Heimilisritið - 15.06.1952, Side 9

Heimilisritið - 15.06.1952, Side 9
ekki verið með öllum mjalla,“ sagði hann kæruleysislega. „Hvað ætti svo sem að ske hér? Faraniki er óbreytanleg." „Nei, ég veit ekki,“ sagði Brownhill og gekk heim að hús- inu. „Mér datt það bara svona í hug, þú lítur út eins og venju- legur maður. Ég var kominn á fremsta hlunn með að taka þig fastan í greiðaskyni við þig sjálf- an,“ sagði Brownhill. „Mér hefur aldrei á ævinni liðið betur en hér.“ „Ég tala ekki um vöðva þína eða mel'tingu. En ég hef aldrei séð betri sönnun fyrir hinu forna spakmæli, að ekki sé gott að maðurinn sé einsamall. Þú varst óstyrkur á taugum og alveg að fara í hundana. í sannleika sagt, bjóst ég ekki við að finna þig lifandi í þetta sinn. En mér get- ur skjátlast, því ég sé, að þér líður prýðilega í paradís þinni. Það igleður mig, því sjálfsmorð þitt myndi hafa valdið mér miklum óþægindum.“ Þeir gengu upp í sólbyrgið, fengu sér sopa og skáluðu og gerðu að gamni sínu. „Ástæðan til, að ég kem hing- að nú, er „Orinoco“, sem kom hér við. Segðu mér, varð einn farþeginn hér eftir?“ Öll framtíð Luke var komin undir því, hvemig hann brygð- ist við þessu. Vissan um það veitti honum fullkomna stjórn á sjálfum sér. „Varð eftir? Við hvað áttu? Stúlka, segir þú? Og fegurðar- dís þar að auki? Skyldi ég vera svo heppinn? Falleg stúlka, sem fellur af himnum ofan niður í fangið á mér? Nei, komdu mér ekki til að hlæja, segðu mér heldur meira.“ „Það er merkileg saga. Dag- inn eftir að „Orinoco“ fór héðan, saknaði kona nokkur, lady Tut- ton-Finch, töluvert mikils af igimsteinum og peningum. Svo kom í ljós, að samkvæmisdam- an hennar, stúlka að nafni Kate Smith, hafði fleygt sér fyrir borð og tekið munina með sér í hefndarskyni. Að því er ég bezt veit, var varla hægt að lá henni það, því kerlingarskrukk- an var mesta skepna.“ „Ég kannast við hana,“ sagði Luke af tilfinningu. „Gott, eftir að hafa kvalið hana í langan tíma, sagði kerl- ing henni upp starfinu, hér úti á hala veraldar, og neitaði að greiða henni kaupið eða ferðina fyrir hana heim. Henni var bara skipað að fara í land í næstu höfn. Kerlinguna ætti að dæma fyrir morð, því hún hefur án efa valdið dauða stúlkunnar. En svo datt þeim í hug, að ef til SUMARHEFTI, 1952 7

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.