Fréttablaðið - 31.03.2012, Qupperneq 2
31. mars 2012 LAUGARDAGUR2
MALLORCAsólareyjan sem hefur allt!
Aparthotel Mara
caibo
75.900 kr.*á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð
með 1 svefnherbe
rgi. verð frá 89.9
00 kr
á mann m.v. 2 fu
llorðna.
Brottför: 22. maí
- 7 nætur.
Verð frá:
Flug + gisting í 7
nætur
tilbo
ð
Bókaðu núna á plúsferðir.is!
SPURNING DAGSINS
FÓLK „Ég er gríðarlega þakklát
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni
á Íslandi, útfararstofunni, heiðurs-
konsúl Letta hér á landi og öllum
öðrum sem gerðu mér kleift að
koma hingað til að kveðja son
minn.“ Þetta segir Tamara Aldoh-
ina frá Lettlandi, en hún er stödd
hér á landi til að fylgja syni sínum,
Aleksandzs Aldohins, til grafar.
Aleksandzs lést í febrúar, en
hann hafði búið hér og starfað síð-
ustu sex árin. Dánarbú hans stóð
ekki undir kostnaði við útför og
Tamara hafði engin ráð til að safna
fé fyrir athöfninni. Hún segir að
gott fólk hér á landi hafi þá komið
til sögunnar. Jón Snorrason heið-
urskonsúll hafi aðstoðað við alla
skipulagsvinnu og rétttrúnaðar-
kirkjan séð henni fyrir flugmiða
og uppihaldi á meðan hún kveð-
ur son sinn. Þá hafi Útfararstofa
kirkjugarðanna sýnt drengskap.
„Ég átti ekki fyrir útförinni og
þetta var búið að dragast lengi.
Hann lést 25. febrúar þannig að
það var ekki hægt að bíða lengur.
Útfararstofa kirkjugarðanna sam-
þykkti að sjá um athöfnina án þess
að hafa nokkra tryggingu fyrir
því að fá hana nokkurn tímann
greidda. Fyrir það er ég mjög
þakklát.“
Arnór L. Pálsson, framkvæmda-
stjóri útfararstofunnar, segir að
ekki hafi verið hægt annað en að
hlaupa undir bagga þegar syrgj-
andi móðir væri komin til lands-
ins til að kveðja son sinn. Ekki hafi
verið hægt að láta Tamöru fara
erindisleysu og það verði bara að
koma í ljós hvort stofan fái kostn-
aðinn nokkurn tímann greiddan.
„Þetta er bara eitt af þessum
tilvikum þar sem engir peningar
voru til. Þetta kemur sárasjaldan
fyrir og er eiginlega alveg sérstakt
tilvik. En auðvitað verður að leysa
svona mál og þegar enginn er til að
leysa þau þá gerum við það bara.“
Jón Snorrason, heiðurskonsúll
Letta, segir Útfararstofuna og
rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna
hafa gert kveðjustundina að veru-
leika. Hann hafi aðeins að stoðað
við að koma málinu í kring, til
dæmis við að fara í gegnum búið.
„Mér finnst þetta stórkostlegt og
átti ekki von á því að þetta væri
hægt. Upphaflega var það útfarar-
stofan sem var svo lipur að tryggja
að útförin gæti átt sér stað. Síðan
kemur réttrúnaðarkirkjan til
sögunnar og sér um ferðalag henn-
ar og uppihald. Ég tek undir það
með Tamöru að þessum aðilum ber
að þakka.“
Aleksandzs hafði verið í stéttar-
félagi og greitt í lífeyrissjóði. Það
dugði hins vegar ekki til að fá
framlag í útförina, en hann var
einhleypur og barnlaus. Jarðarför
hans fór fram í gær.
kolbeinn@frettabladid.is
Þakklát þeim sem
aðstoðuðu við útför
Móðir lettnesks manns sem lést á Íslandi er þakklát þeim sem gerðu henni
kleift að fylgja syni sínum til grafar. Útfararstofa kirkjugarðanna leggur út fyrir
útförinni og rússneska rétttrúnaðarkirkjan borgar flug og uppihald konunnar.
ÞAKKLÁT MÓÐIR Tamara er öllum þeim sem gerðu henni kleift að kveðja son sinn
þakklát. Hún er hér fyrir miðri mynd ásamt vinkonu sonar hennar, Renate Romans
Kolinka og séra Timur Zolotuskiy, presti rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég átti ekki fyrir
útförinni og þetta var
búið að dragast lengi. Hann
lést 25. febrúar þannig að
það var ekki hægt að bíða
lengur.
TAMARA ALDOHINA
VIRKJANIR Þingsályktunartillaga um
rammaáætlun um vernd og nýtingu
náttúrusvæða leit loksins dagsins
ljós í gær. Nokkuð hafði verið beðið
eftir henni, en hún hafði verið
boðuð í lok janúar. Oddný G. Harð-
ardóttir iðnaðarráðherra lagði til-
löguna fram í samráði við Svandísi
Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
Tillagan er að mestu samhljóða
drögum sem lögð voru fram til
umsagnar í haust, en þar voru 69
virkjanakostir metnir. Tvö svæði
eru þó færð úr nýtingarflokki
í biðflokk, að sögn vegna nýrra
upplýsinga sem fram hafi komið í
samráðsferlinu. Það eru virkjanir
í neðrihluta Þjórsár og virkjanir á
hálendinu; Skrokkölduvirkjun og
Hágönguvirkjanir I og II.
Hvað Þjórsá varðar er sagt skyn-
samlegt að afla frekari upplýsinga
varðandi laxagengd. Hinar fyrir-
huguðu hálendisvirkjanir eru
skammt frá Vatnajökulsþjóðgarði
og í umsagnarferlinu kom fram
að áhrif virkjana á verndarsvæði
þjóðgarðsins hafi ekki verið metin
samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum.
Þá er hert á atriðum er snúa
að brennisteinsmengun og niður-
dælingu í tillögunni og tveir
virkjana kostir, Eyjadalsárvirkjun
og Hveravellir, felldir út þar sem
í ljós kom að þeir féllu utan gildis-
sviðs laga sem tillagan vísar til.- kóp
Þingsályktunartillaga um rammaáætlun var lögð fram á Alþingi í gær:
Lagt til að Þjórsá fari í biðflokk
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
Þór, verðið þið þá með
hlægilegt verð?
„Já, þau verða sprenghlægileg og
góð.“
Þór Bæring Ólafsson hefur stofnað ferða-
skrifstofuna Gamanferðir ásamt félaga
sínum.
KOSNINGAR Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lögum,
býður sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta
tilkynnti hún á blaðamannafundi í Listasafni
Reykjavíkur í gær.
Herdís sagði framboð sitt vera lýðræðistilraun,
að láta á það reyna hvort fólkið í landinu væri
máttugra en fjármálaöflin, sem hafi skert grund-
völl lýðræðisins. Hún ætli í framboði sínu að leggja
áherslu á virkara lýðræði og aukin mannréttindi.
Þeir sem hafi skorað á hana að bjóða sig fram deili
þessari skoðun með henni. „Framboð mitt byggir
á því að hver maður sé jafnborinn til virðingar og
réttinda er eigi verði af honum tekin og það er und-
irstaða réttlætis og lýðræðis. Völdin eiga að koma
frá okkur, fólkinu, og þau ber að nota í okkar þágu,“
sagði Herdís á fundinum.
Herdís sagði málskotsrétt forseta bera að beita af
varkárni, „en þjóðin þarf jafnframt að geta treyst
því að forseti Íslands hafi burði til að beita þessum
rétti ef þörf krefur.“ Framboð Herdísar verður
rekið með lágmarkstilkostnaði að hennar sögn.
Opnaður verður reikningur þar sem fólk getur lagt
sitt af mörkum ef það vill. - þeb
Herdís Þorgeirsdóttir leggur áherslu á virkara lýðræði og aukin mannréttindi:
Herdís ætlar í forsetaframboð
Í LISTASAFNINU Herdís ásamt Önnu Laufeyju Sigurðardóttur,
kosningastjóra sínum, að loknum blaðamannafundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Fimmmenningarnir
sem sæta ákæru fyrir hrotta-
fengna árás á konu í Hafnarfirði
rétt fyrir jól neituðu allir sök við
þingfestingu málsins í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær.
Meðal hinna ákærðu er Einar
Marteinsson, þáverandi for-
sprakki Hells Angels, sem er
gefið að sök að hafa skipulagt
árásina. Þrír karlar og ein kona,
með tengsl við Hells Angels, eru
ákærð fyrir að hafa ruðst inn til
konunnar og gengið í skrokk á
henni. Konan slasaðist alvarlega
í árásinni, hlaut heilahristing og
mikla áverka.
Fólkið, auk sjötta mannsins, er
jafnframt ákært fyrir aðild að
skipulagðri glæpastarfsemi. - sh
Ákæra þingfest í gær:
Neita öll sök
í hrottalegu
árásarmáli
KVEÐST SAKLAUS Einar Marteinsson,
sem segist skilinn við Hells Angels, hefur
staðfastlega neitað sök í málinu.
DANMÖRK Danska lögreglan lagði
á miðvikudagskvöld hald á 20,5
kíló af heróíni sem fannst í tösku
á flugvellinum í Kastrup. Taskan
kom frá Pakistan að því er fram
kemur í Berlingske Tidende.
Danska lögreglan sem naut
aðstoðar lögregluyfirvalda á
Spáni hafði rannsakað málið um
margra mánaða skeið. Af fjórum
mönnum sem nú sitja í gæslu-
varðhaldi eru tveir starfsmenn á
Kastrupflugvelli. Götuverðmæti
heróínsins er talið nema um 575
milljónum íslenskra króna. - gar
Heróín frá Pakistan á Kastrup:
Tuttugu kíló af
heróíni í tösku
Opið lengur um páskana
Bæjarráð Ísafjarðar hefur samþykkt að
veita undanþágu svo hægt verði að
hafa opið til klukkan fjögur að nóttu
á skemmti- og veitingastöðunum í
Edinborgarhúsi og í Alþýðuhúsinu um
páskahelgina.
ÍSAFJÖRÐUR
NÁTTÚRA Rannsóknarflugvél frá
Nasa lendir hér á landi í dag og
dvelur í mánuð. Verkefnið mun
styðja við rannsóknir á lofts-
lagsbreytingum með þróun betri
aðferða við að mæla bráðnun
heimskautaíss.
Flugvélin er sérhönnuð til að
fljúga í mikilli hæð og útbúin full-
komnum mælitækjum. Hún á að
sinna rannsóknum yfir Græn-
landi, en markmiðið er að mæla
nákvæmni nýlega þróaðs mæli-
tækis. Mælingarnar eru hluti af
þróun sambærilegs mælitækis
sem verður í gervihnetti sem á að
fylgjast með umhverfis- og lofts-
lagsbreytingum. Gervihnettinum
að koma á loft árið 2016. - þeb
Sinnir rannsóknum í mánuð:
Flugvél frá
Nasa á Íslandi
SPÁNN Niðurskurður í nýju
fjárlagafrumvarpi spænsku
ríkisstjórnarinnar nemur 27
milljörðum evra, eða rúmlega
4.500 milljörðum króna.
Skattar á stór fyrirtæki verða
hækkaðir, rafmagn og gas hækkað
í verði og tekjuskattur hækkar um
tæp tvö prósent. Þá þurfa ráðu-
neyti að skera mikið niður, þar
á meðal utanríkisráðuneytið um
helming.
Hagfræðingar hafa lýst yfir
efasemdum um áætlunina og
segja ólíklegt að niður skurðurinn
dugi til þess að mæta kröfum
Evrópu sambandsins. Líklega
þurfi enn meiri niðurskurð. - þeb
Fjárlög kynnt á Spáni:
4.500 milljarða
niðurskurður
DANMÖRK, AP Fjármálaráðherrar
evruríkjanna samþykktu á fundi
sínum í Kaupmannahöfn í gær
að efla stöðugleikasjóðinn, sem
notaður er til að hjálpa ríkjum
að komast út úr alvarlegum fjár-
hagsvanda.
Til reiðu í björgunarsjóðnum
verða nú 800 milljarðar evra,
eða nærri 136 þúsund milljarðar
króna. Áður hafði verið gert ráð
fyrir 500 milljörðum evra. - gb
Evrufundur í Danmörku:
Neyðarsjóður
stækkaður