átta þátta röð sem
fjallaði um fjölskylduna frá því
að John F. Kennedy varð forseti Bandaríkj-
anna og þangað til Robert bróðir hans var
myrtur. Bandaríkjamenn hafa löngum verið
heillaðir af Kennedy-fjölskyldunni og því
ekki að undra að ný þáttaröð um fjölskyld-
una vekti athygli og eftirvæntingu.
Það vakti hins vegar strax blendnar til-
finningar á meðal aðdáenda fjölskyldunnar
að framleiðandi þeirra og meðhöfundur var
kunnur repúblikani, Joel Surnow, en hann er
þekktastur fyrir að eiga heiðurinn af fyrstu
þáttaröðum 24-sjónvarpsþáttanna. Hvers
vegna kunnur íhaldsmaður var að vasast í að
fjalla um erkidemókrata var spurning sem
margir veltu fyrir sér. Sumir brugðust harð-
ar við en aðrir. Ted Sorensen, ræðuskrifari
John F. Kennedy, gagnrýndi þættina harð-
lega eftir að hafa lesið handrit að þeim og
sagði þá draga upp ranga mynd af atburðum
og fólki. Leikstjórinn og samfélagsrýnirinn
Robert Greenwald tók viðtöl við fræðimenn
sem hafa sökkt sér ofan í sögu Kennedy-fjöl-
skyldunnar og skeytti saman í mynd sem
hann setti á netið. Fræðimennirnir áttu það
sameiginlegt að gagnrýna meðferð höfunda
þáttanna á sögunni.
„Það var öllu breytt í ómerki-
lega sápu af verstu gerð,“ sagði
Greenwald í viðtali við New York
Times á síðasta ári. Viðtalið var
tekið áður en tökur á þáttunum
hófust og Stephen Kronish, hand-
ritshöfundur þáttanna, sagði við
blaðið í sömu grein að honum
þætti gagnrýnin heldur ótíma-
bær, gagnrýnendurnir hefðu
ófrágengið handrit í höndunum.
Arfleifðin mikilvæg
Deilurnar áður en þættirnir
voru settar á laggirnir sýna að
arfleifð Kennedy-fjölskyldunn-
ar skiptir enn máli. „Deilur um
[sjónvarpsþætti byggða á sögulegu efni]
snúast yfirleitt frekar um áhuga stuðnings-
manna á að varðveita ímynd hetjanna sinna
en um áhrif þáttanna á söguna,“ sagði í
gagnrýni vikuritsins Time um þættina og
fleiri tóku í sama streng. Þess má geta að
þættirnir um Kennedy-fjölskylduna eru
ekki fyrstu þættir um bandaríska stjórn-
málamenn sem sjónvarpsstöð hættir við að
sýna. Árið 2003 höfðu áhrifamiklir íhalds-
menn erindi sem erfiði þegar þeir lögðust
gegn því að CBS-stöðin sýndi sjónvarps-
þætti um Ronald Reagan og fjölskyldu, The
Reagans.
Kennedy-fjölskyldan hefur sannarlega
talist til bandarískra hetja og stundum haft
á orði að hún sé ígildi konungsfjölskyldu
Bandaríkjamanna. Aðdáun á fjölskyldunni
og endalaus áhugi á sér margvíslegar skýr-
ingar. Barátta fyrir mannréttindum og vel-
ferð er hluti af pólitískri arfleifð fjölskyld-
unnar en John F. Kennedy þótti líka afar
glæsilegur forseti og hann og eiginkona
hans Jackie voru stöðugt umfjöllunarefni
fjölmiðla. JFK hafði mikinn sjarma og ein
skýring á naumum sigri hans í forsetakosn-
ingunum 1960 var hversu miklu betur hann
stóð sig í sjónvarpskappræðum en andstæð-
ingurinn Richard Nixon. Rétt eins og sigur-
inn var efniviður í samsæriskenningar – en
sagt var að mafían hefði tryggt Kennedy
sigurinn – var sviplegt andlát hans upp-
spretta fjölmargra kenninga sem hafa getið
af sér bækur og myndir og ýtt undir áhuga á
fjölskyldunni.
Nokkrum árum síðar féll Robert
Kennedy einnig fyrir hendi morðingja
en hann barðist þá fyrir kjöri sem
forseti Bandaríkjanna. Þar endar sagan
í sjónvarpsþáttaröðinni The Kennedys
en Kennedy-fjölskyldan hefur sem kunn-
ugt er verið áhrifamikil og áberandi í
Bandaríkjunum til dagsins í dag.
Meðal kunnra skyldmenna eru þing-
maðurinn margreyndi og einn helsti mátt-
ar-stólpi demókrata um langt skeið, Ted
Kennedy, en þessi yngri bróðir Johns og
Roberts lést haustið 2009. Systurdóttir
þeirra Maria Shriver er þekkt, bæði fyrir
fréttamennsku en kannski einkum fyrir að
hafa verið gift Arnold Schwarzenegger um
árabil. Sonur JFK, John F. Kennedy yngri,
haslaði sér völl í útgáfu en hann lést í flug-
slysi 1999. Nú í vikunni rataði framboð
Josephs P. Kennedy III, sonarsonar Roberts,
í fréttir um allan heim. Það þykir sæta tíð-
indum að Kennedy-fjölskyldan
muni mögulega eiga fulltrúa á
þinginu eftir nokkurra ára hlé.
Bölvun fjölskyldunnar
Dramatíkin í sögu Kennedy-
fjölskyldunnar er stór þáttur í
því hversu saga fjölskyldunnar
hefur heillað marga. Ættfaðir-
inn Joseph Kennedy var afkom-
andi fátækra írskra innflytjenda
en sjálfur var hann vellauðugur.
Hann og eiginkona hans Rose
voru metnaðargjörn fyrir hönd
barna sinna, og mesta traustið
var sett á elsta soninn, Joseph
Jr. Hann féll hins vegar í heims-
styrjöldinni síðari, sem var eitt
fyrsta áfallið sem dundi yfir fjölskylduna en
alls ekki það síðasta, stundum hefur verið
sagt að bölvun hljóti að hvíla á henni.
Eftir að History Channel hætti við að sýna
þættina í janúar síðastliðnum þá tók ReelzC-
hannel-sjónvarpsstöðin við keflinu og sýndi
þættina í apríl. Skýring History Channel á
því hvers vegna hætt var við að sýna þættina
var sú að þeir féllu ekki að dagskrárstefnu
stöðvarinnar. Sú skýring var léttvæg fundin
af mörgum sem töldu líklegra að áhrifamenn
og aðdáendur fjölskyldunnar hefðu haft þar
hönd í bagga, áðurnefnd Maria Shriver hefði
til að mynda beitt áhrifum sínum.
Gagnrýnendur hafa sumir gert lítið úr
þeirri skýringu, sagt líklegra að þáttaröð-
in hafi einfaldlega ekki þótt nægilega góð.
Þrátt fyrir þekkta leikara, Tom Wilkinson
leikur ættföðurinn Joseph Kennedy, Greg
Kinnear JFK, Katie Holmes Jackie Ken-
nedy og Barry Pepper leikur Robert Ken-
nedy, og reynda höfunda og framleiðendur
hafa dómar um þættina verið upp og ofan.
Sýning þáttanna hefst á Stöð 2 á sunnudags-
kvöldið.
Fjölmargir þættir hafa verið gerðir um Kennedy-fjöl-
skylduna og einnig kvikmyndir. Óvísindaleg rannsókn á
Kennedy-myndum sýnir að áhugafólk um fjölskylduna gæti
gert margt vitlausara en að horfa á þessar myndir:
n Primary (1960). Heimildarmynd um baráttu John F.
Kennedy og Hubert Humphrey í forkosningunum árið
1960. Kvikmyndagerðarmenn fylgdu keppinautunum
eftir sólarhringum saman og áhorfendur komast í návígi
við Kennedy, áður en hann varð forseti.
n Kennedy (1983). Sjónvarpsþættir frá árinu 1983 þar sem
Martin Sheen þykir fara á kostum sem John F. Kennedy.
n JFK (1991). Leikstjórinn Oliver Stone var ekki feiminn við
að sækja í brunn samsæriskenninga í mynd sinni um
morðið á John F. Kennedy og rannsókn þess.
n Thirteen Days (2000). Mynd um Kúbudeiluna sem átti
sér stað árið 1962. Bruce Greenwood leikur John F.
Kennedy.
n Bobby (2003). Emilio Estevez leikstýrði þessari mynd
sem segir frá áhrifum dauða Roberts Kennedy á líf nokk-
urra einstaklinga.
Deilt um Kennedy-fjölskylduna
Nýlegir sjónvarpsþættir um Kennedy-fjölskylduna voru umdeildir áður en fyrsti tökudagur rann upp. Sigríður Björg Tómas-
dóttir kynnti sér deilurnar og áhugann á fjölskyldunni sem stundum hefur verið kölluð bandaríska konungsfjölskyldan.
í hlutverki forsetAhjónAnnA Katie Holmes í hlutverki Jackie Kennedty og Greg Kinnear í hlutverki
Johns F. Kennedy. Holmes er sögð hafa verið eyðilögð þegar sýningu þáttanna var frestað.
óþrjótaNdi uppspretta kvikmyNda og þátta
aðdáun á
fjölskyldunni
og endalaus
áhugi á sér
margvíslegar
skýringar.