Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 57

Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 57
FERÐAHÝSI LAUGARDAGUR 31. MARS 2012 Kynningarblað Húsbílar Hjólhýsi Tjaldvagnar Fellihýsi Fellihjólhýsi Fylgihlutir Verslunin Útilegumaður-inn var opnuð árið 2007 og selur mikið úrval ferðahýsa og ferðavöru. Garðar Þorsteins- son, framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins, segir mikið lagt upp úr góðri, persónulegri og ábyrgri þjónustu við viðskiptavini. „Útilegumaður- inn býður upp á allt sem þarf í vel heppnað ferðalag. Við bjóðum upp á gott úrval hjólhýsa, fellihýsa, for- tjöld og mikið úrval af ferðavörum ýmiss konar.“ Verkstæði Útilegu- mannsins þjónustar allar tegund- ir ferðavagna sem verslunin selur og á vef Útilegumannsins má finna úrval af notuðum ferðavögnum til sölu. Glæsileg hjólhýsi hlaðin staðal- búnaði Þýska fyrirtækið Dethleffs hefur framleitt hjólhýsi í 80 ár við góðan orðstír að sögn Garðars. Útilegu- maðurinn sýnir um þessar mund- ir þrettán mismunandi hjólhýsi frá fyrirtækinu og segir Garðar alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Hvort sem þig vantar hjólhýsi fyrir tvo eða stóra fjölskyldu finnur þú alltaf hentuga lausn frá Dethleffs.“ Hjólhýsin eru smíðuð úr vönduð- um efnum og frágangur til fyrir- myndar. Innréttingar eru smíðaðar úr glæsilegum viði og einangrun er með besta móti eða 40 millimetr- ar í gólfi og 37 millimetrar í hlið- um og í þaki. Í ár býður Dethleffs upp á tvær 80 ára afmælisútgáfur af Eightyone og Eightytwo hjólhýs- um með allt að 990.000 króna af- slætti. Dethleffs hjólhýsin eru auk þess útbúin gæðadýnum og stóru vatnskerfi. Fellihýsi smíðuð fyrir íslenskar aðstæður Fellihýsin frá Rockwood eru mest seldu fellihýsin á Íslandi. Garðar segir þau vera sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður. „Þar má nefna sérbreytta fjöðrun sem henta betur á slæmum vegum. Vagnarn- ir hafa evrópskar þrýstibremsur sem gerir þá mun öruggari.“ Það skiptir miklu máli að þægindin séu til staðar í fellihýsum og Rock- wood-fellihýsin eru þau einu sem bjóða upp á þykkar springdýnur með sex hitastillingum. Fellihýs- in frá Rockwood er sérlega rúm- góð. Í stærri gerðinni er svefnpláss fyrir átta manns og tveir borðkrók- ar sem hýsa tíu manns í sæti. Mið- stöðin í fellihýsunum er mjög öflug og hljóðlát. Hún hitar líka vatn svo hægt er að fá heitt vatn úr vaski og útisturtu. Útvarp og geislaspilari fylgir einnig og eru hátalarar bæði inni í fellihýsinu og utan á svo auðvelt er að skapa góða stemn- ingu. Sérstök torfæruútgáfa býðst af tíu feta vagninum sem er ætlað að komast hvert á land sem er. Þeir vagnar eru upphækkaðir og sér- styrktir og með stærri og grófari fimmtán tommu jeppadekk. Fjölbreyttir ferðamátar í boði Einnig býður Útilegumaðurinn sér- lega létt og meðfærileg hjólhýsi frá Eximo. Þau fást í þremur stærðum og vega 820 -1050 kíló og því sérlega auðveld í drætti. Húsin eru útbúin öllum nauðsynlegum þægindum eins og gasi, rafmagnsmiðstöð, ís- skáp, eldavél, klósetti og rennandi heitu og köldu vatni. Rockwood býður einnig upp á svokölluð A-hýsi sem eru sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Þau búa yfir skemmtilegum skipulagsmöguleik- um þar sem meðal annars er hægt að koma átta til níu manns í sæti og fjórum til fimm í gistingu. „A- hýsin eru ofsalega einföld og fljótlegt er að opna og loka þeim. Hýsin vega ein- ungis 820 kíló og því sérlega meðfæri- leg í drætti um landið,“ segir Garðar að lokum. Allt í útileguna á einum stað Í verslun Útilegumannsins má finna mikið úrval ferðahýsa og ferðavara sem henta öllum fjölskyldustærðum. Garðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir mikið lagt upp úr góðri, persónulegri og ábyrgri þjónustu við viðskiptavini. MYND/VALLI Rockwood býður einnig upp á svokölluð A-hýsi sem eru sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Þau búa yfir skemmtilegum skipulagsmögu- leikum þar sem meðal annars er hægt að koma átta til níu manns í sæti og fjórum til fimm í gistingu. Fellihýsin frá Rockwood eru mest seldu fellihýsin á Íslandi. Garðar segir þau vera sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.