Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 93
Sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar eru fjölmargir.
Um 7O eru á lista og um 2O mæta í hverri viku til
mismunandi verkefna.
Sumir flokka föt sem hafa verið gefin og raða í hillur
eftir stærðum og gerðum, aðrir taka að sér að úthluta
fötunum. Nokkrir flokka umsóknir og fara í gegnum
gögn. Svo þarf að taka til og breyta skipulagi og annað
sem til fellur.
Starfsmenn Hjálparstarfsins eru sjö. „Án sjálfboða-
liðanna væri þetta ekki hægt“ segir Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi Hjálparstarfsins, „aðstoðin sem við
veitum er það fjölbreytt og viðamikil að við gætum
þetta ekki án sjálfboðaliðanna. Þeir eru líka svo
áhugasamir og hvetjandi og hafa oft lausnir á
vandamálum sem við höfum ekki komið auga á.
Við erum mjög þakklát fyrir frábært framlag þeirra.“
Milli stríða er sest við kaffiborðið, þá eru oft frjóar
umræður um starfið og hvernig megi bæta það enn
frekar.
Hjálparstarfið vill halda vel utanum sjálfboðaliðana og
hefur sett sér verklagsreglur sem tryggja eiga trúnað
og virðingu.
„Takið þið á móti fötum?“ er algeng spurning til okkar
á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar. Svarið er „Já, við
tökum á móti öllum fötum, sérstaklega koma föt á börn
og unglinga sér vel.“
Sjálfboðaliðar fara í gegnum fötin sem við fáum, flokka
og raða í hillur. Fataúthlutun fer fram á þriðjudögum
kl. 1O-12. Aftur eru það sjálfboðaliðar sem taka á móti
fólki og aðstoða við að finna réttar stærðir. Mikið
magn berst í hverri viku, ný og notuð föt sem eru vel
með farin. Öll föt eru afhend án endurgjalds og koma
sér mjög vel fyrir marga. Það kostar ekki lítið að klæða
unglinga í dag og þegar börnin eru fleiri en eitt þarf
ekki að efast um að kostnaðurinn getur orðið mikill.
Þau föt sem fara ekki út á ákveðnum tíma eru gefin
áfram til hjálparstarfs erlendis og það sem sem er
ónothæft fer til Fjöliðjunnar á Akranesi í tuskugerð.
Ekkert fer til spillis.
Hjálparstarfið þakkar þeim fjölmörgu sem hafa
komið með föt á skrifstofuna að Háaleitisbraut 66,
1O3 Reykjavík. Fataúthlutunin fer fram í lagerhúsnæði
á sama stað.
„Án sjálfboðaliðanna
væri þetta ekki hægt“
Margt smátt ... – 7
Stund milli stríða hjá sjálfboðaliðum.
Skjólstæðingar hafa orðið:
„Núna förum
við bara í
venjulega búð“
Einstæð móðir með 3 börn. Er frá Litháen en hefur
búið á Íslandi í 7 ár. Er í 5O% starfi.
„Aðalvandamálið hjá mér er að launin duga ekki fyrir
útgjöldum mánaðarins. Ég er ekki með neinar skuldir
en þarf að borga leigu og annan fastan kostnað. Ég lifi
mjög sparlega, bruðla ekkert, launin eru bara svo lág
og ég get ekki fengið meira en 5O% starf“.
Hvernig finnst þér kortaleiðin koma út fyrir þig?
„Það er frábært að þurfa ekki að bíða í röð og geta
valið sjálfur í matvörubúð hvaða mat við borðum“.
Hvernig virkar kortaleiðin með tilliti til barna?
„Mjög vel, þau sögðu við mig einu sinni áður þegar við
biðum eftir að fá mat í poka: „þetta er skrítin búð sem
við förum í hér, þetta er ekki venjuleg búð“. Nú geta
þau komið með í venjulega búð eins og aðrir“.
Sérðu einhvern galla við kortaleiðina?
„Auðvitað mætti upphæðin sem er lögð inn vera hærri,
en ég kvarta ekki, það munar mikið um þetta.“
Hefurðu nýtt þér aðra aðstoð?
„Já ég hef fengið stuðning til lyfjakaupa og almenna
ráðgjöf.“
Eitthvað að lokum?
„Það er gott að koma til Hjálparstarfsins, hér er fólk ekki
flokkað eftir þjóðerni eins og ég upplifði á öðrum stað.“
„Takið þið á móti fötum?“ Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf
sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið
í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins
sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr.
Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is
eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400.
Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig.
Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
Ipod
Webcam
Handklæði
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman að fá
pening og „Gjöf sem
gefur“. Mig langar til
að einhver sem er ekki
eins heppinn og ég fái
að njóta með mér.
Við systkinin erum munaðarlaus.
1.990 kr. fermingarskeyti á
Íslandi dugar fyrir 3 hænum.
Þær gefa okkur fullt af eggjum.
Eða við gætum fengið sparhlóðir.
Þá færi ekki allur dagurinn í að
leita að eldsneyti og við
hefðum meiri tíma til að læra.
5.000 kr. gjafabréf á Íslandi
myndi gefa okkur 1 geit.
Namm! Mjólk og kjöt, ekki
lengur bara maísgrautur!
Óskalistinn minn:
www.gjofsemgefur.is