Fréttablaðið - 07.01.2012, Page 80

Fréttablaðið - 07.01.2012, Page 80
Kynning − auglýsingHeilsa LAUGARDAGUR 7. janúar 20126 Meirihluti fólks dvelur á vinnustað sínum mestan hluta dagsins. Flestir sem vinna á skrifstofum sitja við tölvuskjá allan daginn og það getur engan veginn talist sérlega heilsusamlegt. Með smá hugkvæmni er þó ýmislegt hægt að gera til að huga að heilsunni í vinnutímanum. Gerðu leikfimisæfingar við skrifborðið. Það kann að vekja hlátur vinnufélaganna til að byrja með og þú mátt búast við neyðarlegum athugasemdum en ef þú kippir þér ekki upp við slíkt er það margfaldlega þess virði. Ýmsar æfingar er hægt að gera sitjandi og hér eru nokkur dæmi: Axlir Hreyfðu axlirnar í hringi fram og til baka, það mýkir vöðvana og losar um spennu. Úlnliðir og ökklar Hreyfðu hendur og fætur í litla hringi. Að hreyfa úlnliðina er sérstaklega gott fyrir þá sem verja mestum tíma sínum pikkandi á lyklaborð. Snúningur um ökklana eykur blóð- flæðið í fótunum og getur komið í veg fyrir blóðtappa. Magavöðvar Það er auðvelt að æfa magavöðvana við skrifborðið án þess að nokkur taki eftir því. Dragðu vöðvana inn og haltu þeirri stöðu í nokkrar sekúndur og andaðu djúpt að þér á meðan. Slepptu og andaðu frá þér. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum í einu nokkrum sinnum á dag. Drekktu mikið af vatni Vatnsdrykkja kemur þér til góða á margan hátt. Því meira vatn sem þú drekkur því ólíklegra er að þú látir freistast til að fá þér aukabita. Vatnið slær á svengdartilfinningu og vatnssopi gerir sama gagn og súkkulaðibiti ef ástæðan fyrir súkkulaðiátinu er eingöngu sú að þér leiðist. Vatnsdrykkja getur komið í verk fyrir höfuðverk sem margir fá af því að stara á tölvuskjáinn tímunum saman. Að ná í vatn gefur þér ástæðu til að standa upp og hreyfa þig. Ef þú stenst ekki mátið að fá þér aukabita passaðu þá upp á að narta í eitthvað heilsusamlegt. Fáðu þér ávöxt eða heilsustöng í stað súkkulaðis eða kartöfluflagna. Taktu stuttar pásur Stattu upp og gakktu um eða farðu út augnablik og andaðu að þér fersku lofti. Ef þú þarft að eiga samskipti við vinnufélagana stattu upp og gakktu til þeirra í stað þess að hringja eða senda tölvupóst. Það á eftir að koma þér á óvart hversu mikið munar um það að hreyfa sig pínulítið fyrir nú utan það að samskipti augliti til auglitis eru mun meira gefandi en þau vélrænu. Kannski þykir mörgum þessi litlu skref ekki merkileg en ef þú prófar mun það koma þér á óvart hvað þér líður mikið betur í vinnunni. Stundaðu heilsurækt og hollustu á vinnustaðnum Mér finnst ég hafa endurheimt lífið með því að fá þessa spelku. Hún gerir mér kleift að gera ýmislegt sem ég var búin að útiloka, eins og að ferðast um heiminn,“ segir Helga Rún Pálsdóttir, klæðskerameistari um Unloader One hnéspelku sem fyrirtækið Össur framleiðir. Hún meinar greinilega hvert orð. Helga er innan við fimmtugt en hefur átt við hnémeiðsli að stríða í mörg ár. Sextán ára gömul fór hún að fá verki í hægra hnéð, það átti til að bólgna upp og festast, líkt og hnéskelin gengi til, en á þeim tíma var hún að læra dans. Síðar vann hún á saumavél sem jók á verkina, svo hún segir hluta vandans áunninn. Hún fór í liðþófaaðgerð fyrir tveimur árum sem ekki gaf þann árangur sem vænst var og því var útlitið ekki bjart. Nú er Helga Rún búin að vera með Unloader One spelkuna í hálft ár og segir lífið hafa breyst fljót- lega eftir tilkomu hennar. „Eftir tíu daga notkun á spelkunni fór ég að finna mikinn mun á minni líðan,“ segir hún en viðurkennir þó að hafa líka fundið fyrir neikvæðum tilfinningum. „Mér fannst svolítið áfall að þurfa bera svona aðskotahlut og setti fyrir mig þætti eins og að þurfa að breyta klæðaburði − bara svona týpískt pjatt. Spurði ein- mitt stoðtækjafræðinginn minn hvort ég gæti ekki fengið annan lit þar sem ég gengi eiginlega aldrei í gráu! Mér finnst fyndið að hugsa til þess núna. Ég get ekki án spelkunnar verið í dag og þegar ég er spurð hvað ég sé með þá kalla ég þetta „minn hægri fót,“ segir Helga Rún og hlær. Helga er menntaður klæðskerameistari, fata- hönnuður, leikmynda-og búningahönnuður og hattagerðarkona. Vinnudagur hennar er oft lang- ur við saumaskap og námskeiðahald í eigin fyrir- tæki og vinnu í leikhúsum og sjónvarpi, jafnvel við útitökur í ólíkum aðstæðum, enda kveðst hún vera vinnualki eins og margur Íslendingurinn. „Þegar álagið var hvað mest og verkir í hnénu voru óbæri- legir íhugaði ég að skipta um starf en tilhugsunin um það gerði mig dapra,“ segir hún og bætir við. „Ef ég hefði ekki fengið þessa frábæru spelku væri ég núna eflaust búin að þurfa að breyta mörgu í lífi mínu og væri komin á bætur.“ Finnst ég hafa endurheimt lífið Hnéspelka sem fyrirtækið Össur framleiðir hefur reynst sem kraftaverk fyrir fólk sem þjáist af slitgigt eða öðrum vandamálum í hnjám. Þeirra á meðal er Helga Rún Pálsdóttir, klæðskerameistari, hönnuður og hattagerðarkona. Hún hefur athyglisverða sögu að segja. „Þegar álagið var mikið og verkir í hnénu voru óbærilegir íhugaði ég að skipta um starf en tilhugsunin um það gerði mig dapra,“ segir Helga Rún. Verkjameðferð án lyfja Unloader One hnéspelkan veitir stuðning og minnkar verki og gerir notendum kleift að ganga með hana allan daginn. Í Unloader One spelkunni eru tveir borðar sem létta álagi af slitnum liðflötum og auðvelda fólki með verki í hnjám að stíga í fótinn. Borðarnir aðlagast hreyfingum sem gerir það að verkum að álagið flyst af slitna liðfletinum yfir á þann heila. Notendur Unloader One hnéspelkunnar svitna síður af henni en öðrum sambærilegum hnéspelkum. Sá hluti spelkunnar sem liggur næst húðinni er gatað sílíkon sem hleypir lofti í gegn og gerir húðinni kleift að anda vel. Með notkun sílíkons er Össur að styðjast við áralanga reynslu sína á því sviði. Nánari upplýsingar í síma 425 3400 Heimild/ossur.is Þegar Kuldinn bítur Fyrir þá sem stunda útivist að vetrinum er hlýr og góður klæðnaður lykilatriði. Fátt er meira niðurdrepandi á gönguför um ís og hjarn en kaldar tær og dofnir fingur. Þá er góð húfa líka lífsnauðsyn þegar kuldinn bítur. Þeir sem eru aumir í hnjám mega illa við því að verða kalt svo legghlífar ættu að vera staðalbúnaður í þeirra útivistarfatnaði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.