Heimilisritið - 01.07.1947, Page 31
Albert Payson Terhune:
BLÁI MIÐINN
Hvað stóð á honum f
JOHN THANE, ungur og dug-
legur Ameríkumaður, er sendur til
Frakklands í verzlunarcrindum.
Hann hefur aldrei fyrr ferðazt til
útlanda og kann ekki stakt orð í
frönsku.
Þegar hann kemur til Frakk-
lands, síðla dags, fær hann sér her-
■ bergi í gistihúsi einu, en fer síðan
inn í krá eina við hliðargötu. Við
næsta borð situr ung, frönsk kona,
sem brosir til hans hvað eftir ann-
að. Iíann tekur engan veginn und-
ir það, en bráðlega tekur hún blá-
an skrifpappír upp úr tösku sinni,
skrifar á hann nokkur orð og læt-
ur hann svo detta við fætur sér.
Svo lítur hún á hann þvðingar-
miklu augnaráði, gengur út og
hverfur á skammri stundu inn í
mannfjöldann á götunni.
★
THANE verður forvitinn, og sér
einnig eftir því að hafa ekki gripið
tækifærið til þess að stofna til
kunningsskapar við svo yndislega
stúlku. Hann nær í miðann. A
hann eru skrifuð nokkur orð á
frönsku. Hann býst við, að unga
konan hafi skráð einhverja orð-
sendingu til hans og biður yfir—
þjóninn að þýða það sem á mið-
anum stendur. Yfirþjónninn renn-
ir augunum yfir miðann, lítur svo
á Thane hryllingskenndu augna-
ráði og skipar honum að hafa sig
á brott úr kránni.
Þegar Thane er kominn til gisti-
h^ss síns, segir hann hótelstjóran-
um frá þessum einkennilega at-
burði og sýnir honum miðann.
Hótelstjórinn lítur á hann með
viðbjóði. skipar honum að hafa sig
tafarlaust á brott úr gistihúsinu
og neitar að gefa nokkra skýringu.
★
AUMUR OG ringlaður stingur
Thane miðanum í vasann og á-
kveður að sýna hann ekki fleirnm
í þ'essari einkennilegu borg.
Þegar hann er kominn til Ame-
ríku, segir hann forstjóranum við
fyrirtækið, sem hann vann hjá, frá
þessu einkennilega fyrirbæri. For-
HEIMILISRITIÐ
29