Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 105
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 65
en hún lék um árabil með Val og
varð Norðurlandameistari með
íslenska handknattleikslands-
liðinu árið 1964.
„Sigrún er ofsalega mikill
Valsari og ég ber líka mikinn hlý-
hug til félagsins og leiðist þessi
illindi milli sumra stuðnings-
manna Vals og KR, þótt smá
rígur sé auðvitað bara skemmti-
legur. Við fórum mikið saman á
völlinn í gamla daga og það var
dálítið erfitt í kringum 1972 þegar
Valur var með sitt gullaldarlið í
fótboltanum. Þá varð ég oft svo
fúll þegar KR tapaði fyrir Val að
á endanum stakk Sigrún upp á því
að við slepptum því bara að fara
á leiki liðanna, sem við gerðum,“
segir Einar og hlær.
Geirfinnsmálið var klúður
Árið 1976 sat Einar, ásamt þremur
öðrum, saklaus í 105 daga í ein-
angrun í Síðumúlafangelsinu
eftir að Erla Bolladóttir og aðrir
sakborningar í Geirfinnsmálinu
höfðu bendlað hann við málið.
Í október síðastliðnum skipaði
innanríkisráðherra starfshóp til
að fara yfir gögn í málinu og var
Einar meðal þeirra sem leitað
var til í þeim tilgangi að varpa
frekara ljósi á málið og rannsókn
þess á sínum tíma.
„Ég settist niður með starfs-
hópnum í kaffi og kökur og ræddi
við þetta fólk sem var alveg yndis-
legt. Eftir smá stund varð ég þó að
standa upp og fara fram, næstum
fjörutíu árum síðar, því það
þyrmdi yfir mig. Þetta er nokkuð
sem fer ekki í burtu heldur verður
maður að læra að lifa með því,“
segir Einar og bætir við að hann
hafi aldrei lesið staf í málsgögn-
um eftir áfallið sem einangrunar-
vistin olli honum. Hann hefur
kosið að tjá sig fremur lítið um
málið hin síðustu ár. „Mér fannst
komið nóg af þessu og sérstaklega
núna síðustu árin þegar margir, til
dæmis Erla hálfsystir mín sem ég
hef skiljanlega haft lítil samskipti
við, tjá sig um málið. Auðvitað veit
ég ekkert um það hvort þetta fólk
sem var dæmt er sekt eða sak-
laust. Aftur á móti veit ég að það
er ekki saklaust að því að hafa
logið upp á fjóra saklausa menn.
Fyrir það átti það sannarlega
skilið að sitja inni í einhver ár, en
það er eins og margir gleymi því
alltaf. Allt þetta mál var hvílíkt
klúður og það er ótrúlegt að engir
hausar skuli hafa verið látnir
fjúka í kjölfar þess.“
David Stern fúll á öræfum
Einar var kennari í 23 ár og sá
aðallega um dönskukennslu, fyrst
í Gagnfræðaskóla Vestur bæjar,
sínum gamla skóla, en einnig
á Akureyri og víðar en lengst í
Flensborg. Hann lagði körfu bolta-
skóna á hilluna árið 1979 og marg-
ir sem yngri eru muna fyrst eftir
honum sem sjónvarpsmanni á Stöð
2, en þar lýsti hann NBA-leikjum
við góðan orðstír um árabil.
„Það var mjög gaman að eiga
þátt í þessari miklu körfubolta-
sprengju sem varð í kjölfarið á
því að Stöð 2 hóf að sýna NBA-
leiki,“ segir Einar og bætir við
að téða sprengingu megi rekja
til Jónasar R. Jónssonar, fyrrum
umboðsmanns íslenska hests-
ins og þáverandi starfsmanns
Stöðvar 2. „Jónas var á ferðinni
í New York og labbaði sér ein-
faldlega inn á skrifstofu NBA-
deildarinanr og spurði hvort hann
mætti ekki senda út leiki. Þetta
var ótrúlegt. Við vorum fjórða
landið sem sýndum NBA-leiki
á eftir Bandaríkjunum, Frakk-
landi og Filipseyjum og njótum
þess enn að hafa verið svona fljót
af stað. David Stern, yfirmað-
ur deildarinnar, hefur sagt mér
frá því að það vakti mikla öfund
hjá stærri þjóðum þegar litla
Ísland var ávallt sett í öndvegi,
til dæmis þegar við fórum út til
að lýsa Stjörnu leikjunum á sínum
tíma. Stern hefur reyndar komið
til Íslands með konunni sinni þar
sem þau gistu í tjaldi á Norður-
landi í þrjár vikur. Konan hans er
mikill náttúruunnandi en Stern
kallinn var ekki sérlega hrifinn af
þessu. Hann var hundfúll yfir að
hírast heillengi í einhverju tjaldi
uppi á öræfum.“
„Ég er í Þjóðkirkjunni og ég er í KR. Ekkert endilega
í þessari röð,“ segir Einar hlær þegar talið berst að
ástríðu hans fyrir félaginu sem hann lék með og
þjálfaði í áraraðir. Eftir að ferlinum lauk hefur hann
ávallt fylgst vel með árangri KR í körfunni og mætir
á flesta leiki. „Ég verð oft hrikalega stressaður á
leikjum, sérstaklega í úrslitakeppninni, og get varla
horft. Oft er ég á fleygiferð um húsið og stundum
bíð ég úti og fæ einhvern til að segja mér hvernig
staðan er.“
KR hóf titilvörn sína í úrslitakeppninni á fimmtu-
dagskvöld með sigri á liði Tindastóls. Einar segir
baráttuna verða erfiða í vor, KR hafi á að skipa
mörgum góðum leikmönnum en stundum vanti
baráttu í liðið. „Það vantar smá Fannar í þá,“ segir
hann og vísar til fyrirliða liðsins á síðasta ári sem tók
við af Einari sjálfum sem framkvæmdastjóri Íshesta.
„En á góðum degi getum við unnið hvern sem er.“
STRESSAÐUR Á KR-LEIKJUM
MYND/SVEINN ÞORMÓÐSSON
FEÐGIN Einar með Bryndísi dóttur sinni, sem um árabil hefur
unnið við hlið foreldra sinna hjá Íshestum, árið 2005.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
arionbanki.is – 444 7000
Fermingargjöf
Arion banka
Þegar stórum áfanga er náð er mikilvægt að huga að framtíðinni.
Arion banki leggur til 5.000 kr. mótframlag ef 30.000 kr. eða meira
eru lagðar inn á Framtíðarreikning. Framtíðarreikningur gefur hæstu
vexti almennra verðtryggðra sparnaðarreikninga bankans og er því
áhugaverð leið fyrir ungt fólk sem vill byrja að undirbúa framtíðina.
Láttu gjöfina taka vaxtarkipp hjá okkur.