Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 87

Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 87
KYNNING − AUGLÝSING Ferðahýsi31. MARS 2012 LAUGARDAGUR 7 Sala á tjaldvögnum hefur auk-ist verulega síðustu ár. Þór Ragnarsson, sölumaður hjá Ellingsen, spáir því að engin und- antekning verði á því í ár. „Salan fer vel af stað. Allt bendir til þess að við Íslendingar séum loksins að komast upp úr hjólförum krepp- unnar.“ Spurður hvers konar tjaldvagn- ar njóti vinsælda segir Þór við- skiptavini helst á höttunum eftir léttum og meðfærilegum vögn- um. „Fólk kýs vagna sem eru ekki mikið þyngri en 250 kíló og þar af leiðandi bæði auðvelda og ódýra í drætti,“ útskýrir hann. Getur hann þess að tjaldvagnar af þessu tagi hafi lengi verið til á markaði en séu nú aftur að verða eftirsótt- ir eftir að eldsneytisverð hækkaði. Þór segir Ellingsen selja nokkr- ar gerðir tjaldvagna sem falla í þennan f lokk. Þar séu vagn- ar frá Camplet einna vin- sælastir. „Enda ekki að ástæðulausu. Því auk þess að vera léttir þá eru vagnarn- ir bæði rúmgóð- ir og þægilegir í uppsetningu. Það tekur ekki n e m a u m fimm til tíu mínútur að setja þá upp,“ bend- ir hann á og bætir við að fyrir utan hefðbundinn staðalbúnað á borð við vask, elda- vél, eldhúsinnréttingu og vatns- dælu sé fjölbreytt úrval aukahluta í boði. „Þar á meðal hliðarher- bergi, stórt þakskyggni, farang- ursbox framan á vagninn og margt fleira. Eða allt eftir þörfum hvers og eins. Gríð- arlegir mögu- leikar eru í boði.“ Fram- leiddar eru nokkrar gerð- ir af Camplet-tjaldvögnum. „Þar kemur Camplet Classic sterkur inn. Þetta er fjögurra manna tjald- vagn, átján fermetra, búinn svefn- herbergjum, fyrrnefndum staðal- búnaði og akrýl öndunardúk að auki. Með aukaherbergi verður hann sex manna,“ lýsir Þór. Vandað vörumerki Spurður út í Camplet segir hann þetta vera danskt fjölskyldufyrir- tæki sem eigi sér langa og farsæla sögu. Tjaldvagna hafi það fram- leitt í ein 40 ár og dæmi séu um að allt að 25 ára gamlir vagnar sjáist hér á götum. „Sem eru auðvitað góð meðmæli, sýnir fram á að endingin er góð, á undirvagni, skel og dúk,“ segir Þór. „Á þeim öllum er tveggja ára ábyrgð en hingað til hefur lítið reynt á hana.“ Þór segir vel tekið á móti gest- um og gangandi hjá Ellingsen. Fyrirtækið rekur verslanir á Fiski- slóð 1 í Reykjavík og Tryggvabraut 1 til 3 á Akureyri. Nánari upplýs- ingar á heimasíðu Ellingsen. Slóð- in er ellingsen.is. Camplet-tjaldvagnar: Léttir og meðfærilegir Rúmgóðir og meðfærilegir tjaldvagnar njóta vaxandi vinsælda hérlendis. Ellingsen selur slíka vagna í góðu úrvali. Þar á meðal Camplet-tjaldvagna sem góð reynsla er komin á hérlendis. Þór Ragnarsson, sölumaður hjá Ellingsen, spáir mjög góðri sölu á tjaldvögnum í ár. MYND/VALLI Camplet-tjaldvagnarnir eru búnir öllum helstu þægindum. MYND/VALLI Þórir segir Camplet-vagnana létta og meðfærilega sem geri þá þægilega í drætti og uppsetningu. „Þetta eru alveg rosalega f lottir vagnar, vel einangraðir, ekki nema um þrjátíu sekúndur í uppsetningu og búnir öllum helstu þægindum, miðstöð, ísskáp, eldavél og f leiru. Svo eru þeir alveg einstaklega þægi- legir í drætti. Munar næstum engu um þá.“ Þannig lýsir Þór Ragnarsson, sölu- maður hjá Ellingsen, Aliner, svo- kölluðum A-húsum, sem fyrirtæk- ið býður í góðu úrvali. Hann segir að miðað við hversu meðfærilegur vagnarnir séu, til dæmis minni en hjólhýsi, komi mörgum verulega á óvart hversu rúmgóðir þeir eru. „Fólk rekur oft upp stór augu þegar inn í vagnanna er komið. Enda er þetta næstum eins og að vera í hjólhýsi. Einn helsti munurinn er sá að menn þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því að komast heim til sín. Þeir brjóta bara húsin saman og fara heim.“ Þór segir góða reynslu komna á Aliner hérlendis. „Hún nær aftur um 20 ár en vagnarnir sjálfir hafa verið framleiddir í Bandaríkjunum í um 30 ár,“ bendir hann á og bætir við að Aliner hafi sett ný viðmið í framleiðslu A-húsa. „Sérstaklega er varðar þann eiginlega að geta brot- ið húsin saman. Í raun má segja að í þeim efnum sé Aliner fyrirmynd annarra A-húsa.“ Aliner fyrirmynd annarra A-húsa Ellingsen selur Aliner A-hús í góðu úrvali en þau eru þekkt fyrir fallega hönnun og þægindi. Flottir, vel einangraðir, einfaldir í uppsetningu og búnir öllum helstu þægindum. Þannig lýsir Þór Ragnarsson Aliner A-húsunum. Mörgum kemur á óvart hversu rúmgóð húsin eru. MYND/VALLI 3 Vel fer um fólk í Camplet Classic og er hægt að bæta við alls konar aukabúnaði til að auka á þægindin. Í ár ætlar Ellingsen að bjóða upp á þrjár gerðir af Aliner: Aliner Expedition Aliner Expedition Titanium Aliner Classic með utan vega (off-road) búnaði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.