Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 30
30 31. mars 2012 LAUGARDAGUR
Ég er beitt misrétti af hálfu meirihluta borgarstjórn-
ar, Besta flokksins og Sam-
fylkingar. Af því að ég er leik-
skólakennari og félagi í Félagi
leikskólakennara ætlar borgin
að fella niður greiðslur vegna
yfirvinnu sem ég hef fengið
greidda fyrir að matast með
börnunum í leikskólanum og
vinna í matartímanum mínum.
Samstarfsfólk mitt sem situr á
næsta borði fær áfram greitt
fyrir að sleppa því að fara í
matarhlé og borða með börn-
unum.
Á morgun, 1. apríl, tekur
uppsögn á 2,5 klst. eftirvinnu-
tímum (svokölluðu neysluhléi)
gildi hjá félögum í Félagi leik-
skólakennara. Þessu svokall-
aða neysluhléi var komið á árið
2007 af borgarstjórn Dags B.
Eggertssonar til þess að mæta
mikilli starfsmannaeklu í leik-
skólum borgarinnar. Í þessu
felst viðurkenning á því að
starfsfólk leikskóla sem matast
með börnunum og kemst ekki
í matarhlé á milli hálf tólf og
hálf tvö fær greidda 10 yfir-
vinnutíma á mánuði.
Það kynnu sjálfsagt marg-
ir að halda það sjálfsagt mál
að greiða starfsfólki aukalega
fyrir að vinna í matartíma
sínum og taka ekki matarhlé
en það er nú ekki svo. Einung-
is Hafnarfjörður og Húsavík
fylgdu fordæmi Reykjavíkur-
borgar í þessu máli og borguðu
leikskólastarfsfólki sínu þessa
aukatíma.
Fljótlega eftir efnahagshrun
var það tekið af í Hafnarfirði
en borgarstjórn Reykjavíkur
„stóð vörð um neysluhléið“
og gekk svo langt að þegar 24
leikskólar voru sameinaðir í 11
á síðasta ári mátti oft heyra í
rökstuðningi meirihlutans að
þannig væri hægt að standa
vörð um neysluhléið.
Jafnframt héldu borgar-
fulltrúar meirihlutans því
fram að það væri alls ekki í
kortunum að leggja neyslu-
hléið niður þó svo að það myndi
vissulega spara borginni tölu-
verðar fjárhæðir.
Það kom okkur leikskóla-
kennurum því verulega í opna
skjöldu þegar meirihluti Besta
flokksins og Samfylkingar
tilkynnti í nóvember síðast-
liðnum að segja ætti leik-
skólakennurum og takið eftir,
aðeins leikskólakennurum, upp
neysluhléinu í þrepum samfara
launahækkunum nýundirrit-
aðs kjarasamnings. Það sem
kemur mest á óvart í þessu
máli er að meirihlutinn ætlar
að fara þá ósanngjörnu og
ómerkilegu leið að segja ein-
ungis einni fagstétt leikskóla-
starfsfólks upp þessu svokall-
aða neysluhléi en ekki öðrum
en þetta er allt fólk með mis-
jafna starfsreynslu og mennt-
un en vinnur saman hlið við
hlið að sömu störfum.
Og ekki misskilja mig, ég
gleðst sannarlega með öðru
leikskólastarfsfólki sem fær
áfram greitt neysluhléið og
enginn okkar sem vinnum í
leikskólum borgarinnar er of
vel að launum okkar kominn.
Með þessum aðgerðum
meirihlutans erum ég og aðrir
félagar í Félagi leikskólakenn-
ara í Reykjavík beitt hróplegu
misrétti og ójafnræði. Í fyrstu
var rökstuðningur meirihlut-
ans fyrir þessari aðgerð sá að
Félag leikskólakennara hafi
í ágúst 2011 gert mjög góðan
kjarasamning og að það hafi
alltaf verið skilningur allra
sem við samningsborðið sátu
að í kjölfar þess góða samnings
myndi neysluhléið falla niður.
Nú hefur komið fram í fjöl-
miðlum og meirihlutinn við-
urkennt að það var alls ekki
skilningur samningsaðila að
fella ætti niður neysluhléið í
kjölfar samningsins, heldur
þvert á móti stóð til að leið-
rétta starfskjör leikskólakenn-
ara í samræmi við starfskjör
viðmiðunarstétta.
Jafnræðisregluna þekkja
borgarfulltrúar meirihlutans
mæta vel og hafa oftsinnis
flaggað henni í máli sínu, sem
dæmi má nefna þegar for-
gangur barna leikskólastarfs-
fólks var afnuminn en eitthvað
virðast þeir hafa gleymt henni
í þetta skiptið en hún styður
algjörlega mál mitt. Jafnræð-
isregluna er að finna í 65. gr.
stjórnarskrárinnar, sbr. 3. gr.
stjórnskipunarlaga nr. 97/1995,
og hljómar svo:
Allir skulu vera jafnir fyrir
lögum og njóta mannréttinda
án tillits til kynferðis, trúar-
bragða, skoðana, þjóðernis-
uppruna, kynþáttar, litarhátt-
ar, efnahags, ætternis og stöðu
að öðru leyti. Konur og karlar
skulu njóta jafns réttar í hví-
vetna.
Markmið reglunnar er að
koma í veg fyrir mismunun á
grundvelli þeirra atriða sem
koma fram í 1. mgr. og annarra
atriða sem gætu talist ómál-
efnaleg.
Hér er orðið ómálefnaleg
lykilorðið því þessi mismunun
sem ég og aðrir félagar í Félagi
leikskólakennara verðum fyrir
er með algjörlega ómálefnaleg-
um rökstuðningi.
Meirihluti Besta flokksins
og Samfylkingar vill meina að
vegna þess að Félag leikskóla-
kennara hafi gert svo góðan
kjarasamning í ágúst 2011 sé
frekar hægt að lækka laun
mín en Gunnu sem er félagi í
Þroskaþjálfafélaginu og starf-
ar við hliðina á mér við sömu
störf í matartímanum. Þetta er
vissulega launalækkun og fyrir
mér er þetta svipað og að segja
að Gunna sem er í hjónabandi
þoli að fá lægri laun en Bára
sem er einhleyp.
Klárlega náðust viðunandi
kjarasamningar í ágúst á síð-
asta ári, en ennþá erum við
leikskólakennarar með lægst
launuðu háskólastéttum lands-
ins og lægst launaða kennara-
stétt landsins. Að sjálfsögðu
eigum við að fá greitt fyrir að
komast ekki í matarhlé líkt og
samstarfsfélagar okkar. Þetta
er algjört sanngirnismál sem
borgin ætti að sjá sóma sinn í
að leiðrétta.
Ég vil að lokum minna borg-
aryfirvöld á að einungis 33%
starfsfólks hjá leikskólum
Reykjavíkur eru menntaðir
leikskólakennarar, með því
lægsta sem þekkist hér á landi
og þörf er á átaki til þess að
efla leikskólann og það starfs-
umhverfi sem borgin býður
starfsfólki sínu.
Í bakþönkum Fréttablaðsins þann 24. mars lét Atli Fannar Bjarka-
son þær staðhæfingar falla að í eðli
sínu færi jafnrétti aldrei út fyrir
skynsamleg mörk og því beinlínis
hlægilegt að gerast svo djarfur að
tala um öfgafemínisma. Vill hann
meina að ekki sé hægt að tala um
öfgar fyrr en tilteknir hópar eru
farnir að stunda innbrot og fremja
aðra glæpi í þágu málstaðarins, s.s.
að sprengja upp húsnæði Smáralind-
ar þar sem því svipar til reðurs sé
það skoðað úr loftmynd. Fyrr væri
leikurinn einfaldlega ekki kominn út
fyrir skynsamleg mörk. Telur hann
baráttuna fyrir jafnrétti aldrei geta
orðið öfgafulla. Ég spyr hins vegar:
Snýst barátta þessara hópa ennþá
um jafnrétti eða er hún mögulega
sprottin af hatri og ef til vill komin
út fyrir skynsamleg mörk jafnvel
þó Smáralindin standi enn í fullri
reisn?
Í viðtali við fyrrum forseta okkar
Íslendinga, Vigdísi Finnbogadóttur,
sem birtist í tímaritinu Monitor 22.
mars, segist hún bæði vera kven- og
karlréttindakona, sem kjósi jafn-
ræði og telur hún vissar tegundir
femínisma komnar út í öfgar. Hún
hvetur fólk til að gæta varhugar þar
sem öfgarnar geti eyðilagt góðan
málstað. Getur mögulega verið
að sannleikskorn leynist í þessum
orðum fyrsta lýðræðiskjörna kven-
forseta heims?
Það fór varla fram hjá neinum að
í lok síðasta árs var þjóðþekktur og
vægast sagt umdeildur einstakling-
ur ákærður fyrir alvarlegan kyn-
ferðisglæp. Ekki leið á löngu þar til
tilteknir aðilar sem kenna sig við
femínisma höfðu tekið skýra afstöðu
í málinu, fylkt liði gegn meintum
geranda og vildu sumir hverjir
helst hengja umræddan mann undir
eins og það án dóms og laga. Aðeins
örfáum klukkustundum eftir að fjöl-
miðlar greindu frá ákærunni eða 3.
desember 2011 lét María Lilja Þrast-
ardóttir, yfirlýstur femínisti, þau
orð falla í pistli sínum á
smugan.is að nú fylktu
liði fylgdarmenn Gillz
nauðgunarbrandarakarls
og hrópuðu ofnotuð slag-
orð á borð við „saklaus
uns sekt er sönnuð“. Sam-
kvæmt Maríu Lilju og
hennar sýn á jafnrétti er
hornsteinn réttarríkisins
og hin sígilda meginregla
sem kveður á um að hver
og einn sé saklaus uns
sekt er sönnuð einungis
ofnotað „hugtak“.
Nú ætla ég ekki að
skipa mér í annað hvort
„liðið“ enda ekki í verka-
hring annarra en lög-
gæsluyfirvalda og ef til
þess kemur þá dómstóla að leggja
dóm á málið. Ég þori hins vegar
að fullyrða að hver einasti sæmi-
lega þenkjandi einstaklingur sem
reiknað hefur dæmið til enda, geti
ekki með nokkru móti hugsað sér
að búa í samfélagi þar sem megin-
regla á borð við „sekur uns sakleysi
er sannað“, er við lýði. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að af tvennu illu
er þó öllu skárra að á meðal okkar
gangi nokkrir sekir aðilar sem
komast hafa hjá fullnustu refsingar
fremur en að á bak við lás og slá sitji
fjöldinn allur af saklausum einstak-
lingum. Ekki aðeins sviptir frelsinu
heldur einnig ærunni.
Það er ástæða fyrir því að við
setjum okkur sjálf lög og reglur.
Við kjósum að lifa ekki í algjörri
ringulreið réttaróöryggis þar sem
geðþóttaákvarðanir yfirvalda og
sleggjudómar götunnar eiga síðasta
orðið. Þó ákveðnir aðilar telji lífs-
skoðanir sínar æðri lögum okkar
allra þá getur það varla talist nægi-
lega gild ástæða þess að mannrétt-
indum beri að víkja til hliðar.
Langstærstur hluti
þess fólks sem í gegnum
tíðina hefur barist fyrir
réttindum okkar hefur
notast við friðsamlegar
aðferðir og tekist á á mál-
efnalegum grundvelli.
En svo koma þeir sem
með ofstæki afskræma
hugtak á borð við fem-
ínisma og draga heild-
ina niður á blóðugan víg-
völlinn. Skilaboðin eru
svo iðulega þau að hver
sá sem dirfist að standa
upp og stugga við slík-
um aðgerðum er óvinur
málstaðarins sem vinn-
ur markvisst gegn jafn-
rétti. Rosa Parks, Mart-
in Luther King, Mahatma Gandhi
og Nelson Mandela voru öll róttæk
þegar þau börðust fyrir auknu frelsi
landa sinna. Ekkert þeirra lét hatur
hins vegar blinda sig eða teyma út í
öfgar. Óumdeilt er að árangur þessa
fólks á sér vart hliðstæðu.
Góðir hlutir ávinnast ekki með
herskáum og hatursfullum áróð-
ursbrögðum í öfgafullri baráttu
sem bæði er háð á lágu og ógeð-
felldu plani. Slíkt gerir lítið annað
en kynda undir hatri í samfélaginu.
Tilgangurinn helgar ekki alltaf með-
alið.
Góðir hlutir
ávinnast ekki
með her-
skáum og
hatursfullum
áróðurs-
brögðum í
öfgafullri
baráttu …
Að sjálfsögðu eigum við að fá greitt
fyrir að komast ekki í matarhlé eins og
samstarfsfélagar okkar. Þetta er algjört
sanngirnismál sem borgin ætti að sjá sóma sinn í
að leiðrétta.
Sekur uns sakleysi er sannað Mér er mismunað
Samfélagsmál
Hrafn
Jónsson
laganemi við HÍ
Kjaramál
Anna Helga
Sigfúsdóttir
leikskólakennari
VORFERÐ
TIL PRAG
16-20 maí 2012
Nánar á
urvalutsyn.is
99.800 kr*
á mann í tvíbýli með morgunverði á Orea Hotel Pyramida. ****
Önnur hótel:
Hotel Coronthia *****
Verð á mann í tvíbýi með morgunverði kr. 105.900.-
Hotel Ramada ****
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði kr. 106.900.-
Hotel Crystal Palace ****
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði kr. 112.800.-
*Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, göngu- og skoðunarferð
um borgina, kokteilboð, tónleikar og íslensk fararstjórn.
FR
Á
:
Tónleik
ar
með An
dreu
Gylfa o
g
tékkne
skum
tónlista
r-
mönnu
m!
Lágmúli 4 108 Rvk | S. 585 4000 | info@uu.is | www.urvalutsyn.is
Ferðaskrifstofa
Ferð í
tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til Prag.Ótrúlega margt innifalið!