Heimilisritið - 15.06.1952, Page 11

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 11
Hagfræðingurinn Gamansaga eftir Percy Eckstein .,ÞAÐ VAR gott ég hitti þig,“ sagði Friðrik, fom skólabróðir minn, þegar við hittumst eftir mörg ár. „Ég ætla nefnilega að kvænast bráðum.“ „Óska til hamingju,“ sagði ég, „en hvað get ég igert að því? Ætlar þú máske að biðja mig að vera svaramaður?11 „Það er ekki komið að því enn,“ svaraði hann. „Fyrst verð ég að finna einhverja til að kvænast.11 „Jæja, þú veizt ekki, hverja U ..Alls ekki. Ég hef bara ákveð- ið að vera ekki piparsveinn leng- ur.“ „Jæja, já,“ sagði ég. „Þráin eftir eigin heimili og f jölskyldu. Þreyttur af hótelmat. Maður kannast við þetta.“ Hann hristi höfuðið. „Ónei, sei, sei, nei. Ákvörðun mín kemur þessu ekkert við.“ ..En hverju þá?“ „Hagfræði.“ Reyndar hefði ég getað sagt mér það sjálfur. Strax í mennta- skóla hafði Friðrik fengið auk- nefnið „Hagfræðingurinn.11 Það var ástríða hans að leggja hag- fræðilegar tölur á allt milli him- ins og jarðar; á ársnotkun kenn- aranna af rauðu bleki til stíla- leiðréttinga, á líkurnar fyrir því að vera staðinn að reykingum, líkurnar fyrir að fá mislinga áð- ur en prófi lyki og svo fram- vegis, endalaust. Þessi ástríða var einnig í samræmi við starfs- val hans. Friðrik fékk starf í hagfræðideild vátryggingarfé- lags og virtist kunna þar prýði- lega við sig. í samræmi við hag- fræðilegar yfirveganir, tilkynnti hann mér, vildi hann nú kvæn- ast. Það var sem sé sannanlegt, að kvæntir menn lifðu 5 árum og 2 mánuðum lengur en pipar- sveinar. „Þú skilur það,“ sagði hann, „að ég kæri mig ekki um að fórna 5 árum ævi minnar, þegar ég get fengið þau á svona auð- veldan hátt!“ SUMARHEFTI, 1952 9

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.