Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 112
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR68
Það þýðir ekkert
annað en að halda
áfram að æfa vel og vera
tilbúinn þegar kallið kemur.
róbert gunnarsson
landsliðsmaður í handbolta
HAnDboLti Róbert Gunnarsson
hefur undanfarin ár gegnt algjöru
lykilhlutverki í íslenska landsliðinu
í handbolta. Það mun hann sjálfsagt
gera áfram en hann hefur þó fengið
lítið að spila með félagsliði sínu,
Rhein-Neckar Löwen, í Þýskalandi
að undanförnu.
„Ég er auðvitað ekkert sáttur
við sjálfan mig og mína stöðu.
Maður vill helst spila 60 mínútur í
hverjum einasta leik,“ segir Róbert.
„En ég vissi að ég myndi þurfa að
deila mínútunum með öðrum þegar
ég gekk til liðs við félagið á sínum
tíma. Svo hefur þeim bara fækkað,“
segir hann og brosir. „Maður
verður bara að taka því og læra af
mót lætinu. Það þýðir ekkert annað
en að halda áfram að æfa vel og
vera til búinn þegar kallið kemur.“
Öðruvísi á þýsku
Róbert er í þeirri óvenjulegu stöðu
að þjálfari hans hjá félagsliðinu
er einnig landsliðsþjálfari hans.
Hann segir að það skipti þó litlu
sem engu máli.
„Ég kynntist þessu þegar ég var
með Alfreð [Gíslason] á báðum
stöðum líka. Þetta er vissulega
skrýtið því félags liðs þjálfarinn
Guðmundur og landsl iðs -
þjálfarinn Guðmundur er ekki
sami maðurinn. Hann er öðruvísi á
íslensku heldur en á þýsku og þetta
tvennt er í raun alveg að skilið.“
Róbert segist þó ekki óttast
að hann sé ekki í nógu góðu leik-
formi fyrir landsliðið en viðtalið
var tekið áður en landsliðið hélt
utan til Danmerkur þar sem það
spilar á æfingamóti um helgina.
„Ég skil vel að það skuli vera ein-
hverjar efasemdir um það en það
verður þá bara að koma í ljós. Nú
fáum við þrjá leiki í Danmörku til
að fínpússa okkar leik og þá munu
allir leikmenn sjá hvar þeir eru
staddir. En það hjálpar mér eins og
öðrum hversu lengi flestir okkar í
landsliðinu hafa spilað saman. Ef
maður ætti að passa inn í eitthvað
lið þá væri það þetta. Ég mun ein-
beita mér að því jákvæða.“
Sjálfur hefur Guðmundur ekki
áhyggjur af því að Róbert sé ekki
í nægi lega góðu standi fyrir lands-
liðið. Hann sagði við Fréttablaðið
í desember síðastliðnum að þrátt
fyrir allt hafi Róbert fengið sínar
mínútur. „Robbi er í fínu standi en
það er við ramman reip að draga
þegar maðurinn sem hann er að
keppa við [Bjarte Myrhol] er að
spila mjög vel,“ sagði Guðmundur.
sama spurningamerkið
Róbert segir erfitt að meta stöðu
liðsins þar til að EM hefst í Serbíu.
„Þegar janúar hefst finnst mér
alltaf vera þetta sama spurninga-
merki yfir liðinu,“ segir Róbert.
„Æfingarnar ganga vel og menn
leggja sig fram. Svo þegar út í
alvöruna er komið sjá menn fyrst
hvernig þeir standa.“
Þess má svo geta að samningur
Róberts við Rhein-Neckar Löwen
rennur út í sumar. Hvað tekur við
er óvíst en Róbert hefur ekki átt í
viðræðum við önnur lið að undan-
förnu. „Það er ekkert í gangi eins
og er og þannig verður það þangað
til að mótinu lýkur í Serbíu. Menn
vilja sem minnst hugsa um svona
mál í miðju stórmóti í handbolta,“
segir Róbert. eirikur@frettabladid.is
Ég er ekki sáttur
við mína stöðu
Róbert Gunnarsson hefur lítið fengið að spila með
Rhein-Neckar Löwen en gegnir stóru hlutverki í
landsliði Íslands. Sami þjálfarinn er á báðum stöðum.
fúlskeggjaður róbert Gunnarsson á æfingu íslenska landsliðsins nú á dögunum.
fréttablaðið/stefán
HAnDboLti H reiða r L ev ý
Guðmunds son hefur fundið
sig vel á æfingum íslenska
landsliðsins síðan það hóf
undirbúninginn sinn fyrir EM
í Serbíu. Mótið hefst eftir rúma
viku en Hreiðar er í góðu formi
eftir að hafa spilað mikið með liði
sínu í Noregi.
„Mér líður vel. Ég er búinn að
æfa vel og það hefur verið mikið
um styrktar æfingar hjá liðinu
mínu í Noregi. Það er ekkert
nema gott um það að segja,“
segir Hreiðar sem hefur ásamt
Björgvini Páli Gústavssyni varið
mark íslenska landsliðsins með
miklum myndar skap undanfarin
ár.
Fyrir tímabilið gekk hann til liðs
við Nøtterøy sem situr nú í níunda
sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Honum líður vel þar en þar áður
lék hann með Emsdetten í þýsku
B-deildinni. „Mér leið svo sem
ekkert illa hjá Emsdetten en mér
hefur gengið mjög vel síðan ég
kom til Noregs. Ég óttaðist ekki að
þetta væri skref niður á við enda
mæti ég í hvert verkefni með því
hugarfari að standa mig eins vel
og ég mögulega get.“
Hreiðar spilar nánast hverja
einustu mínútu með Nøtterøy og
segir að sér hafi gengið vel. „Með
því fær maður aukið sjálfstraust
sem skiptir vitanlega miklu máli.
Ég er líka með öfluga vörn fyrir
framan mig en það er fyrst og
fremst sóknarleikurinn sem hefur
verið okkar vandamál.“
Þess má svo geta að Björgvin
Páll skipti einnig um lið í sumar
en hann leikur nú með Magdeburg
í þýsku úrvalsdeildinni. Samstarf
þeirra í landsliðinu hefur verið
gott og það breytist ekki. „Við
reynum ávallt að hjálpa hvorum
öðrum og skila sem mestu til
liðsins. Það er alltaf gaman að
hefja þessa janúartörn og nú
getur maður leyft sér að hugsa um
ekkert annað en handbolta næsta
mánuðinn.“ - esá
Hreiðar Levý Guðmundsson er í góðu formi fyrir Evrópumeistaramótið í Serbíu sem hefst eftir rúma viku:
Hef fengið aukið sjálfstraust með Nøtterøy
hreiðar levý mun væntanlega verja
mark íslenska landsliðsins á em í serbíu
ásamt björgvini Páli Gústavssyni. hér
eru þeir félagar saman eftir stórsigur
íslands á austurríki í undankeppni em í
vor. fréttablaðið/Pjetur
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
49
83
4
frá kr. 75.900
með gistingu í 7 nætur.
Einstakt tækifæri!
31. janúarKanarí
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 31. janúar í 7 nætur á frábæru tilboði. Í
boði er m.a. frábær sértilboð á hinum vinsælu íbúðarhótelum Parque Sol og Jardin del Atlantico.
Einnig Barcelo Margaritas **** hótelinu með öllu inniföldu ásamt öðrum hótelum. Ekki missa af
þessu einstaka tilboði. Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Verð getur hækkað án fyrirvara!
Kr. 75.900 – Parque Sol
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með
2 svefnherbergjum á Parque Sol í 7 nætur.
Verð m.v. 4 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 82.800 á mann.
Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 99.900 á mann.
Kr. 109.900 – Jardin del Atlantico með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð í 7 nætur.
Kr. 105.500 – Barcelo Margaritas með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi í 7 nætur.
Verð m.v. 2 fullorðna í herbergi 124.900.
Komdu að æfa sund
Sund er holl og góð alhliða íþrótt sem sameinar líkamsrækt,
leik, aga og slökun í góðum félagsskap
SUNDDEILD ÁRMANNS
Býr yfir áralangri reynslu í sundkennslu og þjálfun. Þjálfun er miðuð út frá aldri og getu hvers og eins.
Allir velkomnir að koma á æfingar og prufa!
Sundæfingar og kennsla eru í boði á eftirtöldum stöðum:
Sundhöll Reykjavíkur—byrjendur frá 6 ára aldri
Laugardalslaug—frá 6 ára byrjendum upp í afrekshópa
Árbær—Ungbarnasund, Sundskóli fyrir 2-6 ára, æfingar fyrir 6 ára og eldri
Allar nánari upplýsingar á www.armenningar.is
Upplýsingar um sundþjálfun—Þuríður yfirþjálfari, sími 691-7959 og thurye@internet.is
Ungbarnasund og sundskóli—Stella sími 557-6618 e.kl. 17 og stella.gunnars@gmail.com