Fréttablaðið - 31.03.2012, Qupperneq 114
31. mars 2012 LAUGARDAGUR74
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
MARGRÉTAR FINNBOGADÓTTUR
sem andaðist 3. mars síðastliðinn á
Droplaugarstöðum.
Valgerður I. Jóhannesdóttir Sigurður Sverrir Guðmundsson
Rafnhildur R. Jóhannesdóttir Agnar Olsen
Bryndís Margrét, Bjarki, Berglind og fjölskyldur
Margrét, Laufey, Sigurgeir og fjölskyldur.
Ástkær sambýlismaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN SIGURÐSSON
Engjaseli 52,
lést á Líknardeild LSH í Kópavogi 24. mars.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 2. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð Karitas.
Ingunn Jóna Óskarsdóttir
Sigurður Jónsson Anna Elínborg Svavarsdóttir
Helga Jónsdóttir Laufey Fríða Hjálmarsdóttir
Ása Einarsdóttir Birgir Ernst Gíslason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
TRYGGVI KARL EIRÍKSSON
viðskiptafræðingur,
lést miðvikudaginn 28. mars. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
10. apríl kl.13.00.
Ágústa Tómasdóttir
Erla Berglind Tryggvadóttir Þórður Ófeigsson
Ragnhildur Ýr Tryggvadóttir
Ástþór Hugi Tryggvason
Jónína Margrét Þórðardóttir
Steinunn Ágústa Þórðardóttir
Þórdís Erla Þórðardóttir
80 ára afmæli x 2
Kæru ættingjar og vinir.
Bestu þakkir til ykkar sem heiðruðu okkur hjón þann
17. mars sl. í tilefni 80 ára afmælis okkar.
Sérstakar þakkir til starfsfélaga sem glöddu okkur og alla
viðstadda með söng og hljóðfæraleik.
Hafið öll bestu þakkir
Guð blessi ykkur
Sieglinde Kahmann Björnsson
Sigurður Björnsson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
BIRNA ODDSDÓTTIR
meinatæknir,
áður til heimilis að Kleppsvegi 26,
lést að Droplaugarstöðum laugardaginn 24.
mars.Útförin fer fram frá Laugarneskirkju,
þriðjudaginn 3. apríl kl. 13.00. Þeim sem
vildu minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigríður Kristín Birnudóttir Ingvi Már Pálsson
Emilía, Karítas og Lovísa Ingvadætur
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts
og útfarar föður míns, tengdaföður, afa og
langafa,
JÓNASAR H. HARALZ
hagfræðings, Efstaleiti 12.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Markar fyrir góða
umönnun.
Halldór Haralz Gyða Rafnsdóttir
Belinda Ýr Albertsdóttir Atli Ólafsson
Jónas Halldór Haralz
Guðrún Gyða Haralz
Ásdís Gyða Atladóttir
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir, bróðir og afi,
STEFÁN MAGNÚS BÖÐVARSSON,
kennari, Lágengi 13, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Selfossi að kvöldi mánudagsins 26. mars.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 4. apríl kl. 13.30.
Anna Björg Þorláksdóttir
Böðvar Stefánsson Arnheiður Helgadóttir
Gyða Vestmann Hróðvar H. Jóhannsson
Böðvar Stefánsson Agnes Þorsteinsdóttir
Einar Þór Stefánsson
Svavar Ingi Stefánsson
Reynir E. Böðvarsson
Ann Olanders Böðvarsson og barnabörn.
24 tíma vakt
Davíð H. Ósvaldsson
S: 896 8284
Óli Pétur Friðþjófsson
S: 892 8947
Sími 551 3485
ÞEKKING –REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON rithöfundur er áttatíu og fjögurra ára.
„Hver ný byrjun dæmir úr leik eitthvað sem átti að endast.“
„Við höfðum allar upplifað nei kvæðar
afleiðingar kynlífs hjá unglingum í
okkar störfum, svo sem ótímabærar
þunganir, fóstureyðingar, nauðganir og
kynsjúkdóma. Því ákváðum við að taka
höndum saman gegn því.“ Þetta segir
Sigurlaug Hauksdóttir, yfirfélagsráð-
gjafi hjá Embætti landlæknis, um for-
varnarverkefnið Tölum saman – sam-
skipti foreldra og unglinga um kynlíf,
sem hún, Guðbjörg Edda Hermanns-
dóttir félagsráðgjafi og Dagbjört
Ásbjörnsdóttir mannfræðingur hafa
starfrækt á eigin vegum í áratug. Allar
eru þær með meistaragráður í kynheil-
brigðismálum. Nýlega voru þær Sigur-
laug og Guðbjörg Edda valdar félags-
ráðgjafar ársins af fagfélaginu sínu
þar sem lögð var áhersla á þetta frum-
kvöðlastarf.
Sigurlaug segir þær stöllur hafa
orðið varar við það að sum ungmenni
hafi á erfiðum stundum veigrað sér við
að þiggja aðstoð frá foreldrum sínum.
„Okkur fannst erfitt að sjá ungt fólk
tvístíga við að þiggja stuðning for-
eldra sinna þegar þau lentu í áföllum.
Umræða um kynlíf hafði oftast ekki átt
sér stað á heimilunum og þau óttuðust
því viðbrögð foreldranna.
Sigurlaug telur að mörg vandamál
megi fyrirbyggja ef opin umræða
um kynlíf unglinga væri meiri inni á
heimilum, í skólum og í samfélaginu.
Hún eigi þó ekki að vera formleg.
„Þetta snýst meira um að foreldrar
grípi boltann þegar þeir heyra eitt-
hvað í útvarpinu eða lesa í blöðunum,
kanna hvað krökkunum finnst og tjá
sína eigin skoðun. Það hefur svo mikið
að segja að þetta sé rætt eins og hvað
annað í okkar lífi.“
Sigurlaug, Guðbjörg Edda og Dag-
björt hafa á tíu árum haldið hátt á
annað hundrað námskeið í skólum.
Fræðslan samanstendur af fyrir-
lestrum, hópavinnu og pallborðsum-
ræðum. Þar gefst foreldrum og ung-
lingum meðal annars tækifæri til að
skyggnast inn í reynsluheim hvers
annars. Hvernig finnst Guðbjörgu
Eddu hafa til tekist á þessum tíu árum?
„Við vonum að við höfum fengið
einhverju áorkað. Þetta umræðuefni
er oft alveg nýtt fyrir for eldrunum
því yfirleitt var ekki rætt við þá
um þennan málaflokk þegar þeir
voru ungir. Þannig erum við í raun
að gera þá að frumkvöðlum í því að
rjúfa þessa aldagömlu þögn og koma
með því í veg fyrir vandamál. Það
er ofboðslega mikið höfðað til kyn-
lífs víða í okkar samfélagi og viðhorf
foreldra hefur mikið að segja um það
hvernig börnin takast á við það áreiti.
Krakkar þurfa umræðu um hvað sé
eðlilegt og hvað ekki og hvað sé rétt
og rangt. Upp til hópa eru krakkar
að standa sig rosalega vel hvað þetta
varðar en það skiptir máli að allir
leggi sitt af mörkum.“
Sé óskað eftir fræðslunni Tölum
saman er hægt að hafa samband við
þær stöllur gegn um netföngin: silla-
hauks@gmail.com og gudbjorgedda@
hotmail.com gun@frettabladid.is
FÉLAGSRÁÐGJAFAR ÁRSINS: FRUMKVÖÐLAR Í FRÆÐSLU OG FORVÖRNUM
Hafa rofið aldagamla þögn
GUÐBJÖRG EDDA OG SIGURLAUG „Það er ofboðslega mikið höfðað til kynlífs víða í okkar sam-
félagi og viðhorf foreldra hefur mikið að segja um það hvernig börnin takast á við það áreiti.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikritið Pétur Gautur eftir Hendrik Ibsen var sýnt
í fyrsta skipti á Íslandi þennan dag árið 1944.
Leikfélag Reykjavíkur og Tónlistarfélagið stóðu
að þeirri sýningu í Iðnó. Þýðingin var eftir Einar
Benediktsson og leikstjóri var norska leikkonan
Gerd Grieg. Lárus Pálsson lék aðalhlutverkið í
verkinu, sjálfan Pétur Gaut, Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir lék Ásu móður hans og Alda Möller
„þá grænklæddu“.
Pétur Gautur þykir eitt af meistaraverkum
Henriks Ibsens, snilldarlegur ljóðleikur um leitina
að sjálfum sér, lífslygi og blekkingar. Verkið aflaði
skáldinu heimsfrægð á sínum tíma.
Sýningin í Iðnó þótti líka leiklistarviðburður
á Íslandi og var afar vel tekið af leikhúsgestum.
Leikdómendur í blöðunum luku miklu lofsorði á
leikstjórn frú Grieg og töldu frammistöðu margra
leikaranna með ágætum.
ÞETTA GERÐIST: 31. MARS 1944
Pétur Gautur á svið á Íslandi
Merkisatburðir
1863 Kona kýs í fyrsta skipti
í bæjarstjórnarkosn-
ingum á Íslandi. Það er
maddama Vilhelmina
Lever á Akureyri.
1889 Eiffelturninn er vígður.
1909 Björn Jónsson tekur
við ráðherraembætti af
Hannesi Hafstein.
1955 Togarinn Jón Baldvins-
son strandar við Reykja-
nes. Allri áhöfninni, 42
mönnum, er bjargað.
1966 Sovétríkin skjóta upp
geimfarinu Luna 10 og
komu því á sporbaug
um tunglið.
1979 Steingrímur Hermanns-
son tekur við sem for-
maður Framsóknar-
flokksins af Ólafi
Jóhannessyni.