Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 88
KYNNING − AUGLÝSINGFerðahýsi LAUGARDAGUR 31. MARS 20128
Family Camp er íslensk hönn-un frá A til Ö. Sá sem fram-leiðir hann var umboðs-
aðili fyrir CombiCamp á Íslandi
til fjölda ára og byggir á þeirri
reynslu,“ útskýrir Jóhannes Þór-
arinsson, innkaupastjóri hjá Vík-
urverki í Kópavogi en Víkurverk
fer með söluumboð Family Camp.
Tjaldvagninn er smíðaður hér á
landi til að standast íslenskar að-
stæður. Uppbyggingin er svipuð
og í hjólhýsi, vagninn er úr trefja-
plasti með 15 millimetra einangr-
un í hliðum og í lokinu er 10 milli-
metra einangrun. Undir svefn-
stæðinu er 15 sentimetra rými
sem einnig myndar einangrun-
arlag.
„Vagninn er mjög hlýr en dúk-
urinn er úr 100 prósent bómull og
svefntjöldin einnig. Ég svaf sjálf-
ur í svona vagni í lok október í sex
stiga frosti og þá var ekki nema
eins stig frost inni í vagninum,“
segir Jóhannes.
Þá eru einnig sérstök stormstög
sem tryggja stöðuglyndi þegar
hvasst er. Farangursgrindin er
hluti af læsingunni á lokinu svo
engin hætta er á að vagninn opn-
ist á ferð. Í vagninum er svefnpláss
fyrir fjóra í tveimur herbergjum.
Hann er einfaldur í uppsetningu
og tekur einungis nokkrar mínút-
ur að reisa hann og setja upp for-
tjald.
„Þetta er besti tjaldvagninn á
markaðnum í dag,“ segir Jóhann-
es. „Við höfum þegar kynnt hann
fyrir samstarfsaðilum okkar er-
lendis og það er gríðarlegur áhugi
á að selja hann út. Þá bjóðum við
miðstöð með tjaldvagninum sem
þekkist ekki annars staðar en það
hefur vantað á íslenskan mark-
að,“ útskýrir Jóhannes og segir
það meðal annars ástæðu þess að
margar fjölskyldur hafi farið úr
tjaldvagni yfir í fellihýsin undan-
farin ár. Tjaldvagninn sé þó lipr-
ari til allra ferða.
„Family Camp er einungis 310
kíló að eigin þyngd og hvaða bíll
sem er getur dregið hann. Við
bjóðum vagnana með 2 kílóvatta
miðstöð sem gengur fyrir gasi
og rafmagni. Það er því hægt að
nota vagninn í hvaða veðri sem
er allan ársins hring og þvælast
með hann þvert yfir hálendið. Ég
ætla til dæmis sjálfur í útilegu um
páskana en það er ekki algengt að
fólk komist í útilegu í byrjun apríl
á Íslandi, en með Family Camp er
það hægt. Tjaldvagninn er einn-
ig mjög þéttur og þolir vel að fara
yfir sverustu ár og það fer ekki inn
í hann eitt rykkorn á malarveg-
um,“ segir Jóhannes .
Family Camp var frumsýndur á
síðasta ári en sala hófst á honum í
ár. Jóhannes segir áhugann mik-
inn og Family Camp sé það sem
íslenskt útilegufólk hafi beðið
eftir.
„Íslendingar eru mikið fyrir
útilegur og þessi vagn er til dæmis
mjög sniðugur kostur fyrir ungt
barnafólk sem ekur á litlum,
eyðslugrönnum bíl. Hann er einn-
ig á mjög góðu verði en við bjóð-
um hann núna á tilboði með mið-
stöð á 1.390.000 krónur.“
Íslenskur tjaldvagn
Víkurverk kynnir tjaldvagn sem er sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður. Vagninn er hannaður og framleiddur
hér á landi og þolir vel ferðalög um hálendið og yfir óbrúaðar ár.
„Þetta er besti tjaldvagninn á markaðnum í dag,“ segir Jóhannes Þórarinsson, innkaupa-
stjóri hjá Víkurverki, en hann hefur sjálfur ferðast með Family Camp þvers og kruss um
landið í öllum veðrum. MYND/VILHELM
Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur her-
bergjum. MYND/VÍKURVERK
Family Camp er léttur tjaldvagn sem auðveldlega er hægt að ferðast með um hálendið. MYND/VÍKURVERK
Þetta er afskaplega skemmti-legur ferðamáti,“ segir Soffía Ólafsdóttir, formaður Fé-
lags húsbílaeigenda. Hún kveðst
hafa ferðast um landið í tjaldi til
að byrja með en árið 1990 fjárfest
í fellihýsi og skipt svo yfir í húsbíl
níu árum seinna. Hún hefur því
töluverða reynslu af hinum ýmsu
gerðum ferðahýsa.
,,Þetta er þriðji bíllinn sem við
eigum, ég er reyndar orðin ein
núna þar sem ég missti manninn
minn fyrir tveimur árum,“ segir
Soffía. Það aftrar henni þó ekki frá
því að setjast upp í húsbílinn og
aka af stað. Í dag ferðast hún mikið
með fjölskyldunni og vinahópum.
,,Það er þessi ferðabaktería í blóð-
inu, einn sonur minn er í félaginu
og er með bíl, svo hefur dóttir mín
ferðast með mér og barnabörnin.“
Einnig fer hún í ferðir með ferða-
félögum í Félagi húsbílaeigenda
sem er með skipulagðar hópferð-
ir á hverju ári vítt og breitt um
landið. Soffía fékk sjálf ferðabakt-
eríuna frá sínum foreldrum sem
ferðuðust mikið. ,,Þau voru komin
með húsbíl löngu á undan okkur
og við fengum húsbílabakteríu frá
þeim, svona gengur þetta í næstu
ættleggi.“ Spurð hvort hún eigi
sér uppáhaldsstað á landinu segir
Soffía að litadýrðin á Þingvöllum á
haustin sé einstök. „Gaman er að
fara í helgarferð á haustin bara til
að fylgjast með litadýrðinni, ef að
gott er veður og spegilslétt vatnið.
Þá er það eins og málverk.“
Bíllinn sem hún ekur á er 2009
árgerðin af Fiat með LMC yfir-
byggingu sem hún keypti hjá Vík-
urverki. ,,Maður fer ekki mikið út
fyrir hefðbundna vegi á þessum
bíl, við köllum þessa bíla pappa-
kassa. Það eru bílar sem eru betur
búnir til fjallaferða sem notaðir
eru í það“. Hún bendir fólki á að
skoða vel það sem í boði er áður
en fjárfest er í bíl. Gott sé að leita
ráða hjá fólki sem átt hefur húsbíl í
einhvern tíma, svo sé bara að skoða
og spyrja ráða hjá söluaðilum. Hún
hrósar Kjartani Jóni Bjarnasyni,
verkstæðisformanni Víkurverks,
sérstaklega og er greinilega ánægð
með þá þjónustu sem bíllinn hefur
fengið þar.
Soffía hefur mest ferðast innan-
lands en þó farið tvisvar til Færeyja
og einu sinni til Noregs og segist
vel geta hugsað sér að fara á báða
þessa staði aftur í góðra vina hópi.
Hvað varðar sumarið er nóg um
að vera. Þar á meðal „stóra ferðin“
sem er níu daga ferð sem farin er
á hverju ári á vegum félagsins. Að
þessu sinni er stefnan tekin á Vest-
firðina. ,,Ég hvet alla þá sem eiga
húsbíl að ganga í Félag húsbílaeig-
enda, þetta er skemmtilegur félags-
skapur með lífsglöðu og skemmti-
legu fólki sem á það sameiginlegt
að ferðast um landið,“ segir Soffía.
Hún bendir áhugasömum á heima-
síðu Félags húsbílaeigenda, husbill.
is, þar sem er að finna allar upplýs-
ingar um þær ferðir sem farnar eru
auk annars fróðleiks.
Með ferðabakteríu í blóðinu
Soffía Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda, segir haustlitadýrðina á Þingvöllum vera eitt af því fegursta sem getur að líta á landinu.
Soffía við eldamennskuna í húsbílnum. Félagar úr húsbílafélaginu á góðri stund.Fiatinn á Hellisandi.
FAMILY CAMP
Galvaniseruð grind með AL-KO
flexitor
13 tommu felgur
Heildarlengd 360 sentimetrar-
Breidd 171 sentimetrar
Heildar leyfileg þyngd 550 kg
Burðargeta 240 kg
4