Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 7. janúar 2012 11
sveitARstjóRniR Bæjarráð Hveragerðis segist
harma hugmyndir starfshóps sjávarútvegs-
ráðherra um ráðstöfun veiðileyfagjalds vegna
fiskveiða við Ísland.
Samkvæmt hugmynd starfshópsins, sem
skipaður var af Jóni Bjarnasyni, þáver-
andi sjávarútvegsráðherra, á 50 prósent af
veiðileyfa gjaldinu að renna í ríkissjóð, 40
prósent til sjávarbyggða og 10 prósent til
þróunar- og markaðssmála í sjávarútvegi.
„Það er álit bæjarráðs að allar auðlindir
Íslands eigi að vera sameign landsmanna. Því
er með öllu óskiljanlegt hvers vegna starfs-
hópurinn gerir ráð fyrir skiptingu auðlinda-
gjalds með það að markmiði að einungis hluti
þjóðarinnar njóti. Slíkt munu íbúar þeirra
sveitarfélaga sem skarðan hlut bera frá borði
ekki sætta sig við,“ segja Hvergerðingar sem
veittu málinu athygli í síðasta mánuði er þeim
barst ályktun sveitarstjórnar Skagafjarðar.
Ólíkt Hvergerðingum fagna Skagfirðingar
tillögum starfshópsins. Þær séu viðurkenning
„á þeirri miklu tilfærslu fjármagns
sem við lýði er frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins og styður þá viðleitni
sem í tillögunum er að finna til að tekjurnar
komi til baka, að minnsta kosti að hluta til.“
- gar
Tillaga starfshóps sjávaraútvegsráðherra um skiptingu veiðileyfagjalds fellur í grýttan jarðveg í Hveragerði:
Sættast ekki á skertan hlut af auðlindum
Hveragerði Veiðileyfagjald á að renna til ríkisisins,
sjávarbyggða og markaðsmála í sjávarútvegi.
Hvergerðingar telja sig hlunnfarna.
Fréttablaðið/rósa
efnAhAGsmáL Vöruskipti við
útlönd voru jákvæð um 112
milljarða króna á síðasta ári
samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands. Þetta er heldur
lakari vöruskiptajöfnuður en
á síðasta ári, þegar hann nam
ríflega 120 milljörðum króna.
Á síðasta ári voru fluttar inn
vörur fyrir 513,6 milljarða en út
fyrir 625,6 milljarða króna sam-
kvæmt upp lýsingum frá Hag-
stofunni. Á árinu 2010 voru fluttar
inn vörur fyrir 440,8 milljarða en
út fyrir 561 milljarð króna. - bj
Vöruskipti við útlönd jákvæð:
Jöfnuður minni
en á síðasta ári
oRkUmáL Sveitarfélagið
Skagaströnd og RARIK ohf.,
hafa gert samning um lagningu
hitaveitu til Skagastrandar.
Samningurinn felur í sér framlag
sveitarfélagsins til RARIK sem
mun leggja stofnæð og dreifiveitu
um byggðina á Skagaströnd og
tengingu við hitaveitu Blönduóss.
Með framlagi sveitarfélags
og sérstöku framlagi á fjár-
lögum ríkisins hefur arðsemi
af veitunni verið tryggð, kemur
fram í frétt frá RARIK.
Gert er ráð fyrir að fyrstu hús
munu tengjast haustið 2013 og að
öll hús hafi möguleika á tengingu
haustið 2014. - shá
Hitaveita til Skagastrandar:
Tengja fyrstu
hús árið 2013
frá skagaströnd bylting verður í
sveitarfélaginu með nýrri hitaveitu.
Fréttablaðið/steFán
hoLLAnD, AP Fjögur þorp í norðan-
verðu Hollandi, samtals með um
800 íbúa, voru rýmd í gær af ótta
við að flóðvarnargarðar myndu
bresta. Miklar rigningar síðustu
daga og hvassviðri hafa orðið til
þess að mikla vinnu hefur þurft
að leggja í að styrkja garðana
með sandpokum og öðrum ráðum.
Litlar líkur eru reyndar
sagðar á því að varnargarðarnir
bresti, en fari svo myndi allt að
1,5 metra djúpt vatn flæða yfir
hundruð hektara lands.
Fjórðungur Hollands er neðan
sjávarmáls og talið er að 55
prósent landsins séu í flóðahættu.
Flóðvarnargarðarnir, sem halda
vatninu í skefjum, eru þúsundir
kílómetra að lengd samtals. - gb
Flóðahætta í Hollandi:
Rýma þurfti
átta þorp
flóðvarnargarðar styrktir tugir
manna unnu að því að styrkja garðana
með sandpokum. nordicpHotos/aFp