Fréttablaðið - 07.01.2012, Page 24
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR24
Frosin augnablik
Hátt í tvö hundruð ljósmyndir bárust í samkeppni
Fréttablaðsins og Vísis, þar sem þemað var vetrarríkið sem
fæstir Íslendingar hafa farið varhluta af að undanförnu. Hér
gefur að líta þær ljósmyndir sem dómnefnd taldi bera af.
2. sæti Tunglið lýsti upp vetrarkvöldið þegar Ásta Magnúsdóttir tók þessa mynd af fossinum Faxa í
Tungufljóti í Bláskógabyggð í nítján stiga frosti í desember. Hún hafnaði í öðru sæti í ljósmyndasamkeppni
Fréttablaðsins og Vísis og fékk að launum tvo miða í Borgarleikhúsið. Mynd/ÁsTa MagnúsdóTTir
3. sæti Á gamlársdag hittust eigendur sleðahunda og léku sér á sleðum á reykjavíkurtjörn og nágrenni.
Helgi skúlason fylgdist með leiknum og fangaði þetta augnablik þegar sleðahundarnir Ívan, Kanuck, Koda
og Chivas gáfu heppnum farþegum salíbunu um Hljómskálagarðinn. Mynd Helga hafnaði í þriðja sætinu í
ljósmyndasamkeppninni og fékk hann tvo miða í Borgarleikhúsið að launum. Mynd/Helgi sKúlason
4.–5. sæti Vetrarklæðin nýtast hestunum vel þessa dagana, rétt eins og mönnunum, eins og þessi mynd
eftir Þorstein Kjartansson sýnir. Mynd/ÞorsTeinn KjarTansson
4.–5. sæti Fátt er notalegra en að ylja sér við eld í köldu veðri og ekki skemmir kakó og kleina
stemninguna. Craig downing tók þessa mynd við reykjavíkurtjörn. Mynd/Craig downing
„Ég var búinn að vera í fjóra tíma á
svæðinu. svo komu um 10 mínútur af
mjög ákveðinni birtu og stemningu.
Þá náði ég þessari mynd,“ segir olgeir
andrésson, sem bar sigur úr býtum
í ljósmyndasamkeppni Fréttablaðs-
ins og Vísis, þar sem þemað var
vetrarríkið. Myndin prýðir forsíðu
Fréttablaðsins í dag. olgeir er mikill
ástríðuljósmyndari og hefur sérhæft
sig í að mynda dans norðurljósanna.
Myndir hans má skoða á vefsíðunni
http://olgeir.zenfolio.com.
Verðlaunin fyrir 1. sætið eru
stafrænn Philips myndarammi frá
sjónvarpsmiðstöðinni og tveir miðar í
Borgarleikhúsið.1. sæti Olgeir Andrésson