Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 12
31. mars 2012 LAUGARDAGUR12
Sætar franskar
frá McCain
Sætu kartöflurnar frá McCain eru ómótstæðilega
bragðgóðar og ríkar af A-vítamíni. Þú skellir þeim í
ofninn og áður en þú veist af ertu komin(n) með
girnilegt og gómsætt meðlæti. Prófaðu núna!
Nýtt!
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra, mælti fyrir frumvarpi
um veiðigjald á Alþingi í gær.
Líkt og fram hefur komið verður
gjaldtaka í sjávarútvegi tvíþætt. Í
fyrsta lagi fast veiðigjald, svipað
að upphæð og nú er við lýði, en
að öðru lagi auðlindarentu, skatt-
l a g n i n g u á
umframhagnað.
Rentan tekur
mið af arðsemi
fyrirtækjanna
hverju sinni.
Steingrímur
sagði auðlinda-
rentuna ganga
út frá sömu
grundvallar-
sjónarmiðum
og a l men nt
væru höfð að leiðarljósi við auð-
lindaskattlagningu. Skatt lagning
í sjávarútvegi þyrfti að vera
sveigjanleg og aðlagast sjálfkrafa
aðstæðum eins og þær eru á
hverjum tíma.
Sjávarútvegurinn þyrfti að
standa undir þeim kostnaði sem
lagður er af mörkum til að vernda
fiskveiðiauðlindina og gjald takan
miðist við að skila sem stærstum
hluta auðlindarentu sem eftir
stendur í ríkissjóð.
Bjarni Benediktsson, for maður
Sjálfstæðisflokksins, telur gjaldið
allt of hátt. Hann benti á að í efna-
hagsáætlun ríkisstjórnarinnar,
sem efnahags- og viðskiptaráð-
herra lagði fram í haust, hefði
verið gert ráð fyrir um 10 milljarða
gjaldi af sjávarútvegi. Sú tala væri
nú tuttugu milljörðum hærri.
„Það er með ólíkindum að ríkis-
stjórnin hafi fundið matarholu upp
á 20 milljarða í einni atvinnugrein
á nokkrum mánuðum.“
Þá sagði Bjarni að heildarskuld-
setning útgerðarinnar næmi um
400 milljörðum króna. Væri gert
ráð fyrir 5% vöxtum, næmi sú upp-
hæð 20 milljörðum króna, eða sömu
upphæð og auðlindarentan ætti að
skila.
„Það þýðir að þessar hug myndir
jafnast á við 400 milljarða viðbótar-
skuldsetningu greinarinnar.“
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins, sagði vanta upp á mat á
áhrifum gjaldtökunnar á einstök
fyrirtæki og svæði. Þá vantaði
einnig mat á áhrifin á sjávarklasann
í heild, en við hann störfuðu 25 til 30
þúsund manns. Þetta þyrfti frekari
skoðunar við. kolbeinn@frettabladid.is
Tekist á um
upphæðina á
veiðigjaldinu
Ráðherra segir skattlagningu á sjávarútveg þurfa að
vera sveigjanlega. Hún þurfi að standa undir kostn-
aði við verndun. Deilt er á upphæð veiðigjaldsins.
BJARNI
BENEDIKTSSON
Steingrímur sagði virðisauka í
sjávarútvegi á fyrsta áratug
aldarinnar hafa numið 115
milljörðum króna, á verðlagi ársins
2010. Hlutur vinnunnar hafi numið
67%, fjármagns um 17% og hlutur
auðlindar, þegar veiðigjald er talið
með, um 24% virðisaukans.
Annað blasti við þegar litið væri
á hvernig virðisaukinn skiptist á
milli handhafa framleiðslu þáttanna.
Launþegar hafi fengið 59%, en
eigendur fjármagns afganginn, að
frátöldu veiði gjaldinu, eða alls 40%
virðisaukans.
„Fulltrúi eiganda auðlindarinnar,
ríkið, fékk í sinn hlut um 1% eða
lítið eitt meir ef talinn er með sá
tekjuskattur sem greiddur var af
þeirri rentu sem rann til annarra.“
Lítið eftir hjá ríki
RÁÐHERRA Steingrímur J. Sigfússon sagði mikilvægt að ekki verði komið í veg fyrir
eða dregið úr nýtingu auðlinda sem geta skilað auðlindarentu til þjóðarinnar og
virðisauka í þjóðarbúið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MANNRÉTTINDI Falun Gong iðkendur
styðja þingsályktun Guð mundar
Steingrímssonar og tíu annarra
þingmanna. Lögð er til form-
leg leiðrétting á þeim óheppilegu
aðgerðum sem í júní 2002 beindust
gegn Falun Gong í tengslum við
opinbera heimsókn þáverandi
leiðtoga Kína. Í maí í fyrra baðst
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra afsökunar á óréttlátri
meðferð sem iðkendur Falun Gong
hlutu hér á landi.
Iðkendur Falun Gong líta á til-
löguna sem dýrmætt tækifæri til
þess að „leiðrétta enn frekar þær
óréttlátu og ólöglegu aðgerðir“
sem Falun Gong iðkendur voru
beittir hér og erlendis.
„Meirihluti íslensku þjóðarinnar
var afar ósáttur við þá atburði
og margir reiðir og hneykslaðir
á banninu. Þúsundir Íslendinga
gengu um götur til stuðnings þeim
rétti iðkenda Falun Gong að minna
á mannréttindabrot kínverskra
yfirvalda,“ segir í opnu bréfi Falun
Gong iðkenda.
Ofsóknir á hendur iðkendum
Falun Gong eru sagðar hafa haldið
áfram og þeir þurfi að þola auknar
pyntingar vegna nýrrar marg-
milljarða herferðar kínverska
Kommúnistaflokksins. Um þessa
herferð á hendur iðkendum Falun
Gong megi meðal annars lesa í
trúnaðarskjölum flokksins sem
eru aðgengileg á netinu. - áas
Iðkendur Falun Gong fagna tillögu:
Tækifæri fyrir Ísland
að leiðrétta ofsóknir
UPPLÝSINGATÆKNI Íslenska
greiðslumiðlunarfyrirtækið
Handpoint er talið með ellefu
helstu fyrirtækjum á sínu sviði í
nýrri yfirlitsmynd veftímaritsins
MobilePaymentsToday.com.
Vefritið birtir slíka mynd
árlega, en þar eru talin upp fyrir-
tæki sem talin eru leika stærst
hlutverk í „hreyfanlega og þráð-
lausa“ greiðsluheiminum, að
því er fram kemur í tilkynningu
Handpoint. Fyrirtækið hefur
meðal annars þróað tækni til að
taka á móti kortagreiðslum með
farsíma eða spjaldtölvu. Auk
Handpoint eru á yfirlitsmyndinni
talin upp fyrirtæki á borð við Pay-
Pal, VISA, Square og iZettle. - óká
Vefrit fjallar um Handpoint:
Á yfirlitsmynd
með leiðandi
fyrirtækjum
IÐNAÐUR Breytingar sem gera þarf
á eignarhaldi vegna breytinga á
raforkulögum frá því í árs byrjun
2011 gætu haft áhrif á lána-
samninga Landsvirkjunar. Þetta
er meðal þess sem fram kom í
ræðu Geirs A. Gunnlaugssonar,
stjórnar formanns Landsnets, á
kynningarfundi í vikulokin.
Eins og er eiga orkufram-
leiðslufyrirtækin Landsnet.
Landsvirkjun er langstærsti
eigandinn með 65 prósenta hlut.
Með breytingum á raforku-
lögunum, í samræmi við Evrópu-
tilskipun sem ganga á í gildi á
næstu misserum, var hins vegar
horfið frá því að flutningsfyrir-
tækið geti verið að hluta eða öllu
leyti í eigu fyrirtækja í fram-
leiðslu eða dreifingu raforku.
„Ljóst er að þessi breyting á eign-
arhaldi Landsnets er flóknari en
svo að hún verði gerð á einni nóttu.
Eignir Landsnets eru hluti af sam-
stæðureikningi Landsvirkjunar og
þar af leiðandi hluti þeirra eigna
sem standa á bak við lán Lands-
virkjunar. Breytingar á eignar haldi
geta því krafist flókinna samninga
við lánveitendur Landsvirkjunar,“
sagði Geir. - óká
FUNDUR Í GÆR Geir A. Gunnlaugsson
stjórnarformaður og Þorgeir J. Kristjáns-
son, skrifstofustjóri Landsnets, sem stýrði
fundi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breytt eignarhald Landsnets kallar á samninga við lánardrottna Landsvirkjunar:
Flóknara en gerist á einni nóttu
MÓTMÆLENDUR Í SKÓFLU Í Nantes í
Frakklandi voru haldin mótmæli gegn
fyrirhuguðum alþjóðaflugvelli. Nokkrir
mótmælenda komu sér vel fyrir í
gröfuskóflu dráttarvélar. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Umsóknir um
styrki til smærri verkefna til
úrbóta í umhverfismálum á ferða-
mannastöðum, sem Ferðamála-
stofa auglýsti í fyrrahaust, voru
75 talsins. Umsóknarfrestur rann
út 25. nóvember.
„Heildarupphæð styrkóska
er um 49 milljónir króna en til
úthlutunar eru 8 milljónir,“ segir
á vef Ferðamálastofu. Fram
kemur að hámarksupphæð hvers
styrks verði 800 þúsund krónur
og hann sé ætlaður fyrir efnis-
kostnaði og/eða hönnun. - óká
Átta milljónir eru til skiptanna:
75 vildu fá 49
milljónir króna