Heimilisritið - 15.06.1952, Blaðsíða 31

Heimilisritið - 15.06.1952, Blaðsíða 31
una á lofti — en þessi hugsun var honum allt annað en geð- felld. Benni hafði mestu and- styggð á ofbeldi. Hann var að velta þessu fyrir sér, þegar skyndilega — svo skyndilega, að hann skildi aldrei hvernig það hefði gerzt — kalt stál snart hnakkagrófina á hon- um, og jafnvel ennþá kuldalegri rödd bauð honum að sleppa byssunni. Hann hlýddi skipuninni — hann var vanur að hlýða skip- unum — og hann gekk auðmjúk- ur inn í skrifstofuna, þegar hon- um var boðið það. Þetta var hlý, viðfelldin stofa, og fyrirferðamikli maðurinn, sem sat í hægindastól og púaði vindil, virtist glaðlegur og hlý- legur. ,.Herra minn —sagði Benni. fsköld rödd að baki honum greip fram í: „Ég er Robinson,“ sagði hún. Benni sneri sér við; og hjartað í honum hrapaði langt niður á við. Hár, grannur maður, með þær þynnstu varir og þau hvössustu augu, sem Benni hafði nokkru sinni séð, stóð þar og miðaði á hann. „Ætlarðu að segja mér, að þetta sé í fyrsta skipti?“ hvæsti Robinson. Benni kinkaði kolli þegjandi. „Kona og ellefu börn svelt- andi heima, ha? Er byssan hlað- in?“ Benni kinkaði kolli dauflega, og Robinson staðfesti það með því að opna byssuna og taka úr henni skotin. „Ég myndi hringja til lög- reglunnar,“ sagði hlýlegi maður- inn. „Ekki strax,“ sagði Robinson. Hann opnaði skáp og benti með byssunni. „Þarna inn,“ sagði hann við Benna. „Ég verð hérna, svo þér þýðir ekki að reyna að brjótast út.“ Hurðin small í lás, og Benni settist á gólfið í kolamyrkri og velti fyrir sér, hvað næst byði hans. Útlitið var allt annað en glæsilegt, þarna sat hann nú inniluktur, vopnlaus og ráða- laus. Hann læddi hendinni í vas- ann og gældi við blýantsstúf — það var þó ofurlítil huggun. Hann bjóst við að heyra rödd tala við lögregluna í síma. Hann heyrði líka brátt rödd, en hún talaði ekki í síma, heldur við glaðlega manninn í stólnum, og Benni var ekki umræðuefnið. Hlutabréf — nafn á járnbrautar- félagi — Wall Street — selja strax. Skrítið! Mennirnir tóku að gerast há- værir. „Ég hef boðið þér sann- gjörn kjör,“ heyrði hann Rob- inson segja. SUMARHEFTI, 1952 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.