Heimilisritið - 01.07.1947, Page 16

Heimilisritið - 01.07.1947, Page 16
ráð sín og lyftu Mads Vinger var- lega upp á börurnar. Hann kveink- aði sér þegar þeir hreyfðu við hon- um. Hún tók saman vosklæðin, tróð þeim í bákpokann og kleif á eftir mönnunum upp brattann. Hún hélt niðri í sér andanum, hveaiær sem hann kveinkaði sér. Hann lá á sleðanum þegar hún kom upp, hvítur í framan og með 'lokuð augu, líkt og liðið hefði yfir hann. En þá bærði hann aðra höndina, og hún greip um hana. Síðan stóð hún há og keik og horfði á mennina. Þeir máttu halda hvað þeir vildu. Þeir kræktu fyrir vatnið til að forðast verstu ófærðina. Fyrsta spölinn gekk hún með sleðanum, og hann horfði stundum til henn- ar. Síðan hnigu augnalokin aftur. Iíann kveinkaði sér ekki lengur. Mennirnir yrtust ekki á, en studdu sleðann, þar sem torfærur voru ... Þegar kom niður að vatninu, varð vegurinn svo mjór, að hún varð að hætta að ganga við hlið hans. Hún drógst dálítið aftur úr. Hún var ekki gönguvön, skórnir hennar voru lélegir og hún hafði fengið hælsæri. En hún gekk hnarreist og keik og kvöldsólin lék í björtu hári hennar. Síðan hvarf sólin bak við fjöllin. landið fölnaði, vatnið grán- aði, það var kvöldsett, og þau héldu enn áfram. Tvær stjörnur kviknuðu á ljósum himninum, föl- ar og fjarlægar. Hún gékk há og keik eftir sleð- anum, hún hrasaði stundum, en stóð jafnskjótt upp aftur. Það ískraði og gnast í meiðunum, ferð- in gekk seint og hægt. Hún sá beint inn í himininn, yfir sleðann og inn í himininn, inn í framtíðina gekk hún. Hún brosti hátíðlega að örðugleikunum, sem kynnu að mæta henni, hún óttaðist þá ekki. Hún skyldi sigrast á þeim öllum, einnig því, hve ólík þau voru, hún skyldi vinna hann á sitt band með því að gefa sjálfa sig. Hún átti allt lífið framundan til að vinna þennan sigur. Sumarnóttin var þrungin framtíð og hamingju. Þau komu að túnjaðrinum. Það var ljós í gluggunum. Það stóðu nok'krir ferðamenn við tröppurnar, í þéttum hnapp, þeir hvísluðust á. Hún skotraði augunum til þeirra, þeir stóðu víst þarna af forvitni; þeir máttu halda hvað þeir vildu. En skyndilega var eins og grúf- andi þögnin, sem hvíldi yfir öllu þessu fólki, gripi hana sjálfa skelf- ingartökum. Hversvegna var það svona þögult? Hún gekk að sleð- anum, henni varð litið á hann, sem þar lá, og hún tók að skjálfa: húi^ leit. skelfd til mannanna og á Ber- it, sem kom gangandi yfir túnið. En hún skildi ékki hvað hafði gerzt, fyrr en mennirnir tóku hljóð- lega ofan höfuðfötin um leið og þeir lutu áfram og lyftu börunum varlega upp ... exdir 14 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.