Heimilisritið - 01.07.1947, Page 15

Heimilisritið - 01.07.1947, Page 15
Hann svaraði €ngu, hann brosti jafnvel ekki. Hún strauk fingrun- um um varir hans, — „en ég vil fá að halda áfram náminu — og praktísera líka, — ef mig langar til — Iíann hélt áfram að stara á hana; í augum hans var botnlaus alvara, engin gleði, enginn sökn- uður, ekkert bros’ engin sorg, ein- . ungis botnlaus alvara ... V. Það liðu margar klukkustundir og nú var komið að sólsetri; en sólargeislarnir náðu þó enn að skína á grashjallann litla. Hún sat með höfuð hans í kjöltu sér, og hana sárverkjaði í skrokkinn; en hún bærði ekki á sér. Einu sinni stóð hún þó upp til að breiða stormjakkann sinn yfir hann. Því það var engu líkara en honum væri kalt, þrátt fyrir sólskinið. Hann var lengstum þögull. Hann hélt bara áfram að horfa á hana þessu sama alvöruþrungna augna- ráði. Hún varð einnig þögul. hvísl- aði einstaka gæluorði í eyra hans öðru hvoru, „elsku vinur minn“, og þvílíkt, meðan hún strauk yfir andlit hans, eða lágði höndina að vörum hans. Eitt sinn laut hún niður að hon- um og sagði: „Þú ert svo þögull. Er eitthvað, sem þér leiðist?“ Þá brosti hann , veiklulega: „Það er dálítið sárt, þegar ég tala“. Litlu seinna bað hann: „Kysstu mig“. Hún lagðist niður við hlið hans og vafði handleggjunum varlega um höfuð hans. Síðan kyssti hún hann, — það var í fyrsta sinn að hún kyssti karlmann í alvöru. Kossinn færði henni ekki gleði. ek'ki svimandi haminaju. heldur dulinn ótta, angist. Það fór kulda- hrollur um hana alla. Hún gat ékki sleppt vörum hans, og hún grét meðan hún kyssti hann. Síðan fann hún að höfuð hans varð máttlaust í örmum hennar, hann gat ekki meira. Hún reis hægt á fætur og settist með höfuð hans í fanginu. Hann lá með lokuð augu. Hún hjalaði við hann eins og barn. hún skyldi hjúkra honum niðri í fjallaskála.num. hún var viss um hún fengi leyfið sitt framlenst. og ef það heppnaðist ekki. ætlaði hún að gefa lögfræðinginn á bát- inn. Gátu þau annars ekki gift sig strax. Það var ekki nauðsvnlest að þau hefðu þrjú herbergi og eld- hús og stúlknaherbersi. þau áttu að eiga hvort annað. Hafði hann ekki sjálfur tvö herbergi, hann var blátt áfram auðkýfinsur. Og hún strauk honum yfir hárið og niður andlitið og varirnar. Síðan kom mannhjálpin, — fjórir menn, og þeir höfðu með sér tvo hesta. sleða og sjúkrabörur. Þeir urðu að bera Mads Vinger upp skriðuna og upp á stígmn. Þeir sögðu ekki margt, en báru saman HEIMILISRITIÐ 13

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.