Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 54
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 31. MARS 20122
Denver og Akureyri nýir áfanga-
staðir
„Við reiknum með að vöxturinn
verði um 14 prósent milli ára,“
segir Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair.
„Bæði erum við að bjóða upp á
nýja áfangastaði, eins og Den-
ver í Colorado, og að bæta í áætl-
un til fjölda áfangastaða okkar.
Icelandair er burðarás í f lugsam-
göngum milli Íslands og annarra
landa og nú leggjum við áherslu
á að jafna árstíðasveif luna, og
auka hlutfallslega meira við flug-
ið á veturna en á sumrin,“ útskýr-
ir Birkir. Hann segir breytingarn-
ar ganga vel. Þegar hefur verið
tilkynnt um aukið vetrarflug til
London Gatwick og þá bætti fé-
lagið við flugi til New York í haust.
Þá er enn von á nýjum áfanga-
stöðum.
„Það er gaman að segja frá því
að nýr áfangastaður Icelandair í
sumar er hér innanlands, það er
Akureyri. Við ætlum að bjóða upp
á flug til og frá Akureyri um Kefla-
víkurflugvöll frá ýmsum áfanga-
stöðum í Evrópu og Bandaríkj-
unum nú í sumar,“ segir Birkir.
„Viðskiptavinir munu geta bókað
flugið og innritað sig alla leið til
og frá áfangastöðum félagsins er-
lendis.“
Flogið verður tvisvar til fjór-
um sinnum í viku frá 7. júní til
30. september. Flugdagar verða
mánudagar, fimmtudagar, föstu-
dagar og sunnudagar. Brottför frá
Akureyrarflugvelli verður klukk-
an 14.30 og lending á Keflavíkur-
flugvelli klukkan 15.20.
„Tímasetningin gerir það að
verkum að fjölmargir áfangastað-
ir Icelandair liggja vel við þessu
beina tengif lugi frá Akureyri,“
segir Birkir og nefnir til dæmis
New York, Boston, Washington,
Seattle og Halifax í Norður-Amer-
íku og London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Amsterdam, Brus-
sel og Ósló í Evrópu. Brottför frá
Keflavíkurflugvelli til Akureyr-
ar er fyrir huguð klukkan 16.20
og lending á Akureyri kl. 17.05.
Þannig skapast bein tenging við
komutíma frá helstu áfangastöð-
um Icelandair í Evrópu. Akur-
eyrarflugið er því bókanlegt sem
hluti af f lugi Icelandair til og frá
Íslandi og mun félagið leigja Fok-
ker 50 f lugvél af systurfyrirtæk-
inu Flugfélagi Íslands til þess.
„Með þessum hætti erum við að
opna nýja leið fyrir ferðamenn frá
fjölmörgum áfangastöðum í leiða-
kerfi okkar til Akureyrar.“
Mikill vöxtur Icelandair á
75 ára afmælisári félagsins
Icelandair fangar 75 ára afmæli á þessu ári. Um leið býður félagið upp á langstærstu áætlun í sögu félagsins en gert er ráð fyrir að flytja um tvær
milljónir farþega á árinu.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, boðar nýja áfangastaði félagsins, meðal annars innanlands. MYND/GVA
Við erum með lista yfir bestu leyndarmál Lundúna; þau sem ekki eru í boði í venju-
legum túristahandbókum, og
lista yfir helstu markaði, tísku-
verslanir og „second-hand-búð-
ir“ borgarinnar,“ upplýsir Ró-
bert Aron Magnússon sem ásamt
Heiðari Haukssyni stofnaði 2 Do
in London um áramótin.
Báðir eru búsettir í enska
höfuð staðnum og með áratuga
reynslu í tónleika- og viðburða-
haldi hér heima og erlendis.
„Það er auðvelt að týna sér í
stórborg,“ segir Róbert. „Marg-
ir sem koma til Lundúna verða
óöruggir og vita ekki hvern þeir
geta spurt eða leitað til. Þá er kær-
komið að geta fengið alla hjálp á
einum stað og við því dálítið eins
og góður vinur í London,“ segir
Róbert og brosir.
Hann segir London hafa upp á
margt að bjóða og að þar finnist
allt sem hugurinn girnist.
„Það kemur eflaust mörgum á
óvart að London er frábær fyrir
barnafjölskyldur með sína fjöl-
mörgu skemmtigarða, dýragarða,
leik hús og annað barnvænt.
London er reyndar skemmtileg
fyrir allan aldur og næturlífið
eitt það allra besta í Evrópu. Við
höfum aðgang að öllum helstu
næturklúbbunum og um að gera
að nýta sér það til að komast fljótt
og örugglega inn,“ segir Róbert.
Í ár f ljúga fjögur f lugfélög frá
Íslandi til Lundúna og stefnir í
metaðsókn mörlandans til heims-
borgarinnar við Tempsá.
„Strax nú um páskana hefst
straumur íslenskra ferðalanga
til Lundúna og í sumar verður
mikið um að vera; tónlistarhá-
tíðir, Ólympíuleikarnir, fótbolti
og fleira,“ segir Róbert sem í 2 Do
in London er með stóran gagna-
grunn um allt sem borgin geym-
ir og bregst hratt og vel við öllum
fyrirspurnum.
„Á okkar snærum starfa mjög
traustir aðilar sem sérhæfa sig í
öruggri afhendingu miða á alla
leiki í enska boltanum. Þá út-
vegum við miða í leikhús, á tón-
leika og pöntum borð með litlum
fyrirvara á bestu veitinga- og
skemmtistaði borgarinnar, ásamt
því að sérsníða dvölina fyrir fólk á
öllum aldri.“
Í samstarfi við Iceland Express
stendur 2 Do in London fyrir
pakkaferðum á tónleika Rihönnu,
Madonnu, Bruce Springsteen
og f leiri sem eru í uppsiglingu í
Lundúnum í sumar, ásamt því að
vinna með tengiliðum á Norður-
löndunum sem selja fyrir þá tón-
leikamiða í Svíþjóð og Noregi.
„Í London er mikið um fals og
ólöglega miða á tónleika, en við
útvegum miða beint frá tónleika-
höldurum á bestu fáanlegu kjör-
um og með öruggri miðaafhend-
ingu,“ segir Róbert.
Hann segir töfra Lundúna fel-
ast í fjölbreytileika menningar og
mannlífs.
„London er margslungin og svo
margt hægt að gera annað en að
þramma í búðir á Oxford-stræti
eða á Piccadilly Circus,“ segir
Róbert og minnist á skrúðgarða
borgarinnar sem hann segir
dásamlega vin á sumrin.
„Það kom mér líka á óvart hvað
London er lítil þrátt fyrir að vera
jafn margmenn og stór. Frá austri
til vesturs tekur stutta stund að
fara enda á milli og í fyrra settu
borgaryfirvöld upp hjólaleigur
víðsvegar og frábært er að hjóla
um hverfi sem maður annars sæi
ekki. Ég mæli því hiklaust með
reiðhjóli fyrir eitt pund á sólar-
hring, í stað þess að taka lest
eða dýran leigubíl á milli staða.
Þannig kynnist maður borginni
líka betur og uppgötvar sjarma
hennar til hlítar.“
Nánari upplýsingar á www.2do-
inlondon.com. Netfang: 2doin-
london@gmail.com.
Góður vinur í Lundúnum
Ertu á leið til London en veist ekki upp á hár hvað þú ætlar að skoða eða hvernig best er að upplifa borgina? Þá hefur íslenska ferðaþjónustan 2 Do in
London svarið og útvegar allt sem hugurinn girnist svo gesturinn fái sem mest út úr dvölinni.
Á sumrin er indælt að slaka á í Hyde Park eða öðrum skrúðgörðum Lundúna og nóg
pláss til að finna ýmist iðandi mannlíf, rólegan lund til lesturs eða ástafundar, og
blómlega áningarstaði fyrir nestisferð.
Höfuðborg Englands er töfrum hlaðin og með gnægtaborð freistandi afþreyingar. Hér
sést yfir Tempsá, Westminster-höll og Big Ben frá Victoria-turninum. NORDIC PHOTOS/GETTY