Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 99
31. mars 2012 LAUGARDAGUR59
ég hafði samið. Þeir voru mjög
jákvæðir og hvöttu mig til að
gera eitthvað með það efni, en
sjálfir voru þeir of uppteknir á
þessum tíma. Það varð úr að Daði
Birgisson hljóðupptökumaður og
hljómborðsleikari, sem vann með
mér að plötunni Haustlauf, kom
mér í samband við Kristin Snæ
Agnarsson, fyrrum trommara
Hjálma. Kristinn tók við bolt-
anum og fékk til liðs við okkur
Ómar Guðjónsson gítarleikara,
Inga Björn Ingason á bassa, Daða
Birgisson á hljómborð, Ara Braga
Kárason trompetleikara, Valdi-
mar Guðmundsson sem syngur
mörg laganna og Kristjönu Stef-
ánsdóttur söngkonu. Það hefur
verið ótrúlega gaman að vinna
með þessum mönnum. Þeir eru
ótrúlega jákvæðir og hvetja mig
áfram, auk þess sem þeir eru
algerir snillingar.“
Börnin fluttu fyrst heim
Eftir að hafa lokið læknanámi
við Háskóla Íslands fluttist Helgi
til Bandaríkjanna og var þar
við nám og störf í 25 ár eins og
áður sagði, fyrst í Chicago, svo
í miðvestur-fylkjunum Iowa og
Nebraska og loks í Norður-Kar-
ólínu síðustu tólf árin.
Hvað kom til að þið f luttuð
heim á ný fyrir einu og hálfu ári?
„Það skipti mestu máli að öll
börnin okkar þrjú voru flutt til
Íslands. Konan mín fór alltaf með
börnin á heimaslóðir sínar á fal-
legum sveitabæ í Skriðdal á Hér-
aði á sumrin og stundum voru
börnin hjá móðursystur sinni á
Eskifirði. Þetta eru tveir ævin-
týraheimar sem þau tengdu við
Ísland og höfðu alltaf mjög sterk-
ar taugar til landsins. Þegar dótt-
ir mín var átján ára vildi hún
prófa að fara í íslenskan mennta-
skóla í einn vetur og við leyfð-
um henni það. Ég bjóst kannski
við því að íslenska veðráttan og
myrkrið myndi slökkva þessa
þrá en þvert á móti varð hún enn
spenntari og vildi alls ekki fara
til Bandaríkjanna aftur. Bræður
hennar tveir fylgdu svo í kjölfar-
ið og allt í einu vorum við hjónin
orðin tvö ein eftir og barnabörn
á leiðinni heima á Íslandi. Þá
var ekki annað hægt en að fara
heim.“
Var eitthvað við Ísland sem þú
saknaðir frekar en annars?
„Ég saknaði náttúrunnar, fólks-
ins og þess að vera til á Íslandi.
Náttúran hér er svo falleg og
ekki síður aðgengileg og þægileg.
Mjög víða er alls ekki hægt að
leggjast niður á jörðina án þess
að hafa áhyggjur af skordýrum
og slöngum, en hér er því ekki að
skipta. Hér leggst maður í mos-
ann óhræddur og rólegur. Svo
er það gestrisnin. Hér er hægt
að líta við í heimsókn hjá vinum
hvenær sem er, en það þykir hinn
mesti dónaskapur í Bandaríkjun-
um þar sem helst þarf að láta vita
af slíku með mánaðar fyrirvara.
Mannlífið er líka miklu dýna-
mískara hér og menningin á ótrú-
lega háu plani. Mér finnst tónlist-
armenn hér ótrúlega færir miðað
við það sem maður sér úti, jafn-
vel á tónleikum frægra tónlistar-
manna. Hér er líka svo algengt
að fólk sé að dunda sér við skap-
andi hluti. Þegar það spurðist út í
Bandaríkjunum að ég hefði gefið
út plötu þótti það til að mynda
stórviðburður, en hér hefur nán-
ast annar hver maður sent frá sér
plötu og engin tíðindi í því. Kröf-
ur til tónlistarmanna eru meiri á
Íslandi. Hér dytti mönnum aldrei
í hug að bjóða upp á ýmislegt sem
borið er fram úti. Það var því
ansi margt sem dró okkur heim.“
Allt nema þungarokk
Helgi Júlíus er nú þegar langt
kominn með upptökur á fjórðu
plötu sinni, ásamt sama hópi
og vann með honum að reggí-
plötunni sem kom út í janúar,
og áætlar að senda hana frá sér
seinni part sumars eða í haust.
Í þetta sinn er það blús sem er
dagsskipunin.
Þú vílar ekki fyrir þér að skipta
um tónlistarstefnur milli platna?
„Nei, enda er ég ekki að reyna
að byggja upp feril sem tónlist-
armaður á einu ákveðnu sviði.
Þegar ég sem lög er það oftast
sálarástandið sem ræður hvað
úr verður. Ég á meira að segja
rokklög, fönklög, djass, suður-
ameríska tónlist, sveitatónlist og
mikið af þjóðlagapoppi á lager.
Ég ólst upp í Bítlaæðinu og sú
hljómsveit er enn í miklu upp-
áhaldi, enda varla annað hægt.
Ég man að Róbert Abraham,
stjórnandi Sinfóníunnar sem
leyfði mér að glamra á hljóðfærin
sín sem barn, var klassískur tón-
listarmaður en kunni þó að meta
Bítlalögin á sínum tíma. Stevie
Wonder er einn af mínum uppá-
halds tónlistarmönnum og einnig
Ray Charles og Michael Jackson.
Í raun hef ég gaman af allri tón-
list nema kannski helst þyngsta
þungarokkinu. Það er athygl-
isverð tónlist á margan hátt,
tæknilega erfið og mikil áskorun
fyrir hljóðfæraleikara, en ég set
aldrei þungarokksplötu á fóninn
og hlusta með lokuð augun.“
Hefurðu leitt hugann að sókn á
erlend mið?
„Nei, alls ekki, enda er ég
enginn tónlistarflytjandi. Ég
get glamrað nægilega vel til að
semja lög en snerti nánast ekki
hljóðfæri á plötunum mínum,
finnst mun betra að fá fagmenn
í það. Ef þú ferð með bílinn þinn
á verkstæði viltu að færasti bif-
vélavirkinn geri við hann. Á
sjúkrahúsi viltu að færasti sér-
fræðingurinn sjái um þig en
ekki lærlingurinn. Á sama hátt
þykir mér svo vænt um lögin
mín að ég vil að þeim séu gerð
góð skil á plötunum. Til þess
þarf besta fólkið. Eina aðkoma
mín að erlendum tónlistarmark-
aði væri hugsanlega að semja
lag fyrir alþjóðastjörnu, en það
er bara fjarlægur draumur. Ég
hef unnið sem heilsugæslulækn-
ir frá því ég flutti til Íslands, en
draumurinn er að komast á það
stig að tónlistin borgi sig sjálf.
Margir spyrja hvernig ég hafi
efni á að gefa þessar plötur út.
Það er eðlileg spurning, enda
kostar það sitt. Ég hef þó mína
forgangsröðun á því hvað vert er
að eyða peningum í. Ég keyri til
dæmis um á sautján ára gömlum
bíl. Ég kýs frekar að borga fyrir
plötuútgáfu en nýjan Mercedes
Benz. Það skilur meira eftir sig í
lífi mínu en flottur kaggi.“
Ég kýs frekar að borga
fyrir plötuútgáfu
en nýjan Mercedes
Benz. Það skilur meira
eftir sig í lífi mínu en
flottur kaggi.
Ársfundur 2012
Ársfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 22. maí,
kl. 16.30. Verður hann auglýstur nánar síðar.
Yfirlit um afkomu 2011
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · Fax 510 7401 · s l@sl . is · www.sl . is
Efnahagsreikningur (í flús. kr.)
Yfirlit um breytingar á hreinni eign til grei›slu lífeyris
Lífeyrisskuldbindingar skv. ni›urstö›u tryggingafræ›ings
Kennitölur
Ávöxtun séreignardeildar 2011
Sjó›félagar
25.295.415
56.852.271
2.418.231
790.054
923.143
184.837
86.463.951
-356.653
2.296.371
88.403.669
2.769.686
-1.857.145
6.907.017
-113.757
-89.101
7.616.700
0
80.786.969
88.403.669
-3.188.272
-3,5%
-5.206.676
-4,0%
8,4%
3,0%
0,7%
4,1%
7.232
8.095
0,10%
82,1%
17,9%
21.485.918
52.179.769
2.477.177
1.663.285
1.192.623
52.412
79.051.184
-524.842
2.260.627
80.786.969
2.415.384
-1.651.229
5.077.762
-88.218
-118.593
5.635.106
7.431.574
67.720.289
80.786.969
-1.709.000
-2,0%
-3.290.000
-2,7%
6,1%
3,4%
0,8%
3,8%
6.992
7.198
0,13%
81,5%
18,5%
Ver›bréf me› breytilegum tekjum
Ver›bréf me› föstum tekjum
Ve›lán
Innlán og bankainnistæður
Kröfur
A›rar eignir og rekstrarfjármunir
Skuldir
Séreignarsjóður, Söfnunarleið I og II
Samtals
I›gjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostna›ur
Hækkun á hreinni eign á tímabilinu
Sjóðir sameinaðir sjóðnum 2010
Hrein eign frá fyrra ári
Samtals
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum
Eignir umfram heildarskuldbindingar
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum
Sjóðurinn hefur ekki þurft að skerða réttindi vegna falls bankanna haustið 2008 né nokkru sinni áður.
Nafnávöxtun
Hrein raunávöxtun
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal
Fjöldi virkra sjóðfélaga
Fjöldi lífeyrisþega
Rekstrarkostnaður í % af eignum
Eignir í íslenskum krónum
Eignir í erlendum gjaldmiðlum
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur var 8,4% eða 3,0% raunávöxtun. Nafnávöxtun
Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmiss verðbréf nam 14,3% eða 7,1% raunávöxtun. Er þetta sú ávöxtun
sem rétthafar njóta. Heildareignir séreignardeildarinnar eru 2.296,4 milljónir króna í árslok 2011 og vaxa
um 1,6%.
Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem eiga ekki kjarasamnings-
bundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að
velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign.
31.12.2011 31.12.2010
Í stjórn sjó›sins eru
Guðmundur Árnason formaður, Hrafn Magnússon varaformaður, Arnar Sigurmundsson,
Friðbert Traustason, Gunnar Gunnarsson, Þorbjörn Guðmundsson, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir.
Framkvæmdastjóri er
Sigurbjörn Sigurbjörnsson
Traustur sjóður,
trygg framtíð