Heimilisritið - 15.06.1949, Blaðsíða 50
háalvarleg. „En Scott er á akl-
nr við mig, Júlía“.
„Hann verðnr tvítugur“, sam-
sinnti Júlía, „í desember“.
„Nú, jæja, og þá kýs hann
auð'vitað heldur glæsilega
dömu“.
„Eg get þó ekki gengið um í
síðum kjól“, sagði Júlía kvart-
andi. „Ég veit ekki einu sinni
hvert ætlunin er að fara“.
„Eg hef heldur ekki sagt, að
þú ættir að fara í síðan kjól“,
sagði Linda. „En þú gætir að
minnsta kosti farið í sómasam-
legan kjól, silkisokka og hæla-
h'áa skó og sett upp hatt, þegar
þú ferð út“.
Júíía var óvenju lengi að
að klæða sig. Hún átti í stríði
við sokkásauma og varð að
bursta hælaháu skóna. Hún fór
í stuttan, bláan kjól, sem hún
hafði ekki komið í síðan á
sautjánda árs afmælisdaginn
sinn, þegar foreldrar hennar
höfðu haldið samsæti henni til
heiðurs í veitingahúsi. Hún
hafði ekki heldur notað brúnu
hanzkana né samsvarandi skóna
síðan þá.
Hún stóð inni hjá Lindu til
síðustu skoðunar, þegar Scott
hringdi dyrabjöllunni. Hún varð
að taka á öllu sínu viljaþreki til
þess að hlaupa ekki himinlifandi
niður stigann til móts við hann.
En núverandi búningur liennar
krafðist af eínhverjum ástæðum
meiri virðuleika.
„Þú lítur Ijómandi vel út“,
sagði Linda hlýlega. „Alveg
ljómandi. Heyrðu, settu þennan
á þig“. Hún rétti Júlíu flóka-
hattkríli með bronsrósum og
margra metra slæðu. „Hann
verður eins og punkturinn yfir
öllu sanian“.
Júlía þakkaði henni fyrir og
stökkti á sig ögn af „Deyjandi
sakleysi“. Sjálfstraust hennar
óx. Linda var sérfræðingur í
öílu eins og þessu. Hún var ró-
legri, fullorðnari, þegar hún
gekk hægt niður stigann með
litla hattinn í hendinni og heims-
dömulegt bros á vör.
Scott var að tala við foreldra
hennar inni í setustofunni. Júlía
fékk ákafan hjartslátt, er hún
sá hann. Ef til vill hefur hún
einnig nefnt nafn hans Hún
gerði sér ekki grein f'yrir því. En
Scott sneri sér að minnsta kosti
við og leit á hana.
Hann hafði ekki brevtzt til
muna.
„Hæ, Júlía“. Það var ekki á
röddinni að heyra, að hann hefði
verið burtu í tvö ár, og ekki
heldur, að hann hefði saknað
hennar. Hann sagði þetta jafn
kæruleysislega og íorðum, þeg-
ar hann leit inn minnst einu
sinni á dag. En hann þrýsti
hönd hennar fast og bætti við:
48
HEIMILISRITIÐ