Heimilisritið - 01.03.1948, Qupperneq 63
þykkur, í huga sér, nú sem fyrr.
„Þar að auki“, sagði Redfern,
„er þetta óhugsandi, að því leyti,
að Arlena var hehningi sterkari
en Christine. Eg efast um að
Christine hefði getað kyrkt
kettling — áreiðanlega ekki svo
sterka og stælta konu sem Ar-
lena var. Christine hefði auk
þess aldrei komist niður stig-
ann. Hún er svo lofthrædd. Og
— ó —þetta er allt svo ótrúlegt!“
Weston ofursti klóraði sér bak
við eyrað.
„Satt er það“, sagði hann.
„Trúlegt er það ekki. Ég viður-
kenni það. En maður verður að
leita eftir ástæðu, fyrst og
fremst“.
IV.
Þegar Redíern var farinn,
sagði lögreglustjórinn brosandi:
„Mér fannst óþarfi að vera að
segja honum, að enginn grunur
gæti fallið á konuna hans“.
„Mér finnst nú, að þær varnir,
sem hann hafði fram að færa,
væru fullgildar“, sagði Poirot.
„Jæja, finnst yður það? Hún
gat ekki gert það — óhugsandi
möguleiki — eins og þér sögðuð.
Marshall hefði getað gert það,
en svo lítur út sem hann sé sak-
laus af því“.
Colgate sagði:
„Ég hef verið að íhuga þetta.
Það er hugsanlegt, ef hann hefði
Tramið morðið af yfirlögðu raði,.
að hann hefði þá haft bréfin til-
búin áður“.
,JÞað er ágæt hugmynd“, sagði
Weston, „við verðum rÖ at-
huga . ..“
Christine Redfern kom inn.
Ilún var eins og hún átti að sér,
róleg í allri framkömu.
Weston hugsaði: ,JLagleg’asta
kona. Nokkuð óhraustleg í út-
liti. Alltof góð handa þessum
angurgapa, sem hún er gjft.
Jæja, þetta er ungur maður. Það
verður mörgum á að láta fagr-
ar konur hlaupa með sig i gön-
ur“. Hann sagði:
„Gerið svo vel að setjast, frú
Redfern. Við erum neyddir til að
leita upplýsinga. Við verðum að
fara fram á, að allir hér á staðn-
um, geri grein fyrir hvar þeir
hafa verið í morgun“.
Christine Redfern hneigði
höfuðið til samþykkis. „Já, ég
skil það vel“, sagði hún. „Hvar
á ég að byrja?“
„Fyrst og fremst“, sagðí Poi-
rot, „hvað höfðust þér að, eftir
að þér voruð komnar á fætur í
morgun?“
„Um leið og ég fór til morgun-
verðar leit ég inn til Lindu Mar-
shall. Við ákváðum að fara út
að Gull Cove. Hún ætlaði að
mæta mér í forstofunni klukkan
hálf ellefu“.
Framhald i nœsta kejti.
EEIMILISRITIÐ
61