Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 88
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Kristján Hreinsson skáld er fimmtíu og fimm ára.
„Hjálpsemi er huglægt fljót sem heimsins fegurð geymir.“55
Merkisatburðir
1906 Fyrsta ungmennafélag
á Íslandi, Ungmenna
félag Akureyrar, er
stofnað.
1927 Fyrsta símhringingin
yfir Atlantshafið fer
fram frá New York til
London.
1944 Helgi Hjörvar útvarps
maður byrjar lestur
sögunnar Bör Börsson
eftir Johan Falkberget
sem laðar landsmenn
að viðtækjum sínum.
1953 Harry Truman, forseti
Bandaríkjanna, til kynnir
að vetnissprengja hafi
verið þróuð í Banda
ríkjunum.
„Þetta er klassískur áhugamannakór
með fólki úr öllum áttum,“ segir
Gunnlaugur Bragi Björnsson, sem
syngur tenór í Hinsegin kórnum
og heldur líka utan um buddu hans.
Fyrstu sjálfstæðu tónleikar kórsins
er í dag í Norræna húsinu og hefjast
þeir klukkan 16. Allur ágóði fer í
ferðasjóð. Kórinn ætlar nefnilega til
Færeyja næsta sumar á hinsegin daga
þar, þá fyrstu sem skipulagðir eru af
nýstofnuðu félagi homma og lesbía í
Færeyjum og þeim fyrstu sem haldnir
eru síðan árið 2007. Þegar Gunnlaugur
Bragi er minntur á að ekki hafi verið
vel tekið á móti forsætisráðherranum
okkar þar í landi, svarar hann: „Nei,
það er ákveðinn hópur í Færeyjum
sem er ekki mjög opinn fyrir þessum
félagsskap. En það er mikill áhugi hjá
kórnum á því að fara út og taka þátt
í gleðigöngunni með frændum okkar
og við höfum fengið jákvæð viðbrögð
að utan, meðal annars ábendingar um
færeysk lög í kórútsetningum.“
Hinsegin kórinn byrjaði að æfa í lok
júlí á nýliðnu ári. Gunnlaugur Bragi
rekur stofnun hans til formannsins,
Ástu Óskar Hlöðversdóttur sem var
þá nýflutt frá Þýskalandi þar sem
hún hafði verið í sambærilegum kór.
Í október var svo ráðinn stjórnandi,
Helga Margrét Marzellíusardóttir sem
er að læra söng og kórstjórn í Lista
háskólanum. „Þegar Helga var komin
fór allt á fullt,“ segir Gunnlaugur
Bragi. En er öðru vísi raðað upp í
raddir í hinsegin kórum en öðrum?
„Við erum ekki föst í að vissar raddir
séu kvennaraddir og aðrar karlaraddir.
Stelpur geta sungið tenór og strákar alt
ef því er að skipta. Fólk fer í raddpróf
þegar það kemur í kórinn og er raðað
upp eftir því,“ upplýsir hann.
Um tónleikana í dag segir Gunnlaugur
Bragi: „Við leggjum upp úr því að
vera með fjölbreytt og skemmtilegt
lagaval. Erum með allt frá klassískum
íslenskum kór verkum til nýrra dægur
og popplaga. Það er lagavals og nótna
nefnd í kórnum þannig að þeir félagar
sem hafa áhuga á að leita að nótum geta
lagt sitt af mörkum og þeir sem hafa
þekkingu og áhuga á að útsetja lög hafa
þann mög uleika. Kórstjórinn okkar er
líka duglegur að breyta og bæta eftir því
sem hentar.“
Margir innan kórsins eru annað
hvort í öðrum kórum eða í tónlist á
öðrum vettvangi að sögn Gunnlaugs
Braga, aðrir eru að feta sín fyrstu spor
í svona starfi. Skyldi hann hafa verið í
söng áður? „Ég hef verið í kórum áður
og um tíma í Nýja söngskólanum. Þó ég
þekkti engan í þessum hópi þá ákvað
ég að prófa og sé ekki eftir því. Þetta
er rosalega skemmtilegur hópur. Mikið
hlegið og sungið og gleðin alltaf við
völd,“ segir Gunnlaugur Bragi. Hann
tekur fram að kórinn sé opinn öllum og
hvetur áhugasama til að mæta á æfingu
næsta mánudagskvöld kl. 20 í húsnæði
Samtakanna 78, á Laugavegi 3.
gun@frettabladid.is
HiNsegiN kóriNN: Heldur sína fyrstu sjálfstæðu tónleika
Stelpur geta sungið tenór og
strákar alt ef því er að skipta
Hinsegin Kórinn „Þetta er rosalega skemmtilegur hópur. Mikið hlegið og sungið og gleðin
alltaf við völd,“ segir gunnlaugur Bragi sem er rauðhærði gaurinn á miðri mynd.
FréTTABLAðið/sTeFáN
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem veittu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jóhanns Haukssonar
Skarðshlíð 23b, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu
Hlíð fyrir góða umönnun.
Sigríður Hermanns
Friðrik Jóhannsson Eygló Björnsdóttir
Sólveig Margrét Jóhannsdóttir Sushant Sinha
Ásta Jóhannsdóttir
Guðrún Birna Jóhannsdóttir Guðmundur Örn Njálsson
afa- og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn,
Kristján Sigurðsson
Fannborg 3, Kópavogi,
lést mánudaginn 2. janúar. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju, mánudaginn 9. janúar kl. 13.00.
Oddný Helgadóttir
Okkar ástkæri
Jón Arndal Stefánsson
Óðinsgötu 16, Reykjavík,
lést mánudaginn 26. desember. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. En þeim sem
vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Auður Kristjánsdóttir
Agnes Aðalgeirsdóttir Hersteinn Brynjúlfsson
Ellert Friðrik Berndsen Eydís Mikaelsdóttir
Birgir Stefán Berndsen
Björgvin Ragnar Berndsen
Davíð Berndsen
Viðar Berndsen
Kári Hersteinsson
Við þökkum innilega þann hlýhug og
vináttu sem okkur var sýnd við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Gunnars Valdimarssonar
frá Teigi í Vopnafirði
og heiðruðu minningu hans á margvíslegan hátt.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir einstaka umhyggju og hlýju.
Sólveig Einarsdóttir
Þorsteinn Gunnarsson Árþóra Ágústsdóttir
Erla Gunnarsdóttir
Helga Gunnarsdóttir Rolf Eliassen
Einar Gunnarsson Dóra Lúðvíksdóttir
barnabörn og langafabörn
Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson
Útfararþjónusta
Vönduð og
persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is
Kæru vinir og vandamenn um land
allt, innilegar þakkir fyrir sýnda samúð
og vináttu vegna fráfalls okkar elsku
hjartans eiginmanns, pabba, tengda-
pabba, afa og langafa,
Alfreðs Sigurlaugs
Konráðssonar
frá Hrísey, Kirkjuvegi 14 Dalvík.
Guð gefi ykkur öllum gleðilegt nýtt ár.
Valdís Þorsteinsdóttir
Þórdís Alfreðsdóttir Steingrímur Sigurðsson
Konráð Alfreðsson Agnes Guðnadóttir
Sigurður Alfreðsson Sólborg Friðbjörnsdóttir
Sigurjón Alfreðsson Margrét Kristmannsdóttir
Blængur Alfreðsson Þórdís Þorvaldsdóttir
Kristín Alfreðsdóttir Ásgeir Stefánsson
afabörn og langafabörn
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt)
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri - S. 892 8947
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug, veittu okkur styrk á erfiðum
tímum í gegnum veikindi og andlát
okkar áskæra
Erlings Ingvasonar
byggingatæknifræðings,
Stóragerði 11, Reykjavík.
Alúðar þakkir færum við starfsfólki krabbameins-
deilda Landspítalans, Ljósinu, stuðningsaðilum í
Bandaríkjunum, Heimahlynningu Landspítalans og
starfsfólki Líknardeildar í Kópavogi fyrir kærleiksríka
umönnun í veikindum hans í gegnum árin og fram á
síðasta dag. Megi fjársjóður guðs, kærleikur, hamingja
og friður verða gjöf til ykkar allra inn á nýtt ár.
Birna Róbertsdóttir
Sveinn Erlingsson Christian Krebs
Soffía Erlingsdóttir
Hildur Erlingsdóttir Ástþór Helgason
Adam Freyr, Þóranna Vala, Kristófer Helgi
Helga Clara Magnúsdóttir Gísli Jónsson
Sandra Karen Magnúsdóttir
Alexander Róbert Magnússon