Fréttablaðið - 07.01.2012, Side 36

Fréttablaðið - 07.01.2012, Side 36
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR36 Fyrstu netföngin eftirminnileg Tölvupóstur og internet þykja hversdagslegir hlutir í dag en mörgum er í fersku minni ýmislegt sem tengist árdaga þessara tækninýjunga. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Kjartan Guðmundsson fræddust um fyrstu reynsluna hjá nokkrum. Það var mamma Hólmfríðar Önnu Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa UNICEF á Íslandi, sem upplýsti hana um að það væri hægt að senda bréf í gegnum tölv- una. „Ég man að þetta vakti með mér ótrúlega undrun. Hún kenndi mér að senda bréf til þáverandi ísraelsks kærasta míns, sem var bylting, því ég hafði skrifast á við hann í langan tíma með mikilli fyrirhöfn. Hins vegar á ég enn tugi ástarbréfa einhvers staðar í kassa, en tölvupóstsamskiptin eru horfin í svarthol internets- ins.“ Hún valdi sér netfangið hab313, sem er bílnúmer Andrésar andar. Það er hins vegar annað netfang sem Hólmfríður Anna hefur sérstakt dálæti á og notar enn í dag fyrir persónuleg samskipti. „Snemma árs 2008 var ég á leiðinni til Gíneu-Bissá á vesturströnd Afríku til starfa hjá UNICEF í þrjá mánuði. Ég átti 30 ára afmæli í lok árs 2007 og þá gáfu vinkonur mínar mér meðal annars bloggsíðu, svo ég gæti bloggað um ferðina mína. Til þess að stofna bloggið urðu þær líka að stofna gmail reikning, svo vinkonur mínar eiga allan heiðurinn af tölvupóstfanginu afrikudrottningin@gmail.com.“ Þegar hún lenti Gíneu-Bissá var kona á flugvellinum með spjald þar sem á stóð „African Queen“. „Ég hélt auðvitað að þær eða samstarfsfólk mitt heima væri eitt- hvað að grína í mér og spurði hvort hún væri að leita að mér. Það reyndist ekki vera og það var vægast sagt vandræðalegt að snúa til baka í vegabréfsröðina með almúganum.“ n Með bílnúMer AndrésAr AndAr Bylting Það var bylting í lífi Hólmfríðar Önnu Baldursdóttur þegar hún fór að geta sent ísraelskum kærasta bréf í gegnum internetið. Núna eru þau hins vegar horfin í svarthol internets- ins. FréttaBlaðið/ Eftirminnilegasta neftangið mitt, bæði fyrir mig og aðra held ég, er eistlagreip@yahoo.com,“ segir Brynhildur Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður. Nafnið má rekja til menntaskólaáranna. „Þegar ég var í MH, löngu fyrir tíma alnetsins, vantaði mig ein- hverntíma listamannsnafn fyrir einhverja uppákomu og ákvað, eins og sannur menntskælingur, að leita í Snorra Eddu að ein- hverju nógu frumlegu og öðruvísi. Og mér tókst það held ég ágæt- lega, þar fann ég systurnar Eistlu og Greip sem eru tvær af níu mæðrum Heimdallar. Þetta fannst mér alveg gráupplögð sam- setning og notaði nafnið Eistla Greip Soebeck við ýmis tækifæri, og skrifaði það á ótaldar greiðslukortakvittanir. Þótti því alltaf vænt um nafnið.“ Hún stofnaði hins vegar ekki eigin tölvupóst fyrr en tiltölulega seint, eða um tíu árum eftir stúdentspróf. „Þá var allt sem tengdist nafninu mínu meira eða minna upptekið og ekki nennti ég að vera brynhildurbjornsdottir245@hotmail.com. Rifjaðist þá upp fyrir mér mín gamla góða vinkona, Eistla, og ég ákvað að hleypa henni út á víð- lendi veraldarvefsins og stofnaði netfangið eistlagreip@hotmail.com. Ég þarf svo ekki að fara út í það í smáatriðum hvað það var alltaf létt- leikandi að gefa netfangið mitt munnlega, fá fólk til að muna það og skrifa rétt. En bót í máli var að útlendingar hefðu sennilega ruglast meira í brynhildurbjornsdottir354.“ n eiTThvAð fruMlegT og öðruvísi Eistla grEip Það er ekki víst að allir tölvupóstar til Brynhildar Björnsdóttur dagskrárgerðarmanns hafi skilað sér á þeim árum þegar hún notaði netfangið eistlagreip@yahoo.com. Það tók hana iðulega langan tíma að fá fólk til að muna það og stafsetja það rétt. FréttaBlaðið/valli Fyrsti tölvupósturinn sem ég sendi var til kærastans míns, en hann var sá eini sem ég þekkti sem var með tölvupóstfang árið 1994. Ég þurfti að læra aðeins á UNIX til að komast í póstinn en tölvuskjárinn var svartur með appelsínugulum stöfum og mér þótti þetta alveg hrikalega spennandi,“ segir Kristín Eva Þórhalls- dóttir, þegar hún rifjar upp fyrstu kynni sín af tölvu- póstsamskiptum. „Fyrsta tölvupóstfangið mitt fékk ég svo hjá Marg- miðlun, en það var þeim takmörkunum háð að það mátti aðeins innihalda níu stafi, en nafnið mitt hefur tíu. Þá var brugðið á það ráð að skammstafa nafnið mitt Keva og netfangið varð keva@margmidlun.is Þegar fleiri en kærastinn minn fengu tölvupóstfang og ég sendi fleiri pósta fóru formlegheitin af bréfaskriftunum hallandi fæti og ég skrifaði Keva undir alla pósta sem ég sendi. Í kjöl- farið varð þetta að gælunafni mínu og margir kalla mig Kevu í dag.“ n neTfAngið vArð Að gælunAfni KEva Kristín Eva Þórhallsdóttir dagskrárgerðarmaður sendi sinn fyrsta póst til kærastans síns árið 1994. Hún þurfti fyrst að læra aðeins á UNiX-stýrikerfið, en tölvuskjárinn var svartur með appelsínugulum stöfum. FréttaBlaðið/valli Þegar ég var fimmtán ára spurði ég Karl Tómasson, trommara í Gildrunni, hvort ég gæti ekki fengið að sjá um opnu fyrir ungt fólk í blaðinu Sveitungi, sem Karl rit- stýrði og kom út í Mosfellsbæ. Ég fékk það í gegn og opnan fékk heitið Leiðindi, en þar bullaði ég einhver ósköp og skáldaði viðtöl við fólk. Í gegnum þessa opnu fékk ég net- fangið leidindi@hotmail.com, sem ég skipti síðan yfir í leidindi@gmail.com. Þetta er bara netfangið mitt og ég hef aldrei viljað breyta því,“ segir grínistinn Steindi Jr, en bætir við að á stundum komi þetta óvenjulega netfang illa við fólk. „Til dæmis þegar fólk er að segja mér frá einhverj- um óáhugaverðum hlutum og ég gríp fram í og segi: „Hentu þessu bara á leidindi@gmail.com! Ég gæti allt eins gefið þeim einn „gúmoren“ á‘ann,“ segir hann og skellir upp úr. Grínistinn man það eins og gerst hafi í gær þegar hann fór í fyrsta sinn á internetið: „Þá þurfti að hringja inn internet- ið, sem brast í gang með miklum óhljóðum, og ég beið í um fjörutíu mínútur eftir að mynd af Pamelu Anderson í bikiníi birtist hægt og rólega á skjánum. Það var mikill metnaður í þessu hjá mér. Ég var svo skotinn í henni á þessum tíma og biðin var vel þess virði. Ég veit ekki hvort svona bið eftir mynd af Pamelu yrði þess virði í dag.“ n AllTAf Með leiðindi Ég man vel hvernig netfangið sem ég nota í dag, kom til. Það eru fjöldamörg ár síðan,“ segir Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur. „Ég tók þátt í leikþáttasamkeppni sem Borgarleikhúsið efndi til og skipulagið var þannig að fólk átti að senda handritin inn rafrænt – en samt undir dulnefni. Eina ráðið var því að búa sér til netfang sem ekki var rekjanlegt, gaf hvorki upp nafn né vinnustað. Ég bjó í fljótheitum til hotmail-reikning og valdi ávöxt af handahófi, prófaði ananas, epli og appelsínur en þau voru öll upptekin. Það fyrsta sem reyndist laust var sitronur@hotmail.com og ég stökk á það. Þetta furðulega netfang er ennþá einkanetfangið mitt, því ég sá fljótt ótvíræða kosti við að eiga einkanetfang en láta ekki öll erindi fara í gegnum Moggapóstinn, þar sem ég starfaði.“ Netföng starfsmanna á Morgunblaðinu voru kapítuli út af fyrir sig að sögn Sigurbjargar. „Yfirleitt voru netföngin mynduð úr tveimur fyrstu stöfum skírnarnafns og tveimur fyrstu stöfum eftirnafns. Mitt var þannig sith@mbl.is, sem Stjörnustríðsaðdáendum bæjarins þótti mjög smart, enda kom á svipuðum tíma út myndin Revenge of the Sith. Stundum gegndi ég jafnvel nafninu Sith á göngum hússins og svipað gilti um fleiri – netföngin festust við starfsfólkið.“ Netföng tveggja samstarfskvenna Sigurbjargar á Mogganum eru henni sérstaklega minnisstæð. „Fríða Björg Ingvarsdóttir var með fbi@mbl.is, sem vakti lukku erlendra viðmælenda. Þá er ógleyman- legt netfangið eyrun@mbl.is, sem Eyrun Magnúsdóttir átti og varð tilefni margra brandara um eyru, eyrnaverki og fleira. Það var engu líkara en að innan Moggans væri sérdeild sem tæki við kvörtunum á: eyrun@mbl.is.“ n öfunduð Af sTjörnusTríðsAðdáenduM sith Stjörnustríðsaðdáendur voru sérstaklega hrifnir af netfangi Sigurbjargar Þrastar- dóttur rithöfundar, þegar hún vann á Morgunblaðinu, sith@mbl.is. FréttaBlaðið/Gva Íris Kristjánsdóttir tölvunörd fékk sitt fyrsta tölvupóstfang árið 1997, en löngu áður hafði hún fyrst frétt af þeirri nýjung að hægt væri að senda rafræn bréf í sjónvarpsþættinum Nýjasta tækni og vísindi. „Enginn af vinum mínum var nörd þannig að það eina sem mér barst voru Microsoft fréttabréf. Ég las þau bara af því þetta var allt svo merkilegt og hátæknilegt, gat ekki hætt að tala um þetta og var nánast sett í sóttkví af foreldrum mínum þar sem allir voru með stjarfaklofa af leiðindum.“ Fyrsta netfang Írísar var iris_vixen@hotmail. com, sem hún notar enn þann dag í dag. „Vixen þýðir tófa eða kvenkyns refur. Ég man að mér fannst það sjúklega töff, eins og beint úr mynd- inni Hackers. Mér fannst þetta tilvalið netfang ef ég skyldi gerast tölvuþrjótur, en svo hélt ég bara áfram að lesa Microsoft fréttabréf,“ segir hún og hlær. „Ég ætti kannski að endurskoða hversu smart það er, núna þegar ég er er komin á fertugsaldurinn og er í atvinnuleit.“ n sjúklegA Töff TófA steindi Jr., grínisti sigurbjörg Þrastardóttir, rithöfundur Brynhildur Björnsdóttir, dagskrárgerðarmaður Kristín Eva Þórhallsdóttir, dagskrárgerðarmaður Íris Kristjánsdóttir, tölvunörd hólmfríður anna Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi UniCEF á Íslandi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.