Heimilisritið - 15.06.1952, Page 23

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 23
hendinni himinlifandi giöð. „Jený! Hvað eruð þér eigin- lega að gera hérna?“ spurði hún. „Nú, ég fór bara í smá öku- ferð“, sagði hann, „og þá datt mér í hug að líta hér við“. Eg get kannske fengið tveggja tíma til- sögn á morgun, hugsaði hann, svo að ég geti sem fyrst látið sjá mig á hestbaki. „Þér komið alveg mátulega“, sagði hún. „Eg ætla einmitt að skreppa bæjarleið ríðandi. Vilj- ið' þér koma með mér? Þér skul- uð fá Dandvboy v. Whitefood og Bluebell. Hann hefur lítið verið hrevfður upp á síðkastið, svo honum veitir ekki af því að hann sé viðraður svolítið“. „Er það?“ spurði hann. Hún kinkaði kolli. „Hann er farinn að verða dá- lítið óstýrilátur. Hann fleygði Roger yfir girðingu í gær“. „Roger?“ „Já, tamningamanninum okk- ar. Hann fór til borgarinnar í dag til að láta taka mvnd af handleggnum. Við vonum að hann sé ekki brotinn.....Jæja, ég ætla að fara í eitthvað, svo getum við lagt af stað“. „Já — það er að segja — ég renndi hér við til þess að' heilsa rétt aðeins upp á yður. Eg verð að flýta mér. Við eigum að skoða vélina eftir hálftíma“. Hann reyndi að brosa, en brosið mistókst og varð ekki annað en aumleg stæling á brosi. „Það er leiðinlegt!“ „Já, skrambi leiðinlegt!“ sagði Jerry. „En þér komið aftur, þegar leyfið yðar er byrjað. Ég hlakka til að sýna yður sveitina hérna. Hún er falleg, því megið þér trúa!“ DAGINN eftir, klukkan 11 stundvíslega, kom hann upp eft- ir til Nancy. Hún leit á hann og sagði hlæjandi: „Jæja, þér eruð víst ólmur að bvrja?“ „Heyrið þér nú, Mfancy“, sagði Jerry ákafur, „hvers vegna get ég ekki fengið tilsögn í finnn eða sex tíma í dag? Þá verð' ég þeim mun fyrr útlærður“. „Þér hafið komið við hjá Ju- dith á heimleiðinni í gær og heilsað upp á hana!“ sagði Nancy. „Eg sé ekki að það komi neitt málinu við“. „Hún hefur verið í baðfötum, skilst mér“. „Jú, jú“, sagði Jerry. „Það er dagsanna, ég leit við á búgarð- inum. Og lnin var í baðfötum!“ Hann leit á Nancy, og það var komið fram á varirnar á honum að hún hagaði sér eins og hún SUMARHEFTI, 1952 21

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.