Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 120
31. mars 2012 LAUGARDAGUR80
Hvað heitir þú fullu nafni? Ég
heiti fullu nafni Sunna Karítas
Oktavía Torfhildur Tildurrófa
Aðaldal. Ég er nefnd í höfuðið
á ömmum mínum, lang ömmum
og svo er ættarnafnið Aðaldal.
Í minni fjölskyldu heita allir
mörgum nöfnum. En ég er alltaf
kölluð Skotta, þótt ég sé auðvitað
ekki með skott. Ég var bara alltaf
eitthvað að skottast þegar ég
var lítil og svo er þetta reyndar
skammstöfunin mín líka.
Ertu álfur? Já! Ég kom frá álf-
heimum til mannheima til að
reyna að finna álfa sem höfðu
horfið úr álfheimum. Það var
heilmikill hasar en við Rósen-
berg fundum þá að lokum.
Hvað eru Gleðitíðindi? Þegar ég
kom til mannheima ákvað ég að
prófa að gefa út dagblað. Þá gæti
ég auglýst eftir týndu álfunum.
Svo fannst mér svo gaman að
gefa út blað að ég hélt því bara
áfram. Ég prenta það sjálf og ber
það svo út.
Áttu mömmu og pabba? Já og
þau búa í álfheimum. Pabbi kom
reyndar einu sinni í heimsókn til
mín til mannheima en mamma
hefur ekki enn komið. Hún vildi
alls ekki að ég flytti til mann-
heima en núna er hún búin að
sjá að það fer bara vel um mig
hér. Svo get ég alltaf farið í heim-
sókn heim til álfheima þegar mig
langar.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Að eignast nýja vini,
syngja og dansa, gefa út Gleðitíð-
indi, fara í gönguferðir, baka og
ferðast. Mér finnst reyndar næst-
um því allt skemmtilegt nema
kannski að vera of lengi ein.
Hver er uppáhalds maturinn
þinn? Góðgæti er uppáhalds
maturinn minn. Það er samt
eigin lega ekki beinlínis matur
heldur smákökur. Mér finnst
hundasúrur líka dásamlega
góðar.
Ertu dugleg að bursta í þér
tennurnar? Já og ég geri það
tvisvar á dag. Ég bursta sér-
staklega vel þegar ég er búin að
borða góðgæti.
Af hverju hlærðu svona mikið?
Því mér finnst það svo gaman
og mér líður svo vel á eftir. Það
er allt svo skrítið og skemmti-
legt hér í mannheimum að það
er nóg til að hlæja að. Svo elska
ég brandara sem engum öðrum
finnst vera fyndnir.
Hver finnst þér fyndnastur af
öllum? Pabbi minn er óskap-
lega fyndinn og honum finnst
líka lélegir brandarar fyndnir.
Rósenberg er reyndar mjög
fyndinn en það er ekki alltaf
viljandi.
Er Rósenberg besti vinur þinn?
Já, ætli það ekki bara. Mér þykir
óskaplega vænt um hann og ég
sakna hans alltaf þegar hann
þarf að skreppa til álfheima.
Hvernig getið þið látið ykkur
hverfa? Við notum bláa vegginn
til að fara til álfheima. Við
leggjum lófann á vegginn,
hugsum heim og segjum svo
„HEIM!“ og þá hverfum við.
Þetta eru ekki beinlínis töfrar
heldur virkar þetta bara svona.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Við Rósenberg ætlum í sumarfrí
til álfheima. Ég hlakka mikið
til að heimsækja alla vini mína,
syngja mikið og dansa og borða
góðan mat. Ég hlakka mest til
að fá hundasúrusalatið hennar
mömmu og röndóttan safa að
drekka með, og að fá góðgæti
hjá ömmu. Rósenberg ætlar að
lesa rosalega margar bækur
og drekka helling af kaffi. Svo
komum við aftur í haust því ég
þarf að sinna nýja starfinu mínu
sem konsúll álfa í mannheimum.
krakkar@frettabladid.is
80
Við notum bláa
vegginn til
að fara til álf heima.
Við leggjum lófann á
vegginn, hugsum heim
og segjum svo „HEIM!
Una Margrét Reynisdóttir
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
SKRÝTIÐ OG SKEMMTI-
LEGT Í MANNHEIMUM
Álfinn Skottu og vin hennar Rósa þekkja margir krakkar úr Stundinni okkar.
Skottu finnst gaman að eignast nýja vini, syngja og dansa og veit fátt betra en að
borða hundasúrusalat hjá mömmu sinni og fá sér röndóttan safa að drekka með.
BESTU VINIR Hér er hún Skotta með besta vini sínum, honum Rósa. MYND/ÓLÖF ERLA
LEIKFÉLAG HVERAGERÐIS frumsýnir leikritið Lína Langsokkur eftir Astrid Lindgren í
Austurmörk 23 í Hveragerði klukkan 14 á morgun. Þýðingin er eftir Þórarin Eldjárn, tónlist er eftir
Georg Riedel og leikstjóri er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Önnur sýning verður á skírdag.
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Aldur: 10.
Í hvaða skóla ertu? Austurbæjar-
skóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu? Ég
er fiskur.
Áttu happatölu? Happatalan min
er 2 af því ég fæddist 22.02 árið
2002.
Helstu áhugamál? Sund og píanó
eru áhugamálin mín og mér finnst
gaman að fara á skíði og fara í
reiðtúra. Svo fer ég oft í leikhúsið.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Heim-
skautin köldu.
Besti matur: Besti matur í heimi
er sushi.
Eftirlætisdrykkur: Gojiberjasafi.
Hvaða námsgrein er í upp-
áhaldi? Stærðfræði og íslenska.
Áttu gæludýr? Ég á tvo ketti þau
heita Brandur og Læða. Læða er
móðir Brands.
Skemmtilegasti dagurinn og
af hverju: Laugardagur af því þá
á ég svo mikinn tíma með fjöl-
skyldunni og ég fer á sundæfingu
á morgnana.
Eftirlætistónlistarmaður/hljóm-
sveit: Páll Óskar.
Uppáhaldslitur: Ljósblár.
Hvað gerðirðu síðasta sumar? Í
byrjun sumarsins fór ég til Spánar
með pabba mínum og fóstur-
mömmu. Síðan fór ég á ættar-
mót á Austurlandi með mömmu
minni. Þar fór ég í fjallgöngu. Ég
fór líka á heimavistarreiðnámskeið
í Geldinga holti vestra.
Skemmtilegasta bók sem
þú hefur lesið: Dagbók Ólafíu
Arndísar.
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú ert orðin stór? Dýralæknir, ég
hef mikinn áhuga á dýrum.
Elli: „Mamma! Við fáum fullt
af jólaskrauti fyrir næstu jól.“
Mamma: „Af hverju segirðu
það, Elli minn?“
Elli: „Ég tók allar jólakúlurnar
af jólatrénu og sáði þeim.“
Mamma: „Þvílíkur hávaði! Um
hvað eruð þið nú ósammála?“
Elli: „Ekkert. Við erum alveg
sammála. Frikki vill fá stærsta
eplið og ég líka.“
Kennarinn: „Hverjar eru þrjár
helstu hátíðirnar?“
Nemandinn: „Jól, páskar og −
og …“
Kennarinn: „Og hvað?“
Nemandinn: „Og veikindi
kennarans.“