Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 7. janúar 2012
Sölumaður óskast
Ein öflugasta fasteignasala landsins óskar eftir því að ráða vanan
sölumann til starfa. Menntun sem löggiltur fasteignasali er góður
kostur.
Á RE/MAX Lind vinnur hæfileikaríkt fólk sem myndar samheldin hóp
sem leggur sig fram um að veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks
þjónustu.
Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og trausta þjónustu.
Í boði er skemmtilegur vinnustaður og góð vinnuaðstaða.
Vinsamlegast hafið samband við Þórarin Jónsson
thorarinn@remax.is eða Hannes Steindórsson hannes@remax.is
Barnaverndarstofa
Forstöðumaður Stuðla
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
Meðferð ar stöðvar ríksins fyrir unglinga, Stuðla.
Stuðlar skiptast í lokaða deild og meðferðardeild
en fyrir hugaðar eru breytingar og frekari þróun á
þjónustu Stuðla með áherslu á bætta bráða
þjónustu og aukna eftirfylgd.
Forstöðumaður Stuðla heyrir undir Barnaverndar
stofu en ber ábyrgð á starfsmannahaldi,
með ferð ar starfi, daglegum rekstri og samskiptum
út á við. Forstöðumaður vinnur í nánu samstarfi við
barna verndarnefndir og önnur meðferðarheimili
á vegum Barnaverndarstofu. Einnig er mikilvæg
samvinna við aðra sérfræðinga og stofnanir, skóla
og aðra lykilaðila í meðferð og enduraðlögun
fjölskyldu og barns.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf í sálfræði. Háskólamenntun félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða hliðstætt nám
með viðbótarmenntun kemur jafnframt til greina.
• Reynsla af meðferð barna með alvarlegan hegð
unar og vímuefnavanda og meðferð fjölskyldna
þeirra.
• Staðgóð þekking á þroskaferli barna og unglinga og kenningum um þroska og hegðunarraskanir.
• Áhugi og færni í að beita viðurkenndum aðferð
um svo sem atferlismótun, hugrænni atferlis
meðferð, þjálfun í félagsfærni, áhugahvetjandi
samtalstækni, fjölskylduráðgjöf og meðferð.
• Æskileg reynsla af stjórnun og rekstri.
• Lögð er áhersla á samskiptahæfni og einstak
lingsbundna þætti sem að mati Barnaverndar
stofu nýtast í starfi.
Umsóknarfrestur er til 23. janúar 2012. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningum Barnaverndarstofu
og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal skila til Barnaverndarstofu, Borgar
túni 21, 105 Reykjavík. Einnig má skila umsóknum
rafrænt (ingibjorg@bvs.is).
Nánari upplýsingar veitir forstjóri Barnaverndarstofu
eða Halldór Hauksson sviðsstjóri meðferðar- og
fóstursviðs í síma 530 2600.
Barnaverndarstofa áskilur sér rétt til að hafna
öllum umsóknum og framlengja umsóknarfrest
ef umsækjendur uppfylla ekki skilyrði. Öllum
umsóknum verður svarað skriflega þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
VAKA
óskar eftir starfsfólki
VAKA er eitt fjölhæfasta bílaþjónustufyrirtæki landsins, nú bæði í Skútuvogi og á Smiðjuvegi.
Áhugasamir geta sótt um með því að senda umsókn á starf@vakahf.is
Dekkjaþjónusta VarahlutirBifreiðaverkstæði Bifreiðaflutningar Úrvinnsla bíla Bón og þvottur
Starfsvið:
· Flutningur bíla og tækja
· Móttaka flutningsbeiðna
· Umsjón vakataskipulags
· Ábyrgð á ástandi bifreiða
· Uppgjör og reikningagerð
Hæfniskröfur:
· Meirapróf
· Gott viðmót og áhugi að bæta sig í starfi
· Stundvísi og snyrtimennska
· Góð mannleg samskipti
· Öguð vinnubrögð
· Tölvukunnátta
Deildarstjóri
akstursdeildar
Starfsvið:
· Birgðabókahald
· Tímaskráningar
· Daglegt uppgjör
· Afstemmingar á sölu
Hæfniskröfur:
· Navison kunnátta
· Birgðabókhald
· Góð kunnátta á Excel
· Sjálfstæð vinnubrögð
· Samskiptahæfni
Skrifstofustjóri
Við bjóðum: Fjölbreytt verkefni, gott starfsumhverfi og vel samkeppnishæf laun
Heilbrigðisfulltrúar - Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Umhverfis- og samgöngusvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laust er til umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Matvælaeftirliti auk afleysingastarfa hjá Matvælaeftirliti og
Umhverfiseftirliti.
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum borgarinnar og samanstendur af skrifstofum Samgöngumála, Neyslu
og úrgangs og Náttúru og útivistar, auk Staðardagskrár 21, Bílastæðasjóði og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem skiptist í tvær deildir:
Umhverfiseftirlit og Matvælaeftirlit auk þess sem Heilbrigðiseftirlitið sér um vöktun umhverfisgæða og hundaeftirlit.
Leiðarljós Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að tryggja borgarbúum heilnæm lífsskilyrði og vernda heilnæmt og ómengað umhverfi og
tryggja sem kostur er að neysluvatn og matvæli borgarbúa séu örugg og heilnæm
Starf í boði er hjá Matvælaeftirliti sem sér um eftirlit með matvælum í fyrirtækjum og stofnunum, útgáfu starfsleyfa, umsagnir, fræðslu og
sinnir kvörtunum, ásamt öðrum verkefnum. Afleysingastöður taka til tímabundinna starfa bæði hjá Matvælaeftirliti og Umhverfiseftirliti.
Deildarstjóri er næsti yfirmaður.
Starfið felst m.a. í:
• Að hafa reglubundið eftirlit með starfsleyfisskyldum fyrirtækjum í samræmi við lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar-
varnir, lög um matvæli nr. 93/1995 og reglugerðum skv. þeim.
• Að sinna skráningum, skýrslugerð og bréfaskriftum, sinna kvörtunum og annast fræðslu. Beita þvingunarúrræðum í samráði við
deildarstjóra.
• Sinna öðrum verkefnum samkvæmt fyrirmælum deildarstjóra.
• Að vinna með hópi sérfræðinga Heilbrigðiseftirlitsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda, umhverfisfræða eða sambærileg menntun.
• Afburðahæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi.
• Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
• Góð hæfni að tjá sig á rituðu, jafnt sem töluðu máli.
• Réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi eru æskileg.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Félags íslenskra náttúrufræðinga og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björg Ragnarsdóttir starfsmannastjóri, Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri og Óskar Ísfeld Sigurðsson,
deildarstjóri Matvæleftirlits, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, frá
kl. 9-16 í síma 411 1111.
Sótt er um störfin á heimasíðu Reykjavíkurborgar undir flipanum Störf í boði. Umsóknarfrestur er til 23. janúar 2012.
Reykjavík 6. janúar 2012
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar/ Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Borgartún 12-14 105 Reykjavík www.reykjavik.is