Heimilisritið - 01.07.1947, Blaðsíða 47

Heimilisritið - 01.07.1947, Blaðsíða 47
sinna og hrakti ásamt þeim tvær þýzkar sprengjuflugvélar á flótta. Rétt á eftir, sáu þessar þrjár orustuflugvélar tvo stóra skips- báta liggja fyrir neðan sig, hlaðna hermönnum. Tvær flugvélanna flugu á burt til þess að útvega bát- unum aðstoð, sú þriðja sveimaði yfir þeim og gætti þeirra. Atta ó- vinaflugvélar réðust á hana, en hún snerist gegn þeim öllum í senn og hrakti þær aftur inn yfir Dunkirk. Þessar þrjár orustuflugvélar höfðu sannanlega skotið niður tvær óvinaflugvélar. Telja mátti víst að tvær aðrar myndu aldrei fljúga framar. Enn höfðu þeir laskað þrjár, þar af eina mjög mik- ið. Engin þessai-a þriggja brezku véla varð fyrir skoti. Vélarnar náðu í hjálp handa bátunum. Tveir dráttarbátar komu á vettvang og björguðu þeim. Fimmtíu og sex óvinaflugvélar voru skotnar niður jTfir ströndinni þennan dag. Nokkuru eftir þessi atvik, hófust hinar miklu flutningar dagsins. Við sendum sextíu skip inn ásamt fjölda af bátum. Frakkar sendu tíu stór skip og hundrað og tuttugu fiskibáta. Nú þurfti stórt átak, því að varnarlínan var orðin mjög stutt. Óvinirnir þrengdu franska setuliðinu í áttina til Uxem, og sendu fallbyssur eftir ströndinni, til þess að skjóta á bryggjuna. Þegar Royal Dajfodil var á HEIMILISRITIÐ heimleið þetta kvöld. án þess að hafa hermenn * innanborðs, varð skipið fyrir árás sex óvinaflug- véla. Fimm af þessum sprengju- gusum misstu marks, en sprengja frá sjöttu vélinni fór í gegnum þrjú þilför ofan í vélarúmið og út um stjórnborðssíðuna áður en hún sprakk. Vélarnar stöðvuðust. Flug- vélarnar skutu af vélbyssum á skipið og kveiktu í því. Það var farið að hallast mikið í stjórn- borð. Skipstjórinn, G. Johnson, höfuðsmaður, lét þegar í stað flytja allt lauslegt yfir í bakborð, lækkaði alla bakborðsbátana ofan undir sjó og fyllti þá. Þessi þunga- aukning bakborðsmegin lyfti gat- inu upp úr sjó. Sumir unnu að því að slökkva eldinn, en tveir vél- stjórar, þeir J. Coulthard og W. Evans, tóku öll rúmföt, sem til náðist og tróðu þeim í gatið. Þeg- ar tekist hafði að stöðva lekann með þessum hætti, stóð Evans í sjó upp í háls og hélt opinni aust- ursloku, en Coulthard sá um að dælurnar gengu. í þessu ásigkomu- lagi komst skipið til Ramsgate. „Vélarnar gengu auðvitað mjög hægt, því að í olíunni á Dieselvél- inni voru þrír fjórðu hlutar sjór“. Þetta skip bjargaði alls 8.000 mönnum. í þessari ferð var á skipinu W. C. E. Smith, óbreyttur hermaður úr hjúkrunarliðinu. Hann vann af- burðastarf við stundun særðra 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.