Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 111
LAUGARDAGUR 7. janúar 2012 67
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
Houston - Cincinnati
New Orleans - Detroit
Sunnudagur:
NY Giants - Atlanta
Denver - Pittsburgh
Liðin sem sitja hjá:
Green Bay Packers
New England Patroits
Baltimore Ravens
San Francisco 49ers
nfL Deildarkeppnin er búin og
alvaran byrjar í kvöld. Þá hefst
fyrsta umferð úrslitakeppninnar,
svokölluð „Wild Card“ helgi. Átta
lið spila um helgina en fjögur sitja
hjá í fyrstu umferð.
Einn áhugaverðasti leikurinn er
viðureign Denver og Pittsburgh í
Denver. Bíða menn spenntir eftir
því að sjá hvort leikstjórnandi
Denver, hinn heittrúaði Tim
Tebow, eigi inni eitt kraftaverk
í viðbót. Það vinnur með Denver
að aðalhlaupari Pittsburgh spilar
ekki og svo er leikstjórnandinn,
Ben Roethlisberger, meiddur á
ökkla en mun samt spila.
Heitasta lið deildarinnar um
þessar mundir, New Orleans,
mætir Detroit sem koma einna
mest liða á óvart í vetur. New
Orleans hefur verið að skora
afar mikið síðustu vikur og leik
stjórnandi þeirra, Drew Brees,
sló í vetur metið fyrir flesta kast
metra á einu tímabili. Spá því
margir að New Orleans fari alla
leið að þessu sinni.
Úrslitakeppnin og Super Bowl
leikurinn eru sýnd á ESPN
America sem má nálgast á fjöl
varpi Digital Ísland. - hbg
NFL-deildin:
Úrslitakeppnin
að hefjast
tim tebow Fær heimaleik gegn
Pittsburgh annað kvöld. nordic Photos/getty
HAnDboLti Ísland mætir í dag
Slóveníu á æfinga mótinu í Dan
mörku en þessi lið eru reyndar
einnig saman í riðli á EM í Serbíu
sem hefst eftir rúma viku.
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari landsliðsins, segir það
ekki endilega vera slæmt. „Þessi
mót eru skipulögð áður en dregið
er í riðla og því er einfaldlega
ekki hægt að forðast svona
lagað,“ segir hann. „Ég tel það
þess utan ekki vera slæmt að
mæta þeim nú – það gæti þess
vegna reynst okkur vel.“
Hann segir að þjálfarateym
ið muni fylgjast vel með öllum
leikjum Slóvena á mótinu. „Við
höfum líka verið að viða að okkur
efni með Noregi og Króatíu [sem
eru einnig með Íslandi í riðli] til
þess að greina leik þeirra.“
Ísland mætir Slóveníu í loka
umferð riðlakeppninnar 20.
janúar næstkomandi. - esá
Ísland mætir Slóveníu í dag:
Gæti reynst
okkur vel
guðmundur stýrir Íslandi gegn
slóveníu í dag, verðandi andstæðingum
Íslands á eM í serbíu. Fréttablaðið/steFán
Á MORGUN KL. 19:35VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
MAN.CITY
MAN.UTD.
BIKARSLAGUR AF BESTU GERÐ
Á SUNNUDAG KL 12:45
Englandsmeistarnir eiga harma að hefna eftir 1–6 tapið fyrir toppliði City í haust
LAUGARDAGUR
12:20 BIRMINGHAM - WOLVES
14:45 MACCLESFIELD - BOLTON
17:15 BRISTOL ROVERS - ASTON VILLA
3. UMFERÐ Í ENSKA BIKARNUM SUNNUDAG
12:45 MAN. CITY - MAN. UTD.
15:50 PETERBOROUGH - SUNDERLAND
MÁNUDAGUR
19:35 ARSENAL - LEEDS
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
HAnDboLti Íslenska karlalandsliðið
komst yfir brösuga byrjun og
slakan fyrri hálfleik og náði
að tryggja sér 3131 jafntefli
á móti Pólverjum í fyrsta
undirbúningsleiknum sínum fyrir
EM í Serbíu. Þetta var fyrsti leikur
landsliðsins á fjögurra þjóða
æfingamóti, Total Kredit Cup, sem
fram fer í Danmörku um helgina.
Pólverjar voru 1711 yfir í
hálfleik og með 2926 forystu
þegar fimm mínútur voru eftir.
Íslenska liðið vann lokakaflann 52
og línumaðurinn Kári Kristjánsson
skoraði jöfnunarmarkið af
miklu harðfylgni. Guðjón Valur
Sigurðsson fór á kostum í
leiknum og skoraði 13
mörk. Aron Pálmarsson
skoraði fimm mörk og
þeir Kári og Alexander
Petersson voru með
fjögur mörk hvor.
„Þetta var mjög
kaflaskipt. Þetta var
s l a k u r f y r r i
hálf leikur hjá
okkur eiginlega
á öllum sviðum
en mjög góður síðari hálfleikur
og það má jafnvel segja að hann
hafi verið frábær,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari.
„Þetta byrjaði illa en
strákarnir komu aldeilis
með réttu svörin í hálfleik
og leystu þetta mjög vel
bæði varnar og
sóknarlega. Það
var jákvætt að
enda þetta á
þennan hátt.”
„Þetta
va r ek k i
okkur samboðið í fyrri hálfleik.
Við gerðum alltof mikið af
tæknimistökum og afhentum
þeim boltann ítrekað. Ég hef
sjaldan upplifað annað eins því
menn voru bara á hælunum. Sem
betur fer vöknuðu menn í hálfleik
og komu mjög grimmir til leiks í
síðari hálfleik. Það var allt annað
að sjá til liðsins og þannig þarf
það að vera. Það tekur tíma að
spila liðið í gang og það er ágætt
að fá æfingaleikina til þess.
Þegar upp var staðið þá var þetta
mjög jákvætt hjá okkur,“ sagði
Guðmundur. - óój
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 13 mörk í 31-31 jafntefli handboltalandsliðsins við Pólverja í gær:
Sem betur fer vöknuðu menn í hálfleik
guðjón VaLur
13 mörk í gær.