Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 71
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 9
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Mannauðsstjóri
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarsson
thorir@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 15. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is.
Jarðboranir hf. leita að metnaðarfullum einstaklingi til að taka
að sér ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf mannauðsstjóra.
Helstu verkefni:
• Mótun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar
• Mat á mannaflaþörf, skipulag og umsjón með ráðningum
• Móttaka nýliða og umsjón með þjálfun starfsmanna
• Umsjón fræðslu- og símenntunarmála
• Umsjón starfsmannasamtala
• Þróun frammistöðumatskerfis
• Umsjón starfsmannahandbókar
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og starfsreynsla á sviði starfsmannamála
• Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð fyrirtækja
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í Microsoft Office
• Mjög góð enskukunnátta, þýskukunnátta kostur
• Góð samstarfshæfni og færni í samskiptum
• Frumkvæði, sveigjanleiki og geta til að starfa sjálfstætt
• Faglegur metnaður
Verkefni fyrirtækisins eru bæði hér á landi og erlendis.
Jarðboranir hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði djúpborana eftir jarðhita. Félagið á og rekur flota af hátækni-
borum sem eru í rekstri bæði á Íslandi og erlendis. Verkefni félagsins hafa verið m.a. í Þýskalandi,
Danmörku, Azoreyjum, Dominica og á Nýja-Sjálandi, auk þess sem fleiri verkefni eru í undirbúningi.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Mannauðsráðgjafi
Nánari upplýsingar:
Brynhildur Halldórsdóttir
brynhildur@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 17. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Fræðslusetrið Starfsmennt auglýsir eftir ráðgjafa til að vinna með stofnunum að eflingu
mannauðsstjórnunar. Um er að ræða ráðgjöf sem miðar að því að efla starfsþróunarmöguleika,
starfsánægju og starfsumhverfi og bæta þannig starf stofnana. Leitað er að lausnamiðuðum
einstaklingi sem hefur í senn fagþekkingu og starfsreynslu á sviði mannauðsstjórnunar.
Helstu verkefni:
• Vinnustaðaheimsóknir og ráðgjöf við stofnanir
• Stuðningur við aðferðir mannauðsstjórnunar
• Ráðgjöf og fræðsla til stjórnenda og starfsmanna
• Kynningar- og markaðsstarf
• Þátttaka í innlendum og erlendum þróunarverkefnum
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í mannauðsfræðum
• Starfsreynsla á sviði mannauðseflingar
• Þekking á aðstæðum stjórnenda í opinberum rekstri er kostur
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti
• Mjög góðir samskiptahæfileikar
• Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna í hópi
Fræðslusetrið Starfsmennt er samstarfsvettvangur fjármálaráðuneytisins og stéttarfélaga
innan BSRB um símenntun, ráðgjöf og starfsþróun opinberra starfsmanna. Setrið þróar
og heldur utan um starfstengt nám um allt land í samstarfi við hagsmunaaðila og veitir
stofnunum ráðgjöf á sviði mannauðseflingar. Upplýsingar um starfsemi og hlutverk
Starfsmenntar má finna á heimasíðu setursins, www.smennt.is.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sölu- og markaðsfulltrúi
Nánari upplýsingar:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 15. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
GlaxoSmithKline ehf. óskar eftir að ráða starfsmann til að kynna líftæknilyf og nýjungar
fyrirtækisins fyrir heilbrigðisstéttum.
Starfssvið
Starfið felst í markaðssetningu og kynningu á líftæknilyfjum og
öðrum sérhæfðum sjúkrahúslyfjum. Viðkomandi skipuleggur og
sækir fræðslufundi og ráðstefnur á þeim sjúkdómasviðum sem
um ræðir og starfar náið með tengdum deildum innan GSK.
Viðkomandi eflir þekkingu á vörum GSK og veitir vandaðar
og áreiðanlegar upplýsingar sem byggðar eru á öflugum
rannsóknum fyrirtækisins. Starfað er eftir starfs- og siðareglum
GSK með heiðarleika og hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á heilbrigðissviði eða lífvísindum (lyfjafræði,
líffræði, hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun).
• Færni í mannlegum samskiptum
• Metnaðarfull vinnubrögð
• Dugnaður
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
• Góð almenn tölvuþekking
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
GlaxoSmithKline ehf. er dótturfyrirtæki GlaxoSmithKline plc, eins stærsta fyrirtækis
heims á sviði rannsóknar og þróunar nýrra lyfja og bóluefna. Markmið okkar er
að bæta lífsgæði fólks með því að gera því kleift að áorka meiru, líða betur og lifa
lengur. Nánari upplýsingar um fyrirtækið er að finna á www.gsk.com.