Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 12

Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 12
„Hefurðu nýlega komizt að þessu með þessi 5 ár, eða hvað?“ spurði ég. „Hu, þetta tilheyrir nú blátt áfram stafrófinu í fólkshagfræð- inni. En nú er rétta stundin komin fyrir mig. Ég er sem sé nákvæmlega 29 ára.“ „Já — og hvað svo?“ „Að meðaltali eru flest ham- ingjusöm hjónabönd meðal þeirra, sem kvænast 29 ára.“ „Jæja, svoleiðis. En ég skil sámt ekki, hvað þetta kemur mér við.“ „Þú umgengst nú svo margt fólk — þekkir svo marga. Ef til vill þekkir þú einhverja, sem hæfir mér?“ „Ég skal gjarnan líta í kring- um mig,“ fullyrti ég. „Hvers konar eiginleika á hún að hafa, þessi tilvonandi frú þin?“ „Já, það er nú einmitt það ...“ svaraði hann. „Ég geri alveg sér- stakar kröfur.“ „Látum oss heyra!“ „Hún á að vera af bændaætt- um — 6V2 ári yngri en ég, 1,60 metra há, vega 59 kíló, hafa ljós- rautt hár og vera ofurlítið hölt á vinstra fæti — mætti líklega vera á hægra fæti líka.“ „Undarlegur smekkur," varð mér að orði. „Það kemur smekk hreint ekkert við,“ svaraði hann móðg- aður. „Þetta eru hrein vísindi. Notkun hagfræðinnar í daglegu lífi.“ Og hann skýrði fyrir mér, að sú kona, sem hefði alla þessa eiginleika, hefði samkvæmt hag- fræðilegum skýrslum mestar líkur til að verða góð og trú eig- inkona og móðir hraustra barna. „Já, en tilfinningarnar," and- mælti ég, „samúðin, ástin ...“ „Það er löngu hagfræðilega sannað, að hamingjusöm hjóna- bönd koma ást ekkert við. 63% af öllum rofnum hjónaböndum voru í upphafi stofnuð af ást. En hvað segirðu —- viltu líta í kringum þig fyrir mig?“ „Já, auðvitað," sagði ég, frem- ur af kurteisi en áhuga. Svo reyndi ég að beina samtalinu inn á viðfelldnari brautir og lét þess getið, að það myndi hafa sína kosti fyrir kvenmann, að giftast honum, því auðvitað væri hann tryggður gegn öllu, sem hægt yæri að tryggja sig gegn. Mér til mikillar furðu svaraði Friðrik með hæðnishlátri. „Tryggður! Ég!“ hrópaði hann. „Hvernig geturðu hugsað þér annað eins? Ég fleygi ekki pen- iragum út um gluggann fyrir núll og ekki neitt!“ Og á leiðinni niður strætið. útskýrði hann fyrir mér, hversu há gjöld tryggingarfélögin 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.