Heimilisritið - 01.07.1947, Blaðsíða 46
stærri eða smærri skotum. Á flest-
um voru áttavitar skekktir vegna
sprenginga. Skipin létu illa að
stjórn, og voru tiðum lek“.
Þar sem þessi síðustu hryðjuverk
ollu hreinni óvissu um afdrif
þeirra, sem mest voru særðir, var
það ákveðið, að varpa skyldi hlut-
kesti meðal lækna, herpresta og
yfirþjóna, eins og áður fyrri, um
þá vegsemd að verða kyrrir og
gæta hinna særðu manna. Hlutum
var varpað, og hinir særðu skildir
eftir í höndum gæzlumanna sinna.
Þeim hefur ekki enn verið skipt né
skilað, svo ég viti til.
Áhorfandi ritar: „Himinninn var
gersamlega svartur af brennandi
olíu. Loftið var fullt af dökku olíu-
kenndu sóti. Sjórinn var allur brák-
aður þessu sama efni. Hermenn-
irnir voru annaðhvort kámaðir
svartri feiti eða ataðir grárri leðju,
sem þyrlaðist upp úr blautri fjör-
unni í sprengingunum. En einna á-
takanlegast fannst mér að sjá hinn
mikla fjölda af frönskum og belg-
ískum hundum, sem hafði hænzt
að hernum. Það var ömurlegt að
sjá, þegar þeir voru að reyna að
komast um borð í skipin. Þeir voru
skotnir hundruðum saman“. En
margir voru samt fluttir til Eng-
lands. Hermenn borguðu kostnað-
inn við sóttkvína með frjálsum
samskotum.
Um kl. 4.45 þennan dag, sáu
þrjár brezkar orustuflugvélar þrjár
óvinaflugsveitir í grennd við
Dunkirk. í hverri -sveit var um
ein tylft sprengjuflugvéla, og flugu
þær í stórum sveigum yfir svæðið,
en ein og ein lækkaði flugið og
réðist á togara og báta með skot-
hríð og sprengjukasti.
Hinar þrjár brezku orustuflug-
vélar dreifðu sér til árása.
Hin fyrsta réðist þegar á
sprengjuflugvél, sem var að hækka
sig að afstaðinni árás, og skaut
hana í sjó niður. Þá réðst hún á
aðra og skaut hana einnig niður.
Því næst á þá þriðju, laskaði stýr-
isútbúnað hennar, og hún féll til
jarðar. Þegar orustuflugvélin var
að hækka sig úr þessari þriðju at-
rennu, sá hún að allar óvinaflug-
vélarnar voru flúnar nema ein, sem
varð að leita felustaðar í skýja-
þykkni.
Önnur brezka flugvélin elti tvær
óvinaflugvélar yfir Dunkirk. Önn-
ur þeirra hrapaði stjórnlaust ofan
í reykhafið yfir brennandi borg-
inni. Þá sneri flugmaðurinn við og
lagði til atlögu við tuttugu
sprengjuflugvélar, sem enn voru
þarna á sveimi. Hann skaut þeg-
ar á þær, og varð ein þeirra að
Tenda, mikið löskuð.
Þriðja orustuflugvélin réðist sam-
tímis á þrjár óvinasprengjuflug-
vélar í hóp. Þrjár aðrar brezkar
orustuflugvélar leystu hana af
hólmi, en hún flaug á ný til hinna
tveggja upphaflegu förunauta
44
HEIMILISRITIÐ