Fréttablaðið - 07.01.2012, Page 82

Fréttablaðið - 07.01.2012, Page 82
Kynning − auglýsingHeilsa LAUGARDAGUR 7. janúar 20128 Nýtt ferðaár er að hefjast hjá Ferða-félagi Íslands, FÍ. Að sögn fram-kvæmdastjóra félagsins, Páls Guð- mundssonar, er fjöldi spennandi viðburða framundan. Fyrst ber að nefna verkefnið Eitt fjall á viku, sem eins og heitið gefur til kynna, gengur út á að fara á eitt fjall á viku. Byrj- að er á léttari fjöllum í nágrenni Reykja- vík en síðan verða fjöllin erfiðari og meðal annars er gengið á Hvannadalshnúk í maí. Í þessu verkefni er meðal annars boðið upp á grunnkennslu í fjallamennsku á námskeið- um í höfuðstöðvunum í Mörkinni 6, þar sem farið verður yfir öryggismál, búnað, rötun, nesti og fleira, en meðan á verkefninu sjálfu stendur kennum við fólki að fara í fjallgöng- ur á eigin vegum,“ segir Páll og getur þess að þetta sé þriðja sinn sem farið er af stað með verkefnið. Ekkert lát hafi orðið á vinsældum þess sem sjáist af því að árlega skrái um 150 manns sig til leiks. „Þá höfum við einnig í samræmi við óskir þátttakenda farið af stað með bæði fram- haldsnámskeið og önnur námskeið. Eitt kall- ast Eitt fjall á mánuði þar sem einu sinni í mánuði er gengið á fjöll af öllum stærðum og gerðum í nærumhverfi Reykjavíkur,“ tekur Páll sem dæmi og segir það henta þeim sem eru ekki tilbúnir í jafn mikla skuldbindingu og fylgir námskeiði eins og Einu fjalli á viku. Að Páls sögn reynir talsvert meira á kunn- áttu, þrek og úthald þátttakenda á tveimur öðrum námskeiðum sem Ferðafélagið býður upp á. „Stefnan er sett á stærri fjöll, mikið til í kringum Öræfajökul. Á öðru þeirra, Um- hverfis Vatnajökul, er gengið kringum jök- ulinn í sex leiðöngrum á þremur árum. Það hefst í maí og takmarkaður fjöldi þátttak- enda kemst að.“ Páll segir FÍ bjóða fjölda annarra áhuga- verðra ferða, dagsferðir, helgarferðir, sum- arleyfisferðir, allt frá einföldum gönguferð- um um borgina upp í krefjandi jöklaferðir. Um þær megi fræðast í ferðaáætlun félags- ins sem kemur út þann 21. janúar, sem verð- ur á prentformi og netinu. „Skíðafólk, jeppa- og sleðamenn hafa ærna ástæðu til að gleðjast þar sem útlit er fyrir góðan og snjóþungan vetur og ætlum við meðal annars að bjóða upp á skála- vörslu í Landmannalaugum og jafnvel víðar þar sem skálaverðir taka vel á móti gestum,“ segir Páll og bendir á að allar nánari upp- lýsingar megi nálgast á heimasíðu félagsins, www.fi.is. Þar sé skráning þegar hafin. Viðburðaríkt ár framundan Dagskrá Ferðafélags Íslands er sneisafull af skemmtilegum og spennandi gönguferðum á nýju ári segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi því leiðin liggur bæði eftir auðveldum gönguslóðum í nærumhverfi borgarinnar og upp á hæstu tinda landsins. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Ferðafélagi Íslands, segir fjölbreyttar ferðir í boði á nýju ári, fyrir byrj- endur sem lengra komna. mynd/anton Á leið á Hvannadalshnúk. Kaffipása á leið á Snæfellsjökul. Fótboltaskólar eru reknir í tengslum við ýmis íþróttafélög. Þar geta bæði stelpur og strákar lært grunntæknina í knatt- spyrnu en saman við er blandað leik og gleði..Flestir krakkar elska að svamla um og leika sér í vatni. Sundnámskeið eru því afar vinsæl meðal yngstu kynslóðarinnar. Þó börnin verði kannski ekki synd á einu námskeiði læra þau að bjarga sér í vatni, leika sér, kafa og láta sér líða vel. Dans er fínasta líkamsrækt fyrir unga krakka en einnig kennir hann þeim tækni og aga. Krakkar, allt frá þriggja ára aldri, geta farið í dansforskóla bæði í ballett og samkvæmis- dönsum. Fimleika er hægt að stunda frá unga aldri. Íþróttin eflir bæði vöðva og jafnvægi.Gott er að byrja sem fyrst að læra á skíði ef árangurinn á að verða sem bestur. Í boði fyrir börnin Hreyfing er mikilvæg hvort sem fólk er þrítugt, áttrætt eða þriggja ára. Ýmislegt er í boði fyrir yngstu börnin enda hafa þau mikla hreyfiþörf og þykir fátt skemmtilegra en að hlaupa um, hoppa og hía.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.