Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 57
FERÐAHÝSI
LAUGARDAGUR 31. MARS 2012
Kynningarblað
Húsbílar
Hjólhýsi
Tjaldvagnar
Fellihýsi
Fellihjólhýsi
Fylgihlutir
Verslunin Útilegumaður-inn var opnuð árið 2007 og selur mikið úrval ferðahýsa
og ferðavöru. Garðar Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins, segir mikið lagt upp úr góðri,
persónulegri og ábyrgri þjónustu
við viðskiptavini. „Útilegumaður-
inn býður upp á allt sem þarf í vel
heppnað ferðalag. Við bjóðum upp
á gott úrval hjólhýsa, fellihýsa, for-
tjöld og mikið úrval af ferðavörum
ýmiss konar.“ Verkstæði Útilegu-
mannsins þjónustar allar tegund-
ir ferðavagna sem verslunin selur
og á vef Útilegumannsins má finna
úrval af notuðum ferðavögnum til
sölu.
Glæsileg hjólhýsi hlaðin staðal-
búnaði
Þýska fyrirtækið Dethleffs hefur
framleitt hjólhýsi í 80 ár við góðan
orðstír að sögn Garðars. Útilegu-
maðurinn sýnir um þessar mund-
ir þrettán mismunandi hjólhýsi frá
fyrirtækinu og segir Garðar alla
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Hvort sem þig vantar hjólhýsi fyrir
tvo eða stóra fjölskyldu finnur þú
alltaf hentuga lausn frá Dethleffs.“
Hjólhýsin eru smíðuð úr vönduð-
um efnum og frágangur til fyrir-
myndar. Innréttingar eru smíðaðar
úr glæsilegum viði og einangrun er
með besta móti eða 40 millimetr-
ar í gólfi og 37 millimetrar í hlið-
um og í þaki. Í ár býður Dethleffs
upp á tvær 80 ára afmælisútgáfur
af Eightyone og Eightytwo hjólhýs-
um með allt að 990.000 króna af-
slætti. Dethleffs hjólhýsin eru auk
þess útbúin gæðadýnum og stóru
vatnskerfi.
Fellihýsi smíðuð fyrir íslenskar
aðstæður
Fellihýsin frá Rockwood eru mest
seldu fellihýsin á Íslandi. Garðar
segir þau vera sérstaklega smíðuð
fyrir íslenskar aðstæður. „Þar má
nefna sérbreytta fjöðrun sem henta
betur á slæmum vegum. Vagnarn-
ir hafa evrópskar þrýstibremsur
sem gerir þá mun öruggari.“ Það
skiptir miklu máli að þægindin
séu til staðar í fellihýsum og Rock-
wood-fellihýsin eru þau einu sem
bjóða upp á þykkar springdýnur
með sex hitastillingum. Fellihýs-
in frá Rockwood er sérlega rúm-
góð. Í stærri gerðinni er svefnpláss
fyrir átta manns og tveir borðkrók-
ar sem hýsa tíu manns í sæti. Mið-
stöðin í fellihýsunum er mjög öflug
og hljóðlát. Hún hitar líka vatn svo
hægt er að fá heitt vatn úr vaski og
útisturtu. Útvarp og geislaspilari
fylgir einnig og eru hátalarar bæði
inni í fellihýsinu og utan á svo
auðvelt er að skapa góða stemn-
ingu. Sérstök torfæruútgáfa býðst
af tíu feta vagninum sem er ætlað
að komast hvert á land sem er. Þeir
vagnar eru upphækkaðir og sér-
styrktir og með stærri og grófari
fimmtán tommu jeppadekk.
Fjölbreyttir ferðamátar í boði
Einnig býður Útilegumaðurinn sér-
lega létt og meðfærileg hjólhýsi frá
Eximo. Þau fást í þremur stærðum
og vega 820 -1050 kíló og því sérlega
auðveld í drætti. Húsin eru útbúin
öllum nauðsynlegum þægindum
eins og gasi, rafmagnsmiðstöð, ís-
skáp, eldavél, klósetti og rennandi
heitu og köldu vatni. Rockwood
býður einnig upp á svokölluð A-hýsi
sem eru sérstaklega smíðuð fyrir
íslenskar aðstæður. Þau búa yfir
skemmtilegum skipulagsmöguleik-
um þar sem meðal annars er hægt
að koma átta til níu manns í sæti
og fjórum til fimm í gistingu. „A-
hýsin eru ofsalega einföld og
fljótlegt er að opna og loka
þeim. Hýsin vega ein-
ungis 820 kíló og því
sérlega meðfæri-
leg í drætti um
landið,“ segir
Garðar að
lokum.
Allt í útileguna á einum stað
Í verslun Útilegumannsins má finna mikið úrval ferðahýsa og ferðavara sem henta öllum fjölskyldustærðum.
Garðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir mikið lagt upp úr góðri, persónulegri og ábyrgri þjónustu við viðskiptavini. MYND/VALLI
Rockwood býður einnig upp á svokölluð A-hýsi sem
eru sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður.
Þau búa yfir skemmtilegum skipulagsmögu-
leikum þar sem meðal annars er hægt að
koma átta til níu manns í sæti og
fjórum til fimm í gistingu.
Fellihýsin frá Rockwood eru mest seldu fellihýsin á Íslandi. Garðar
segir þau vera sérstaklega smíðuð fyrir íslenskar aðstæður.