Heimilisritið - 01.07.1947, Qupperneq 53

Heimilisritið - 01.07.1947, Qupperneq 53
tónlist; og málverk voru auðvitað mesta hugðarefni hans. Hún lyfti fingurgómunum og þrýsti þeim að vörunum, sem hann hafði kysst, og það voru einmitt málverk, sem þessi stúlka reyndi að tæla hann með. Iíún hafði veitt því athygli, hvernig hún reyndi að sýnast vel að sér á því sviði í boðinu síðast- liðinn sunnudag. Þarna hafði hún setið • með merkisvip og sagt: „Finnst yður það ekki. Sam?“ og: „Finnst yður hann ekki bara efni- legur, Sam?“ „Elskan mín“, sagði Celia við borðið, þegar þau minntust á það boð, „ég bauð henni hingað á mið- vikudagskvöldið“. „Hverri?“ Hjarta hennar hoppaði af gleði. Hann skildi ekki einu sinni við hverja hún átti! „Ég kenni í brjósti um hana“, sagði Celia; og andar- tak rifjuðust upp fyrir henni gaml- ir dagar, áður en hún kynntist Sam og varð einnig að vinna fyrir sér. ... A efrir, þegar þau sátu saman í setustofunni og hann var að lesa, hugsaði hún um það. hversu náin þau voru hvoru öðru. Þannig hafði hún fundið, ósjálfrátt skynjað, á- form stúlkunnar. Eiginkonur höfðu sérstakt skilningarvit á þessu sviði. Hún fylltist fyrirlitningu og reiði gagnvart óskammfeilni þessarar stúlku, að hún skyldi reyna að blekkja Sam. — Sú umhugsun kom HEIMILISRITIÐ Celiu til að titra. Hún fór að velta því fyrir sér, hvort hún myndi geta þolað það, að fá hana hingað, inn á heimilið, hvort hún myndi geta verið vingjarnleg við slíkan Júdas. Hún stóð upp og horfði út um gluggann niður á upplýst strætið. Jú, hún yrði að gera það, sýna stúlkunni, að hún væri ósmeyk, sýna, að hún væri fær um að halda hlut sínum. Kvöldverðarboðið á miðviku- daginn átti aðeins að vera byrjun- in. Iíún þekkti manna bezt óþol- inmæðina, sem gat gripið Sam, þeg- ar hann vaT þreyttur og vildi ekki vita af neinum nálægt sér nemá henni sjálfri. Hún ætlaði að bjóða stúlkunni aftur og aftur, þangað til hann yrði dauðleiður á að sjá hana; þangað til stúlkan ski'ldi sjálf, að hún mætti sín einskis á móti eiginkonunni gagnvart Sam. Og þar að auki hlaut stúlkan að hafa einhverja sómatilfinningu, og ef kona Sams var vingjarnleg, „ef hún heldur, að ég bera hlýjan hug til hennar“, sagði Celia við sjálfa sig, „þá vogar hún sér ekki, getur hún ekki, haldið þessu áfram“. HÚN SÝNDI stúlkunni minka- kápuna á miðvikudagskvöldið og hló áhyggjulausum hlátri, eins og eiginkona, sem ekki þekkir annað en aðdáun og eftirlæti. „Hún er yndisleg“, sagði stúlk- an. Það var allt og sumt. Svo fór 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.